Tottenham féll úr tveimur bikarkeppnum á fjórum dögum Anton Ingi Leifsson skrifar 27. janúar 2019 17:45 Trippier grípur um höfuð sér eftir vítaklúðrið. vísir/getty Tottenham varð ellefta úrvalsdeildarliðið til þess að falla úr enska bikarnum þetta tímabilið er liðið tapaði 2-0 gegn öðru úrvalsdeildarliði Crystal Palace í dag. Leikið var á Selhurst Park í dag og fyrsta markið kom eftir níu mínútur en eftir vandræðagang í Tottenham barst boltinn til framherjans Conor Wickham sem ýtti boltanum yfir línuna. Það var svo fyrrum Tottenham-maður sem tvöfaldaði forystuna fyrir Palace er hann skoraði með þrumuskoti á 34. mínútu. Fjörinu var ekki lokið í fyrri hálfleik því Kieran Trippier klúðraði vítaspyrnu fyrir Tottenham í fyrri hálfleiknum. Fleiri urðu mörkin ekki í síðari hálfleik og Roy Hodgson er kominn með Palace í 16-liða úrslit enska bikarsins á meðan Tottenham féll úr tveimur bikarkeppnum í vikunni. Enski boltinn