Antonio Tajani er nýr forseti Evrópuþingsins atli ísleifsson skrifar 18. janúar 2017 12:45
Ítalski hægrimaðurinn og Evrópuþingmaðurinn Antonio Tajani var kjörinn nýr forseti Evrópuþingsins eftir atkvæðagreiðslu í þinginu í gær. Tajani tekur við embættinu af Martin Schultz sem gegnt hefur embættinu forseta Evrópuþingsins frá árinu 2012, en tilkynnti fyrr í vetur að hann hugðist láta af embætti og snúa aftur í þýsku landsmálin þar sem þingkosningar fara þar fram í haust. Tajani hafði betur gegn samlanda sínum, Gianni Pitella, sem var frambjóðandi þinghóps sósíalista, en í síðustu umferð atkvæðagreiðslunnar hlaut Tajani 351 atkvæði en Pitella 282. Ítalinn var frambjóðandi Kristilegra demókrata (EPP) á þinginu en þinghópurinn er sá stærsti á þinginu. Hinn 63 ára Tajani hefur verið einn af varaforsetum þingins og átti áður sæti í framkvæmdastjórn ESB þar sem hann fór með málefni samgangna og iðnaðar. Tajani er þó ekki óumdeildur þar sem hann hefur áður starfað náið með fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, Silvio Berlusconi. Frambjóðandi þinghóps Frjálslyndra demókrata, Belginn Guy Verhofstadt, dró framboð sitt til baka og lýsti yfir stuðningi við Tajani, í tilraun til að koma í veg fyrir aukin áhrif andstæðinga Evrópusamrunans. Í grein Evrópuvefnsins kemur fram að Evrópuþingið fari með löggjafarvald í ESB ásamt ráðherraráðinu. „Vægi þingsins í ákvarðanatöku hefur aukist stig af stigi, nú síðast með Lissabon-sáttmálanum. Samþykki þingsins þarf fyrir fjárlögum Evrópusambandsins og hefur Evrópuþingið nýtt sér völd sín á þessu sviði til að hafa áhrif á þá málaflokka sem hafa útgjöld í för með sér. Þingið gegnir einnig eftirlitshlutverki gagnvart öðrum stofnunum sambandsins og sinnir samskiptum við þjóðþing aðildarríkjanna.“
Tengdar fréttir Verhofstadt hættir við framboð og styður Tajani Kosning nýs forseta Evrópuþingsins hófst í morgun, en búist er við að úrslit liggi fyrir síðdegis. 17. janúar 2017 11:03 Mest lesið Vegfarandinn er látinn Innlent „Dapurleg framkoma“ fólks á vettvangi banaslyss umhugsunarefni Innlent Maður stunginn í brjóstkassann í nótt Innlent Þoturnar sem flytja Íslendinga yfir Atlantshafið næstu áratugi Innlent Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Erlent Arnar Þór stofnar Lýðræðisflokkinn Innlent „Þetta er eiginlega bankahrun karlmennskunnar“ Innlent Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Erlent „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent Fleiri fréttir Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Ísrael gerir loftárásir á Jemen Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Fimmtán látnir í nýjustu árásum Ísraelshers Segir Harris veika á geði Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal Kallar eftir stuðningi allra múslima við Hezbollah Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Öllum flugferðum til Beirút aflýst Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Leiðtogi Hezbollah allur Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjö hundruð liggja í valnum eftir vikuna Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Vísbending um að jörðin gæti lifað áfram sem niflheimur Ishiba verður næsti forsætisráðherra Japans Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Netanyahu hafnar tillögum um vopnahlé milli Ísrael og Hezbollah Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Ákærður fyrir mútuþægni og fjársvik Sjá meira
Verhofstadt hættir við framboð og styður Tajani Kosning nýs forseta Evrópuþingsins hófst í morgun, en búist er við að úrslit liggi fyrir síðdegis. 17. janúar 2017 11:03