Síðasti þáttur Sportsins í dag fyrir sumarfrí Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. maí 2020 14:30 Síðasti þáttur Sportsins í dag fyrir sumarfrí var sýndur í opinni dagskrá á Vísi í dag. Að venju hófst þátturinn klukkan 15:00 og var að þessu sinni í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport, Stöð 2 Vísi sem og á Vísi. Hægt er að sjá Sportið í dag í spilaranum hér fyrir ofan. Öllu var til tjaldað í þætti dagsins. Kári Kristján Kristjánsson var bæði gestur og gestastjórnandi en Eyjamaðurinn hefur slegið í gegn með innslögum sínum í þættinum og vel við hæfi að hann hafi verið í síðasta þættinum fyrir sumarfrí. Kári sat í settinu með Henry Birgi en Kjartan Atli var í beinni frá golfvellinum í Grindavík þar sem lokahóf Domino's Körfuboltakvölds var í fullum gangi. Þar sem þetta er síðasti þátturinn fyrir sumarfrí þá var þátturinn lengri í dag eða um 90 mínútur. Það var líka stútfullur þáttur í dag. Dagný Brynjarsdóttir og Anna Björk Kristjánsdóttir, leikmenn Selfoss, voru í viðtali og ræddu komandi sumar sem og umræðuna um launamál í kvennaboltanum. Sú umræða var í hámarki eftir að Anna Björk samdi við Selfoss. Þátturinn kíkti í heimsókn hjá KSÍ þar sem verið er að senda alla gömlu landsliðsbúningana langt út í heim enda von á nýjum búningum frá Puma. Einnig var nýr styrktaraðili næstefstu deildanna í knattspyrnu kynntur í Laugardalnum í dag og þau mál skoðuð. Karl Jónsson, fyrrum leikmaður og körfuknattleiksþjálfari, fór yfir ábyrgð höfuðborgarsvæðisins í íslenskum körfubolta. Kristján Einar Kristjánsson fór svo yfir viðburði helgarinnar á Stöð 2 eSport. Að lokum var kíkt í nýjan og glæsilegan búningsklefa Víkings þar sem einnig var skoðuð áhugaverð leið til þess að sótthreinsa búningsklefa á tímum Covid. Sportið í dag er á dagskrá á Stöð 2 Sport alla virka daga klukkan 15.00. Upptökur af fyrri þáttum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum. Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Viktor Gísli öflugur gegn PSG Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn ÍBV og Grótta með sigra Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Birkir á leið til Vals á nýjan leik Segir álagið vera að drepa menn Helena verður á skjánum í vetur Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Fortnite er aðalleikurinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Derrick Rose leggur skóna á hilluna Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Óbreytt staða á toppnum í Rocket League Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Sjá meira
Síðasti þáttur Sportsins í dag fyrir sumarfrí var sýndur í opinni dagskrá á Vísi í dag. Að venju hófst þátturinn klukkan 15:00 og var að þessu sinni í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport, Stöð 2 Vísi sem og á Vísi. Hægt er að sjá Sportið í dag í spilaranum hér fyrir ofan. Öllu var til tjaldað í þætti dagsins. Kári Kristján Kristjánsson var bæði gestur og gestastjórnandi en Eyjamaðurinn hefur slegið í gegn með innslögum sínum í þættinum og vel við hæfi að hann hafi verið í síðasta þættinum fyrir sumarfrí. Kári sat í settinu með Henry Birgi en Kjartan Atli var í beinni frá golfvellinum í Grindavík þar sem lokahóf Domino's Körfuboltakvölds var í fullum gangi. Þar sem þetta er síðasti þátturinn fyrir sumarfrí þá var þátturinn lengri í dag eða um 90 mínútur. Það var líka stútfullur þáttur í dag. Dagný Brynjarsdóttir og Anna Björk Kristjánsdóttir, leikmenn Selfoss, voru í viðtali og ræddu komandi sumar sem og umræðuna um launamál í kvennaboltanum. Sú umræða var í hámarki eftir að Anna Björk samdi við Selfoss. Þátturinn kíkti í heimsókn hjá KSÍ þar sem verið er að senda alla gömlu landsliðsbúningana langt út í heim enda von á nýjum búningum frá Puma. Einnig var nýr styrktaraðili næstefstu deildanna í knattspyrnu kynntur í Laugardalnum í dag og þau mál skoðuð. Karl Jónsson, fyrrum leikmaður og körfuknattleiksþjálfari, fór yfir ábyrgð höfuðborgarsvæðisins í íslenskum körfubolta. Kristján Einar Kristjánsson fór svo yfir viðburði helgarinnar á Stöð 2 eSport. Að lokum var kíkt í nýjan og glæsilegan búningsklefa Víkings þar sem einnig var skoðuð áhugaverð leið til þess að sótthreinsa búningsklefa á tímum Covid. Sportið í dag er á dagskrá á Stöð 2 Sport alla virka daga klukkan 15.00. Upptökur af fyrri þáttum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum.
Sportið í dag er á dagskrá á Stöð 2 Sport alla virka daga klukkan 15.00. Upptökur af fyrri þáttum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum.
Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Viktor Gísli öflugur gegn PSG Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn ÍBV og Grótta með sigra Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Birkir á leið til Vals á nýjan leik Segir álagið vera að drepa menn Helena verður á skjánum í vetur Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Fortnite er aðalleikurinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Derrick Rose leggur skóna á hilluna Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Óbreytt staða á toppnum í Rocket League Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Sjá meira