„Frábær vika fyrir Liverpool ef þeir eru enn í efsta sætinu á sunnudaginn“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. febrúar 2019 14:30 Leikmenn Liverpool fagna marki á tímabilinu. Getty/Nick Taylor
Liverpool náði aftur efsta sætinu í ensku úrvalsdeildinni í gær en þó með engum glæsibrag. Framundan er viðburðarrík vika. Bitlaust Liverpool lið fór með stig frá Old Trafford í stórleik helgarinnar og náði um leið eins stigs forskoti á Manchester City sem var á sama tíma upptekið við að tryggja sér fyrsta titil tímabilsins. Jamie Carragher, fyrrum leikmaður Liverpool og nú knattspyrnusérfræðingur á Sky Sports, spáði í framhaldið fyrir sína menn í umfjöllun Sky Sports um leik Manchester United og Liverpool í gær.24/02 - @ManUtd (A) 0-0 27/02 - @WatfordFC (H) 03/03 - @Everton (A) "If @LFC get out the end of this week and they're still top of the league, it's a great week." Do you agree with @Carra23? pic.twitter.com/VLZw6AoJhB — Sky Sports Premier League (@SkySportsPL) February 24, 2019„Liverpool átti að vinna þennan leik en það er öll vikan sem skiptir mestu máli en ekki bara Manchester United leikurinn,“ sagði Jamie Carragher. Það er nefnilega stutt á milli leikja þessa dagana hjá Liverpool sem mætir Watford á Anfield á miðvikudagskvöldið og svo nágrönnum sínum í Everton á Goodison Park á sunnudaginn. „Ef Liverpool klárar þessa viku vel og er enn í efsta sætinu í deildinni eftir hana þá er þetta góð vika. Þetta er vika þar sem Manchester City gæti tapað stigum,“ sagði Carragher. Manchester City mætir West Ham á heimavelli á miðvikudagskvöldið og síðan er útileikur við Bournemouth á laugardaginn. Liðið var að vinna titil og það gæti mögulega truflað einbeitingu lærisveina Pep Guardiola þótt liðið ætti að vinna báða leiki frekar sannfærandi. Staða Liverpool liðsins 4. mars mun segja Jamie Carragher um þróun mála í framhaldinu. „Ef Liverpool er enn á toppnum eftir Everton-leikinn þá eru þeir í frábærri stöðu til að vinna ensku deildina,“ sagði Carragher.
Enski boltinn Mest lesið Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Sport Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Fleiri fréttir Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Sjá meira