Lok, lok og læs hjá Njarðvík 13. febrúar 2005 00:01
Njarðvíkingar tóku Fjölnismenn í kennslustund í varnarleik í Laugardalshöllinni í gær þegar liðin mættust í bikarúrslitaleiknum í karlaflokki í körfu. Njarðvíkingar fóru með sigur af hólmi, 90-64, eftir að hafa haft yfir, 43-39, í hálfleik. Njarðvíkingar tóku besta sóknarlið Intersportdeildarinnar og slökktu á því en Fjölnir hafði minnst skorað 74 stig á tímabilinu fyrir leikinn í gær. Njarðvíkingar byrjuðu leikinn með látum og skoruðu fyrstu ellefu stig leiksins. Fjölnismenn vöknuðu hins vegar til lífsins eftir það og lengi framan af hálfleiknum var jafnræði með liðunum. Njarðvíkingar voru með fjögurra stiga forystu í hálfleik en í síðari hálfleik tók liðið öll völd á vellinum. Þeir lokuðu vörninni, hittu frábærlega í sókninni og gerðu út um leikinn í þriðja leikhluta. Síðasti leikhlutinn var eingöngu formsatriði og juku Njarðvíkingar forystuna allt til leiksloka. Guðmundur Jónsson átti frábæran leik í liði Njarðvíkinga og skoraði 20 stig. Hann sagði aðspurður að þetta hefði ekki verið besti leikur hans á ferlinum en góður samt. "Skotin duttu í dag og það var frábært. Við vissum að við þurftum að hafa fyrir því að vinna þetta Fjölnislið og það var frábært að liðið spilaði eins vel í dag og raun ber vitni," sagði Guðmundur og bætti við að nú væri einn titill eftir. Magnús Pálsson, fyrirliði Fjölnis, var daufur í dálkinn eftir leikinn en þessi nítján ári gamli strákur var, líkt og flestir félaga hans, að spila sinn fyrsta úrslitaleik. "Við stóðum í Njarðvíkingum í deildinni og það var leiðinlegt að geta ekki endurtekið það. Við áttum aldrei möguleika í leiknum en þetta er frábær reynsla og við lærðum heilmikið af þessu," sagði Magnús sem náði að líta á björtu hliðarnar.
Körfubolti Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Töpuðu með ellefu í Tékklandi Handbolti Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Viktor Gísli öflugur gegn PSG Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn ÍBV og Grótta með sigra Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Birkir á leið til Vals á nýjan leik Segir álagið vera að drepa menn Helena verður á skjánum í vetur Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Fortnite er aðalleikurinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Derrick Rose leggur skóna á hilluna Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Óbreytt staða á toppnum í Rocket League Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Sjá meira