Chelsea eygir enn von á Meistaradeildarsæti 6. maí 2018 17:15 Giroud var ánægður eftir að hann skoraði sigurmarkið í dag. vísir/afp Chelsea eygir enn von á Meistaradeildarsæti eftir 1-0 sigur á Liverpool i stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Eina mark leiksins kom í fyrri hálfleik. Meistararnir frá síðasta tímabili þurftu nauðsynlega á þremur stigum að halda til þess að Eina mark leiksins kom á 32. mínútu er Oliver Giroud skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf Victor Moses. Loris Karius stóð varnarlaus í marki Liverpool. Eftir sigurinn er Chelsea með 69 stig í fimmta sæti en Liverpool er tveimur sætum ofar með 72 stig. Liverpool hefur enn ekki tryggt sér öruggt sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð. Á milli Liverpool og Chelsea er Tottenham med 71 stig. Tottenham og Chelsea eiga bæði leik til góða svo það getur farið svo að Tottenham, Chelsea og Liverpool verði öll með 72 stig er síðasta umferðin fer fram um næstu helgi. Enski boltinn