Segir himinháa verðmiða í fótboltanum vera að eyðileggja janúargluggann Tómas Þór Þórðarson skrifar 6. febrúar 2019 13:30 Manchester United hefði reynt við Raphaël Varane fyrir eðlilegt verð að mati Neville. vísir/getty
Félagaskiptaglugginn sem opnast og lokast í janúar á hverju ári í fótboltanum er að verða að engu að mati Gary Neville, fyrrverandi fyrirliða Manchester United, og félög eru frekar reiðubúin til að skipta um stjóra en að kaupa nýja leikmenn. Félögin í ensku úrvalsdeildinni eyddu aðeins 140 milljónum punda í janúar en á sama tíma í fyrra eyddu þau 465 milljónum í nýja leikmenn. Lið eins og Tottenham í bullandi toppbaráttu fékk ekki einn leikmann, annan janúarmánuðinn í röð, en það hefur aldrei áður gerst. Aðeins sjö félög rifu upp veskið og keyptu nýja leikmenn en Neville segir óðaverðbólguna í fótboltanum sem leiðir til himinhárra verðmiða ástæðuna fyrir þessu. Liðin vilja styrkja sig en vilja ekki borga uppsett verð. „Það kemur auðvitað á óvart að Arsenal keypti ekki varnarmann og að Tottenham fékk sér ekki varamann fyrir Harry Kane eða bara einhvern. Vandamálið er að þau geta ekki fengið leikmennina sem þau vantar og í hreinskilni sagt er þetta vandamál,“ segir Neville í viðtali við Sky Sports. „Félög eru ekki að selja leikmennina sína á eðlilegu verði þannig liðin sem eru á höttunum eftir leikmönnum þurfa að taka ákvörðun um hvort þau ætli að borga svona mikið í janúar.“ „Arsenal hefði klárlega styrkt sig ef það hefði fundið rétta manninn og það er alveg klárt að United hefði keypt til dæmis Raphaël Varane eða Harry Maguire fyrir rétt verð.“ „Ensku liðin bara geta ekki fengið þessa menn. ÞAu hafa spurt og reynt en það gengur ekkert. Þau eru bara föst. Þetta er alvöru vandamál því markaðurinn stendur í stað,“ segir Gary Neville.
Enski boltinn Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Fleiri fréttir Tímabilið búið hjá Rodri Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Sjá meira