Páll góður gegn gömlu félögunum 13. október 2005 19:33
Grindvíkingar báru sigurorð af grönnum sínum í Njarðvík í úrslitaleik Bílavíkurmótsins í körfuknattleik í fyrrakvöld, 78-68, þar sem fyrrum leikmaður Njarðvíkur, Páll Kristinsson, var atkvæðamikill í liði Grindvíkinga. Páll skoraði 19 stig, hirti 17 fráköst og átti 6 stoðsendingar í úrslitaleiknum og var fyrrum félögum sínum of stór biti til að kyngja.Fréttablaðið sló á þráðinn til Páls og spurði hann hvernig hann væri að finna sig í gula búningnum og hvort ekki hefði verið skrítið að spila á móti gömlu félögunum. "Þetta mót var nú svo sem ekki þeirrar tegundar að maður hoppaði hæð sína í loft upp yfir sigrinum. Það vantaði auðvitað marga menn í öll lið og æfingar liðanna eru komnar mjög stutt á veg, þannig að þetta gefur nú kannski ekki góða mynd af stöðu liða. Þetta gekk dálítið upp og niður hjá okkur á þessu móti, en ég held að við getum engu síður verið þokkalega sáttir við okkar frammistöðu. Liðið spilaði ágætlega saman þrátt fyrir fáar æfingar og ég held að hópurinn eigi eftir að smella bara vel saman í vetur," sagði Páll, sem lætur vel af að því að leika undir stjórn Friðriks Inga Rúnarssonar á ný. "Ég þekki auðvitað vel til Friðriks og hef spilað undir hans stjórn með landsliðinu og Njarðvík, þannig að það auðveldar mér mikið að koma inn í þetta Grindavíkurlið. Ég veit nokkurn veginn hvernig Friðrik byggir hlutina upp og til hvers hann ætlast af manni, þannig að þessi félagaskipti hjá mér hefðu kannski geta verið flóknari en raun ber vitni," sagði Páll sem er hæstánægður með andann í Grindavíkurliðinu og segir stefnuna þar á bæ að sjálfsögðu setta á að vinna titla í vetur.
Körfubolti Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Viktor Gísli öflugur gegn PSG Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn ÍBV og Grótta með sigra Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Birkir á leið til Vals á nýjan leik Segir álagið vera að drepa menn Helena verður á skjánum í vetur Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Fortnite er aðalleikurinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Derrick Rose leggur skóna á hilluna Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Óbreytt staða á toppnum í Rocket League Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Sjá meira