Enska landsliðið síðasta liðið til að mæta á svæðið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. júní 2019 15:30 Það gekk vel hjá enska landsliðinu í undankeppni Þjóðadeildarinnar. Hér fagna Harry Kane og Jesse Lingard einu af mörkum liðsins. Getty/James Williamson
Fjögur landslið keppa í vikunni um það að verða fyrsti Þjóðadeildarmeistarinn í knattspyrnu en lokaúrslit Þjóðadeildar Evrópu fara þá fram í Portúgal. Undanúrslitaleikirnir eru í kvöld (Portúgal - Sviss) og annað kvöld (England - Holland) og úrslitaleikurinn síðan á sunnudaginn. Allir leikirnir eru sýndir beint á Stöð 2 Sport. Athygli vekur að enska landsliðið var ekkert að flýta sér á svæðið og kaus frekar að undirbúa sig fyrir leikinn heima á Englandi. Enska landsliðið kom því ekki til Portúgal fyrr en seinni partinn í dag og er síðasta liðið af fyrrnefndum fjórum liðum til að mæta á svæðið. Enska liðið æfði á St George's Park í Staffordshire í morgun og flaug síðan í framhaldinu frá Birmingham suður til Portúgals. Liðið æfir því ekki á Estádio D. Afonso Henriques leikvanginum í Guimaraes fyrir leikinn en leikmenn fá þó að heimsækja leikvanginn. Gareth Southgate heldur síðan blaðamannafund í kvöld. Enska landsliðið er eina af þessum fjórum sem komst í undanúrslitin á HM í Rússlandi fyrir ári síðan en Holland komst ekki á HM og bæði Portúgal og Sviss duttu út í sextán liða úrslitunum. Portúgal tapaði fyrir Úrúgvæ en Sviss fyrir Svíþjóð. Enska landsliðið endaði í fjórða sætinu eftir tap á móti Króatíu í undanúrslitunum og tap á móti Belgíu í leiknum um þriðja sætið.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Birkir á leið til Vals á nýjan leik Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Stefán fær Arsenal í heimsókn Sjáðu glæsimörk táninga og Helga koma Víkingi á toppinn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Heimir „hæstánægður með FH-liðið“ eftir 3-0 tap „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Barcelona jók forskot sitt með herkjum Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm „Draumur að spila fyrir uppeldisfélagið“ Sveindís Jane og Sædís Rún í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Sjá meira