De Gea verður í markinu gegn Huddersfield Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 4. maí 2019 09:00 David de Gea hefur verið valinn besti leikmaður United síðustu tímabil vísir/getty
David de Gea mun standa í marki Manchester United á móti Huddersfield þrátt fyrir mistök í síðustu leikjum. Spánverjinn hefur legið undir mikilli gagnrýni síðustu vikur og hafa margir sérfræðingar sagt að Ole Gunnar Solskjær eigi að setja markvörðinn á bekkinn. Varamarkvörður United, Sergio Romero, meiddist hins vegar á æfingu á fimmtudag og getur ekki spilað um helgina. „David hefur æft vel í vikunni og hann mun spila,“ sagði Solskjær á blaðamannafundi. Í síðustu fjórum leikjum hefur de Gea gert þrjú mistök sem leiddu til þess að andstæðingurinn skoraði mark. Í síðustu 123 leikjum á undan því gerði hann samtals þrjú mistök sem leiddu til marks. „David hefur verið frábær á tímabilinu. Undir lokin hefur hann verið í fyrirsögnunum af röngum ástæðum en hann þarf að eiga við það. Markvarðarstaðan hefur átt betri tíma en þá sem við erum að ganga í gegnum núna en hann er tilbúinn í sunnudaginn.“ „Hann vill sanna hversu góður markmaður hann er. Frammistaða hans síðustu ár, David hefur fullt traust frá mér.“ United þarf að vinna Huddersfield til þess að eiga möguleika á fjórða sætinu í deildinni.
Enski boltinn Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Fleiri fréttir Efast um dugnað og hugarfar Rashford Tímabilið búið hjá Rodri Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Sjá meira