Son skaut Tottenham í annað sætið Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 2. febrúar 2019 14:15 Son skoraði mikilvægt mark í dag vísir/getty Son Heung-Min skaut Tottenham upp fyrir Manchester City í annað sæti ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu með sigurmarki undir lok leiks Tottenham og Newcastle á Wembley. Leikurinn byrjaði einstaklega dauflega og þó Tottenham væri miklu meira með boltann gerðu þeir hvítklæddu ekkert af viti við hann. Erik Lamela komst næst því að setja boltann í netið þegar hann skallaði í samskeytin á 24. mínútu. Stuttu seinna átti Newcastle góða skyndisókn og ógnuðu marki Tottenham í eina skiptið í fyrri hálfleik. Það lifnaði aðeins yfir sóknarleik Tottenham þegar leið á hálfleikinn en markið kom þó ekki og markalaust var í hálfleik. Í seinni hálfleik byrjaði Salomon Rondon á því að skalla í stöngina fyrir Newcastle. Gestirnir voru kannski lítið með boltann en þegar þeir fengu hann þá gátu þeir svo sannarlega ógnað Hugo Lloris. Á 65. mínútu leiksins bjargaði Fabian Schär á línu fyrir Newcastle, skot Christian Eriksen var nokkrum sekúndubrotum frá því að komast yfir línuna. Leikmenn Tottenham héldu áfram að leita að marki og þeir uppskáru á 83. mínútu þegar Son Heung-Min skoraði á 83. mínútu. Martin Dubravka, sem hafði átt afbragðsleik, gerði mistök í marki Newcastle. Hvort hann sá boltann seint eða hvað er erfitt að segja til um, en skot Son fór næstum því í gegnum markvörðinn, fór undir hann og í jörðina og þaðan í netið. Fleiri urðu mörkin ekki í leiknum og Tottenham er komið með einu stigi meira en Englandsmeistarar Manchester City og fer því í annað sætið. Newcastle situr eftir í 14. sæti með 24 stig. Enski boltinn