Fótbolti

Morata á skotskónum er Atletico færðist nær Barcelona

Anton Ingi Leifsson skrifar
Þungu fargi létt af Morata í dag.
Þungu fargi létt af Morata í dag. vísir/getty
Atletico Madrid minnkaði forskot Barcelona niður í sjö stig er liðið vann 2-0 sigur á Villareal á heimavelli í dag.

Atletico vann frábæran 2-0 sigur á Juventus fyrr í vikunni í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar og því annar góði 2-0 sigur liðsins á innan við viku.

Alvaro Morata var í byrjunarliðinu hjá Madrídarliðinu í dag og hann skoraði á 31. mínútu eftir stoðsendingu frá bakverðinum Filipe Luis.

Þannig stóðu leikar allt þangað til tveimur mínútum fyrir leikslok er Saul Niguez tvöfaldaði forystuna eftir undirbúning Diego Costa. Lokatölur 2-0.

Atletico er í öðru sætinu, sjö stigum á eftir Barcelona en Villareal er í átjánda sætinu, fallsæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×