Mikilvægur sigur Burnley Anton Ingi Leifsson skrifar 2. janúar 2019 21:30 Jóhann Berg Guðmundsson. vísir/getty Burnley vann lífs nauðsynlegan sigur er liðið hafði betur gegn Huddersfield 2-1 í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Huddersfield komst yfir með marki Steve Mounie á 33. mínútu en sjö mínútum síðar jafnaði Chris Wood metin. Leikar stóðu 1-1 í hálfleik en undir lok fyrri hálfleiks fékk Christopher Schindler sitt annað gula spjald og þar með rautt. Heimamenn í Huddersfield því einum færri. Sigurmarkið kom svo stundarfjórðungi fyrir leikslok og það var hinn ólseigi framherji Ashley Barnes sem skoraði eftir undirbúning Ashley Westwood. Í uppbótartíma fékk svo Roby Brady beint rautt spjald í liði Burnley en það kom ekki að sök og 2-1 sigur Burnley. Mikilvæg þrjú stig í hús hjá Burnley sem er komið upp úr fallsæti. Þeir eru í sextánda sætinu með átján stig en Jóhann Berg Guðmundsson spilaði allan leikinn í kvöld. Það er hins vegar bullandi vesen á Huddersfield. Þeir eru á botninum með tíu stig, átta stigum frá öruggu sæti. Enski boltinn