Skallamark Llorente tryggði Tottenham mikilvægan sigur

Anton Ingi Leifsson skrifar
Llorente fagnar í kvöld.
Llorente fagnar í kvöld. vísir/getty
Tottenham vann mikilvægan endurkomusigur á Watford í kvöld, 2-1, er liðin mættust á Wembley en Watford komst yfir í leiknum.

Fyrsta markið skoruðu gestirnir frá Watford en það kom á 38. mínútu. Þá skoraði Craig Cathcart og þannig stóðu leikar í hálfleik.

Tíu mínútum fyrir leikslok jafnaði Son Heung-min metin en Son er nýkominn heim úr Asíukeppninni. Frábær endurkoma hjá honum.

Þremur mínútum fyrir leikslok var það svo Spánverjinn Fernando Llorente sem tryggði Tottenham sigurinn með skallamarki eftir fyrirgjöf Danny Rose.

Tottenham áfram í þriðja sætinu með 54 stig, þremur stigum á eftir City og sjö stigum á eftir Liverpool. Watford er í níunda sætinu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira