Sandra María heldur áfram að fara illa með FH Einar Kárason skrifar 31. ágúst 2024 15:53 Sandra María Jessen var áfram á skotskónum í dag. Vísir/Diego Þór/KA byrjar úrslitakeppnina vel en liðið steig stórt skref í átta að þriðja sætinu með 1-0 sigur á FH á KA-vellinum í dag. Það var auðvitað Sandra María Jessen sem skoraði sigurmarkið en hún hefur farið illa með FH-liðið í sumar. Þetta var hennar 21. mark í Bestu deild kvenna í sumar. Eftir þennan sigur þá eru norðankonur komnar með fjögurra stiga forskot á næsta lið sem er Víkingur í fjórða sætinu. FH-konur nú átta stigum á eftir. FH-konur eru örugglega búnar að fá alveg nóg af fyrirliða Þór/KA í sumar Sandra María skoraði fernu í fyrsta deildarleik liðanna í Hafnarfirði í apríl og skoraði einnig eina markið í bikarleik liðanna í júní. Sigurmarkið hennar í dag kom á 49. mínútu eftir pressu Þór/KA þar sem að Lara Ivanusa vann boltann og gaf hann inn á Söndru sem skoraði örugglega. Snædís María Jörundsdóttir skoraði að því virtist löglegt mark fyrir FH í fyrri hálfleik en að var dæmt af. Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi seinna í dag. Besta deild kvenna Þór Akureyri KA FH
Orri Steinn kynntur til leiks hjá Sociedad: Staðfest dýrasta sala í sögu FC Kaupmannahafnar Fótbolti
Gæti orðið tvöfaldur meistari með sitt hvoru liðinu: „Ekki spurning að ég er með það markmið í huga“
Orri Steinn kynntur til leiks hjá Sociedad: Staðfest dýrasta sala í sögu FC Kaupmannahafnar Fótbolti