Man City lék sér að Burnley og skoraði fimm Arnar Geir Halldórsson skrifar 26. janúar 2019 16:45 Algjörir yfirburðir vísir/getty Englandsmeistarar Manchester City áttu ekki í nokkrum einustu vandræðum með Burnley í 32-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar á Etihad leikvangnum í dag. Jóhann Berg Guðmundsson var ekki í leikmannahópi gestanna. Sean Dyche, stjóri Burnley, pakkaði í vörn en þrátt fyrir það voru hans menn aldrei nálægt því að standast meisturunum snúning. Heimamenn höfðu mikla yfirburði frá upphafi leiks en skoruðu þó aðeins eitt mark í fyrri hálfleik. Það gerði Gabriel Jesus. Í síðari hálfleik rigndi svo mörkum í öllum regnbogans litum og fór að lokum svo að Man City vann 5-0 sigur. Enski boltinn