Segja Harry Maguire hafa getað fengið þrettán milljónum meira á viku hjá Man. City Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. ágúst 2019 12:00 Harry Maguire labbar út á Old Trafford í fyrsta sinn. Getty/Matthew Peters
Harry Maguire er orðinn leikmaður Manchester United og um leið dýrasti varnarmaður heims. Hann hefði líka geta orðið launahæsti varnarmaður heims en vildi ekki vera bláu megin í Manchester borg. Manchester United keypti þennan 26 ára miðvörð frá Leicester City fyrir 80 milljónir punda rétt fyrir tímabil og það kom fram í viðtölum við hann að það hafi verið æskudraumur hans að spila fyrir bæði enska landsliðið og Manchester United. Nú hafa báðir þessir draumar hans ræst. „Mig dreymdi alltaf að labba út á bæði Wembley og Old Trafford þegar ég var strákur. Ég er mjög stoltur af sjálfum mér að vera kominn í svona stóran klúbb,“ sagði Harry Maguire við Manchester Evening News.Rejects £278,000-per-week deal at Man City Accepts £190,000-per-week deal at Man Utd City wanted to make Maguire the world's highest-paid defender - but he followed his boyhood dream instead #MUFC#MCFC#Maguirehttps://t.co/OdAOtwDOEq — GiveMeSport Football (@GMS__Football) August 16, 2019Pep Guardiola hjá Manchester City vildi einnig fá Harry Maguire og City var tilbúið að bjóða honum mun betri samning. Samkvæmt frétt í Daily Star þá bauð Manchester City enska landsliðsmiðverðinum 278 þúsund pund í vikulaun eða tæpar 42 milljónir íslenskra króna. Samningur hans við Manchester United hljómar aftur á móti „aðeins“ upp á 190 þúsund pund á viku eða tæpar 29 milljónir íslenskra króna. Hér munar 88 þúsund pundum á viku eða rúmum 13 milljónum íslenskra króna. Það gera 53 milljónir á mánuði og 630 milljónir á ári. Maguire vildi um fram allt komast til Manchester United og þessi ást hans á félaginu mun aðeins auka vinsældir hans meðal stuðningsmannanna á Old Trafford.
Enski boltinn Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Körfubolti Fleiri fréttir Tímabilið búið hjá Rodri Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Sjá meira