Gylfi ekki á lista Daily Mail yfir bestu leikmennina utan efstu sex liðanna Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 7. ágúst 2019 15:30 Gylfi er að hefja sitt þriðja tímabil hjá Everton. vísir/getty
Þrátt fyrir að hafa skorað 13 mörk og lagt sex upp á síðasta tímabili er Gylfi Þór Sigurðsson ekki á lista Daily Mail yfir bestu leikmennina utan efstu sex liðanna í ensku úrvalsdeildinni (Manchester City og United, Tottenham, Liverpool, Arsenal og Chelsea). Á listanum eru tíu leikmenn. Einnig eru nefndir tíu leikmenn sem komu til greina. Gylfi er heldur ekki þar á meðal. Einn leikmaður Everton er á lista Daily Mail; Brasilíumaðurinn Richarlison. Hann skoraði 13 mörk á síðasta tímabili, líkt og Gylfi. Í sumar varð hann svo Suður-Ameríkumeistari með brasilíska landsliðinu. Frakkinn Lucas Digne er einn þeirra sem komu til greina á listann. Wilfried Zaha, leikmaður Crystal Palace, er líka á listanum. Everton vill fá Fílbeinsstrendinginn og hefur gert tilboð í hann. Leicester City á tvo leikmenn á listanum; belgíska miðjumanninn Youri Tielemans og enska vinstri bakvörðinn Ben Chilwell. Markahrókurinn Jamie Vardy er ekki á listanum. Liðsfélagi Birkis Bjarnasonar hjá Aston Villa, Jack Grealish, er á listanum. Samherji Jóhanns Berg Guðmundssonar hjá Burnley, James Tarkowski, er meðal þeirra sem komu til greina.Listann í heild sinni má sjá með því að smella hér.
Enski boltinn Tengdar fréttir Crystal Palace hafnaði risatilboði Everton - Vilja 80 milljónir fyrir Zaha Everton ætlar sér að næla í Wilfried Zaha áður en félagaskiptaglugganum á Englandi verður lokað. 7. ágúst 2019 12:00 Mest lesið Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Sport Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Fleiri fréttir Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Sjá meira
Crystal Palace hafnaði risatilboði Everton - Vilja 80 milljónir fyrir Zaha Everton ætlar sér að næla í Wilfried Zaha áður en félagaskiptaglugganum á Englandi verður lokað. 7. ágúst 2019 12:00