Enski boltinn

Rodgers búinn að skrifa undir hjá Leicester

Anton Ingi Leifsson skrifar
Rodgers á línunni fyrr í vetur.
Rodgers á línunni fyrr í vetur. vísir/getty
Leicester hefur staðfest að Brendan Rodgers muni taka við liðinu en hann skrifaði undir samning við liðið nú í kvöld.

Claude Puel var rekinn á sunnudaginn og eins og Vísir greindi frá í kvöld var Rodgers efstur á óskalista Leicester.







Rodgers og Leicester hafa nú komist að samkomulagi og skrifaði Rodgers í kvöld undir þriggja og hálfs árs samning við Leicester.

Hann verður í stúkunni í kvöld er Leicester tekur á móti Brighton en gæti stýrt sínum fyrsta leik á sunnudaginn er Leicester heimsækir Watford. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×