Cahill: „Erfitt að bera virðingu fyrir Sarri“ Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 5. maí 2019 12:00 Cahill hefur eytt miklum tíma í upphitunartreyjunni í vetur vísir/getty
Gary Cahill er óánægður með hvernig Maurizio Sarri stjórnar liði sínu hjá Chelsea og segir það erfitt að bera virðingu fyrir ítalska stjóranum. Cahill er fyrirliði Chelsea en hann mun yfirgefa félagið í sumar á frjálsri sölu eftir tímabil þar sem hann kom aðeins við sögu í sjö leikjum. „Þetta hefur verið alveg hræðilegt tímabil fyrir mig persónulega,“ sagði Cahill við Telegraph. „Ég mun þurrka þetta tímabil út þegar ég fer héðan. Síðasta minnning mín frá Chelsea verður bikarúrslitaleikurinn síðasta vor.“ Cahill lyfti bikarmeistaratitlinum með Chelsea eftir sigur á Manchester United í úrslitaleik á Wembley fyrir ári síðan. „Ég hef spilað reglulega síðustu sex ár og unnið allt sem hægt er að vinna með Chelsea. Að þurfa að horfa úr stúkunni er eitthvað sem ég átti ekki von á.“ „Ég þekki þetta félag inn og út og á sterk sambönd við allt starfsliðið og leikmennina, en ekkert af því hefur verið nýtt í vetur.“ „Ef stjóri spilar ekki leikmanni í tvo, þrjá leiki þá þarf hann ekkert að útskýra það. En ef það er komið upp í átta, níu leiki þá þarf að útskýra hvað sé í gangi. En hann hefur ekki gert það.“ „Það er mjög erfitt fyrir mig að bera virðingu fyrir einhverjum sem hefur ekki sýnt því virðingu hvað ég, og sumir aðrir leikmenn, höfum gert fyrir félagið.“ Chelsea mætir Watford í dag og sækir Leicester heim í lokaumferðinni í baráttunni um fjórða sæti deildarinnar.
Enski boltinn Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Körfubolti Fleiri fréttir Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Sjá meira