Cardiff fallið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. maí 2019 18:30 Aron Einar vonsvikinn í leikslok. vísir/getty Cardiff City er fallið úr ensku úrvalsdeildinni eftir 2-3 tap fyrir Crystal Palace á heimavelli í dag. Aron Einar Gunnarsson lék sinn síðasta heimaleik fyrir Cardiff í dag en hann er á förum til Al Arabi í Katar í sumar. Wilfried Zaha, Michy Batshuayi og Andros Townsend skoruðu mörk Palace sem er í 14. sæti deildarinnar. Martin Kelly (sjálfsmark) og Bobby Reid skoruðu mörk Cardiff sem hefur tapað þremur leikjum í röð. Cardiff vann sér sæti í ensku úrvalsdeildinni fyrir ári en stoppaði stutt þar. Enski boltinn