Pochettino ánægður hjá Tottenham og hugsar sér ekki til hreyfings 19. mars 2019 07:00 Pochettino er glaður. vísir/getty
Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, segir að hann sé ánægður hjá félaginu. Hann segist ekki vera að hugsa sér til hreyfings en tekur það jafnframt fram að hann hugsi ekki of langt fram í tímann. Þessi 47 ára gamli stjóri skrifaði undir fimm ára samning við Tottenham fyrir tíu mánuðum en hefur eftir það verið duglega orðaður við bæði Manchester United og Real Madrid er bæði lið voru í erfiðleikum og þjálfaralaus. Nú eru hins vegar bæði lið komin með stjóra, að minnsta kosti tímabundið, og bendir allt til þess að Pochettino verði áfram hjá Tottenham þar sem hann er sáttur. „Ég er mjög ánægður hjá Tottenham og er með fjögurra ára samning. Kannski eru 99% annara stjóra með öðruvísi hugsunarhátt,“ sagði Pochettino í samtali við fjölmiðla. „Ég nýt starfsins frá degi til dags og það sem gerist á morgun verður afleiðingin af því sem gerðist í dag. Ég lít ekki of langt fram í tímann eða hugsa um það. Þegar ég skrifaði undir samninginn gerði ég það útaf ég er ánægður.“ Tottenham hefur ekki keypt leikmann í rúmt ár og urðu fyrsta félagið í sögu ensku úrvalsdeildarinnar til þess að gera það. Þrátt fyrir það er liðið í þriðja sæti deildarinnar og það er ekki eitthvað sem fólk bjóst við, segir Pochettino. „Enginn hélt að Tottenham myndi verða í baráttunni á þessu ári eftir eyðslu annara félaga sem þurfa að vinna titla. Tottenham er öðruvísi en þrátt fyrir allt erum við í baráttunni, vegna okkar gilda. Við vonumst til að klára tímabilið vel,“ sagði Pochettino.
Fótbolti Tengdar fréttir Pochettino segir Barcelona einu skrefi ofar en United Barcelona og Manchester United mætast í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. 18. mars 2019 22:45 Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Sjá meira
Pochettino segir Barcelona einu skrefi ofar en United Barcelona og Manchester United mætast í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. 18. mars 2019 22:45