Lacazette og Aubameyang kláruðu Cardiff Anton Ingi Leifsson skrifar 29. janúar 2019 21:30 Þessir tveir sáu um Cardiff. vísir/getty Það var ekki mikill glans yfir leik Arsenal sem vann þó 2-1 sigur á Cardiff er liðin mættust á Emirates í kvöld. Staðan var markalaus í hálfleik en Arsenal átti ekki eitt einasta skot á markið í fyrri hálfleik. Mikill vonbrigða hálfleikur fyrir þá rauðklæddu. Arsenal komst yfir með sínu fyrsta skoti á markið. Þeir fengu vítaspyrnu eftir að brotið var á Kolisinac. Á punktinn steig Pierre-Emerick Aubameyang og skoraði af miklu öryggi. Arsenal tvöfaldaði forystuna sjö mínútum fyrir leikslok en eftir laglegan sprett skoraði Alexandre Lacazette framhjá Neil Etheridge í marki Cardiff. Í uppbótartíma minnkaði Nathanie Mendez-Laing muninn fyrir Cardiff en þar við sat. Fleiri urðu mörkin ekki og 2-1 sigur Arsenal sem er í fimmta sætinu með 47 stig, jafn mörg og Chelsea sem er í sætinu ofar, en Chelsea með betri markatölu. Cardiff er í átjánda sætinu með nítján stig en Aron Einar Gunnarsson spilaði allan leikinn í kvöld. Enski boltinn