Ótrúlegur endir þegar Frakkar unnu Þjóðverja | Myndband Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. desember 2016 21:57 Allison Pineau skoraði tvö síðustu mörk Frakka og tryggði þeim bæði stigin gegn Þjóðverjum. vísir/getty
Keppni í milliriðlum á EM 2016 í handbolta hófst í dag með þremur leikjum. Leikið var í milliriðli 1 sem fer fram í Gautaborg. Frakkland, Holland og Þýskaland eru öll með fjögur stig í riðlinum eftir sigra í leikjum dagsins. Frakkar unnu ævintýralegan sigur á Spánverjum, 22-23. Allison Pineau var hetja Frakka en hún tryggði liðinu sigur með tveimur mörkum á síðustu 18 sekúndum leiksins. Pineau jafnaði metin í 22-22 með marki úr vítakasti þegar 18 sekúndur voru eftir. Spánverjar, sem voru einum færri, tóku leikhlé og settu sjötta sóknarmanninn inn á. Það gekk ekki betur en svo að Macarena Aguilar tapaði boltanum þegar þrjár sekúndur voru eftir. Pineau nýtti sér það, skoraði í autt markið og tryggði Frökkum bæði stigin. Pineau var markahæst í franska liðinu með níu mörk en sjö þeirra komu af vítalínunni. Nerea Pena skoraði fimm mörk fyrir spænska liðið sem er án stiga á botni riðilsins.The final mistake and goal which decided #ESPFRA! Great composure by @PineauAllison, who scored the final four in @FRAHandball's 23:22 win. pic.twitter.com/d8Vosm55ki — #ehfeuro2016 (@EHFEURO) December 10, 2016Holland, silfurliðið frá síðasta HM, vann þriggja marka sigur, 30-33, á heimaliðinu, Svíþjóð. Hollendingar leiddu allan tímann þótt munurinn á liðunum væri aldrei mikill. Cornelia Groot var markahæst í hollenska liðinu með sjö mörk. Estevana Polman kom næst með sex mörk. Isebelle Gulldén var að venju markahæst í sænska liðinu með átta mörk. Svíar eru með fjögur stig í riðlinum. Þýskaland átti ekki í miklum vandræðum með að leggja Serbíu að velli. Lokatölur 19-26, Þjóðverjum í vil. Liðsheildin var sterk hjá Þýskalandi en allir útileikmenn liðsins nema tveir komust á blað í leiknum. Anne Hubinger og Svenja Huber voru markahæstar með fjögur mörk hvor. Tamara Georgijev skoraði sjö mörk fyrir Serba sem eru með þrjú stig í riðlinum.
Handbolti Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur gegn PSG ÍBV og Grótta með sigra Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Sporting rúllaði yfir Veszprém Loks vann Valur leik Sigvaldi Björn magnaður í fyrsta sigri Kolstad HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Sjá meira