Saunders mun taka við Pistons 20. júlí 2005 00:01
Flip Saunders mun verða næsti þjálfari Detroit Pistons, ef marka má nýjustu fréttir frá Bandaríkjunum, en Pistons hafa sem kunnugt er komist að samkomulagi við Larry Brown um að hætta og hafa gert við hann starfslokasamning. Saunders verður líklega kynntur formlega sem aðalþjálfari liðsins á morgun, en menn voru fljótir að leggja saman tvo og tvo þegar hann hafnaði tilboði Milwaukee Bucks um að taka við liðinu á dögunum, því það þótti gefa til kynna að hann væri í sigtinu hjá Pistons. Saunders var áður á mála hjá Minnesota Timberwolves í nokkur ár, þar sem hann þótti ná ágætum árangri. Hvað Larry Brown varðar, telja spekingar vestanhafs líklegt að hann verði næsti þjálfari New York Knicks. Nokkrar hræringar hafa verið á leikmannamarkaðnum í NBA á síðustu dögum og þar á meðal má nefna að framherjinn Donyell Marshall hefur gengið í raðir Cleveland Cavaliers frá Toronto, Washington Wizards lokkuðu til sín bakvörðinn Antonio Daniels frá Seattle Supersonics og þá hafa Philadelphia 76ers samið við þá Kyle Korver og Willie Green um að vera áfram hjá félaginu. Þeir samningar milli leikmanna og liða sem farið hafa fram undanfarið eru allir aðeins munnlegir, en á föstudaginn verður loks heimilt að ganga formlega frá leikmannaskiptum.
Körfubolti Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Viktor Gísli öflugur gegn PSG Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn ÍBV og Grótta með sigra Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Birkir á leið til Vals á nýjan leik Segir álagið vera að drepa menn Helena verður á skjánum í vetur Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Fortnite er aðalleikurinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Derrick Rose leggur skóna á hilluna Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Óbreytt staða á toppnum í Rocket League Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Sjá meira