Útskýrði af hverju hann er bólusettur: „Sérfræðingar sem hafa unnið við þetta í mörg ár“ Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 8. desember 2021 18:00 Mo Salah í leik gegn Norwich City. AP photo/Rui Vieira Mohamed Salah, leikmaður Liverpool, útskýri nýverið af hverju hann lét bólusetja sig gegn kórónuveirunni. Fyrir hann væri svipað að fara gegn ráðum sérfræðinga og þegar fólk út á götu segir honum hvað hann eigi að gera inn á vellinum.
Mikil umræða hefur myndast í kringum hvort íþróttafólk á hæsta getustigi sé bólusett eða hvort það ætti að láta bólusetja sig. Frægustu dæmin um óbólusetta leikmenn eru Kyrie Irving, leikmaður Brooklyn Nets í NBA-deildinni í körfubolta, og Joshua Kimmich, leikmaður Þýskalandsmeistara Bayern. Salah – einn albesti leikmaður heims um þessar mundir – hefur opinberað að hann sé bólusettur og segir ástæðuna frekar einfalda: Sérfræðingar í þessum fræðum mæla með því. „Já ég er bólusettur, læknar og fólk sem hefur unnið innan læknisfræðinnar til fjölda ára mæla með því. Ef ég segði að það væri rangt þá væri það líkt og þegar fólk út á götu segir mér að ég hafi átt að gefa boltann þarna frekar en hérna,“ sagði Egyptinn og skaut létt á sófakartöflur Liverpool-borgar. „Læknar og WHO (Alþjóða heilbrigðisstofnunin) segja að við eigum að taka bóluefni og við verðum að fylgja þeim,“ sagði Salah að endingu um málið. Mo Salah explains why he has been vaccinated against COVID-19 pic.twitter.com/W2cDvgwyiL— B/R Football (@brfootball) December 8, 2021 Salah hefur verið magnaður það sem af er leiktíð. Hann er kominn með sjö mörk í sex leikjum í Meistaradeild Evrópu, þá hefur hann skorað 13 og lagt upp 11 í aðeins 15 leikjum í ensku úrvalsdeildinni.
Fótbolti Enski boltinn Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Sjá meira