Fótbolti

Sveinn lánaður í C-deildina

Anton Ingi Leifsson skrifar
Sveinn í Spezia-búningnum.
Sveinn í Spezia-búningnum. vísir/getty
Sveinn Aron Guðjohnsen hefur verið lánaður frá B-deildarliði Spezia niður í C-deildina þar sem hann mun leika með Ravenna.

Félagið greindi frá þessu á heimasíðu sinni nú í kvöld en Sveinn Aron mun leika með Ravenna út leiktíðina.

Hann hefur ekki fengið mörg tækifæri hjá Spezia frá því að hann gekk í raðir félagsins síðasta sumar frá Breiðablik.

Ravenna er í tíunda sæti B-riðils Seríu C en leikið er í þremur riðlum. Eins og staðan er núna eru þeir í umspilssæti um laust sæti í B-deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×