Benitez gerði Liverpool greiða Anton Ingi Leifsson skrifar 29. janúar 2019 22:00 Benitez glotti í kvöld. vísir/getty Rafael Benitez, stjóri Newcastle, gerði fyrrum félagi sínu Liverpool greiða í toppbaráttunni í kvöld er Newcastle vann 2-1 sigur á Manchester City á St. James' Park. Það voru ekki liðnar nema 25 sekúndur er City komst yfir. Eftir frábæra sendingu Raheem Sterling, kom David Silva boltanum á Sergio Aguero sem var einn á auðum sjó og kom City yfir. Flestir héldu þá að City myndu setja nokkur mörk á Newcastle sem hefur verið í alls konar vandræðum það sem af er tímabili og stemningin ekki upp á sitt besta í norðrinu. Staðan var 1-0 í hálfleik en á 66. mínútu jafnaði Salomn Random metin eftir að Isaac Hayden kom boltanum á hann. Varnarleikur City ekki upp á marga fiska í þessu marki. Tíu mínútum fyrir leikslok fékk Newcastle vítaspyrnu eftir að Fernandinho missti boltann klaufalega og braut af sér. Matt Ritchie fór á punktinn og skoraði. Lokatölur 2-1. City er áfram í öðru sætinu en er nú fjórum stigum á eftir Liverpool sem spilar við Leicester annað kvöld. Liverpool getur þar með náð sjö stiga forskoti. Newcastle fór með sigrinum upp í fjórtánda sæti deildarinnar.16 - Manchester City have now dropped 16 points in their 24 Premier League games this season having drawn twice and lost four times; already more than they dropped in the entirety of 2017-18 (14 – four draws, two defeats). Shocked. #NEWMCI pic.twitter.com/L6wY1y8004— OptaJoe (@OptaJoe) January 29, 2019 Enski boltinn