Vítaspyrnan sem Salah fékk hárréttur dómur Anton Ingi Leifsson skrifar 22. apríl 2019 14:30 Salah fær vítaspyrnuna í gær. vísir/getty
Dermot Gallagher, fyrrum dómari í ensku úrvalsdeildinni, segir að vítaspyrnan sem Liverpool fékk gegn Cardiff í gær hafi verið hárréttur dómur. Dermot dæmdi í ensku úrvalsdeildinni í fimmtán ár. Hann bryrjaði að dæma þar 1992 en lagði flautuna á hilluna fimmtán árum síðar. Hann var FIFA dómari í átta ár, frá 1994-2002. Eftir að hann lagði flautuna á hilluna hefur hann verið álitsgjafi Sky Sports um dómgæslu og í nýjustu útgáfunni segir hann að vítaspyrnan sem Liverpool fékk í gær hafi verið rétt. „Mér finnst þetta vera brot og vítaspyrna. Ef þú vefur höndunum kringum leikmann eins og hann gerði ertu að taka áhættu,“ skrifaði Gallagher í umsögn sinni um atvikið. Neil Warnock, stjóri Cardiff, gaf Salah 9,9 í einkunn fyrir dýfuna í atvikinu en sagði samt sem áður að Morrison hafi einnig tekið áhættu að grípa um Salah. Gallagher er sammála því. „Hann hélt þeim lengi þarna og ég held að dómarinn hafi ekki getað gert neitt annað en að dæma brot. Hann þurfti ekki að bíða eftir að hann fór niður.“ „Ég held að þegar Morrison grípur utan um hann er hann að taka áhættu. Ég held að dómarinn hafi getað dæmt vítið aðeins fyrr. Þetta er víti og það er enginn spurning,“ sagði Gallagher.
Fótbolti Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Sjá meira