Arsenal ekki í neinum vandræðum með Dýrlingana Arnar Geir Halldórsson skrifar 24. febrúar 2019 15:45 Mikki kláraði Dýrlingana vísir/getty Skærasta stjarna Arsenal, Pierre Emerick Aubameyang, hóf leik á varamannabekknum þegar Lundúnarliðið fékk Southampton í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni í dag. Þrátt fyrir það lagði Arsenal grunninn að öruggum sigri strax í upphafi leiks því Alexandre Lacazette kom Arsenal á bragðið strax á 6.mínútu eftir undirbúning Henrikh Mkhitaryan. Mkhitaryan var svo sjálfur á skotskónum skömmu síðar eða á 17.mínútu þegar hann kom Arsenal í 2-0. Þó Southampton hafi gert tvær skiptingar í leikhléi tókst þeim ekki að þjarma frekar að Arsenal og fór að lokum að ekki voru fleiri mörk skoruð í leiknum. Öruggur heimasigur Arsenal staðreynd og lyfta þeir sér þar með upp fyrir Man Utd í 4.sæti deildarinnar. Enski boltinn