United á ekki möguleika á Meistaradeildarsæti Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 5. maí 2019 15:00 Er Paul Pogba að spila sína síðustu leiki fyrir United? vísir/getty Manchester United mun ekki vera á meðal þátttakanda í Meistardeild Evrópu á næsta tímabili eftir jafntefli við Huddersfield í næst síðustu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Von Manchester United um að ná fjórða sætinu í ensku úrvalsdeildinni var veik fyrir daginn en hún var þó til staðar. Jafntefli við botnlið deildarinnar sem var aðeins að ná í sitt fimmtánda stig á tímabilinu gerði þó út um þá von. Sigur var nauðsynlegur fyrir United og hinn ungi Scott McTominay kom þeim á bragðið með marki strax á áttundu mínútu leiksins. United náði þó ekki að skora annað markið og þá er alltaf hætta að missa leikinn niður í jafntefli, sem varð rauninn. Huddersfield átti skyndisókn, Luke Shaw hleypti Isaac Mbenza framhjá sér svo Mbenza var kominn einn á móti David de Gea. Hann hélt ró sinni og kláraði færið, leikurinn orðinn jafn á ný. Undir lokin átti Paul Pogba skot í slána og hinn ungi Tahith Chong átti skot sem var varið, inn vildi boltinn ekki og niðurstaðan varð 1-1 jafntefli. United hefur ekki unnið í fimm leikjum í röð en geta endað tímabilið með sigri á heimavelli þegar þeir mæta föllnu liði Cardiff á lokadegi úrvalsdeildarinnar eftir viku. Enski boltinn