93 leikmenn í deildinni hafa fengið boltann oftar en Gylfi í vetur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. febrúar 2019 14:15 Gylfi Þór Sigurðsson er ekki að fá boltann nægilega mikið í sóknarleik Everton. Getty/Chris Brunskill
Gylfi Þór Sigurðsson er aðeins í 94. sæti yfir þá leikmenn í ensku úrvalsdeildinni sem hafa oftast fengið boltann á þessu tímabili. Gylfi Þór Sigurðsson er með 9 mörk og 3 stoðsendingar í 25 leikjum með Everton í ensku úrvalsdeildinni sem er ekki slæm tölfræði. Gylfi hefur samt verið gagnrýndur og hluti af skýringunni á því er að Everton liðinu gengur ekki nægilega vel að koma boltanum á íslenska landsliðsmanninn. Það að 93 leikmenn í ensku úrvalsdeildinni hafa fengið að koma oftar við boltann en Gylfi er stórfurðulegt en engu að síður staðreynd þegar opinber tölfræði ensku úrvalsdeildarinnar er skoðuð. Gylfi hefur alls fengið boltann 1140 sinnum í 25 leikjum sínum með Everton á þessu tímabili. Það eru fimm leikmenn Everton fyrir ofan hann eða þeir Lucas Digne (1624 sinnum), Idrissa Gueye (1373), Seamus Coleman (1361), Michael Keane (1352) og Kurt Zouma (1142). Chelsea-mennirnir Jorginho (2480 sinnum) og César Azpilicueta (2405) eru þeir leikmenn deildarinnar sem hafa oftast fengið boltann á þessari leiktíð. Í næstu sætum eru síðan miðverðir toppliðanna tveggja eða þeir Aymeric Laporte hjá Manchester City (2394 sinnum) og Virgil van Dijk hjá Liverpool (2286). Á eftir þeim eru síðan Chelsea-mennirnir Antonio Rüdiger (2221), David Luiz (2187) og Marcos Alonso (2181).Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Everton verða í sviðsljósinu í kvöld þegar þeir taka á móti Englandsmeisturum Manchester City á Goodison Park. Útsending Stöðvar 2 Sport frá leiknum hefst klukkan 19.35.
Enski boltinn Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Fleiri fréttir Efast um dugnað og hugarfar Rashford Tímabilið búið hjá Rodri Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Sjá meira