Þórir og norsku stelpurnar öruggar í undanúrslitin á EM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. desember 2014 18:14 Nora Mork. Vísir/AFP
Sigurganga Þóris Hergeirssonar og norska kvennalandsliðsins í handbolta á EM hélt áfram í kvöld þegar liðið vann tveggja marka endurkomusigur, 26-24, á Póllandi í öðrum leik sínum í milliriðli á EM í Ungverjalandi og Króatíu. Með þessum sigri eru norsku stelpurnar búnar að tryggja sér sæti í undanúrslitum þrátt fyrir að enn sé ein umferð eftir í milliriðlinun. Norska liðið var ekki búið að stíga feilspor á mótinu en norsku stelpurnar lentu samt í talsverðum erfiðleikum með lið sem var enn án stiga í milliriðlinum. Frábær seinni hálfleikur og frábær leikur Noru Mörk lagði hinsvegar grunninn að sigrinum. Mörk skoraði ellefu mörk í leiknum þar af átta þeirra í seinni hálfleiknum sem Noregur vann 15-9. Pólska liðið skoraði fyrsta markið í leiknum og tók strax frumkvæðið. Pólsku stelpurnar voru komnar fimm mörkum yfir, 11-6, eftir átján mínútur og þær voru síðan fjórum mörkum yfir í hálfleik, 15-11. Norska liðið var með jafnmarga tapaða bolta (11) og mörk í fyrri hálfleiknum og markverðir liðsins vörðu aðeins 4 skot (af 19, 21 prósent). Nora Mörk skoraði fjögur fyrstu mörk Noregs í seinni hálfleiknum og jafnframt sex af átta mörkum liðsins á fyrstu ellefu mínútunum í seinni hálfleiknum en á sama tíma breytti norska liðið stöðunni úr 15-11 fyrir Pólland í 19-18 fyrir Noreg. Norska liðið náði mest fjögurra marka forskoti í seinni hálfleiknum en pólska stelpurnar löguðu stöðuna með því að skora tvö síðustu mörk leiksins.
Handbolti Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur gegn PSG ÍBV og Grótta með sigra Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Sporting rúllaði yfir Veszprém Loks vann Valur leik Sigvaldi Björn magnaður í fyrsta sigri Kolstad HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Sjá meira