Erlent

Rekur yfir­mann flug­hersins

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti stendur hér við F-16 þotu.
Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti stendur hér við F-16 þotu. AP Photo/Efrem Lukatsky

Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, hefur rekið yfirmann úkraínska flughersins eftir að ein af herþotum flughersins fórst. Flugmaður F-16 herþotu, sem Úkraínuher fékk nýlega að gjöf, lést þegar vélin hrapaði.

„Ég hef tekið ákvörðun um að skipta út yfirmanni flughersins... Ég verð ávallt þakklátur flugmönnunum í hernum okkar,“ sagði Selenskí í myndbandsávarpi sem hann birti í gærkvöldi. 

Í myndbandinu minntist Selenskí á nauðsyn þess að vernda líf þeirra sem vernda Úkraínu. Í ávarpinu greinir hann ekki frá ástæðunni fyrir ákvörðuninni að skipta út Mykola Oleshchuk en fólk hefur leitt af því líkum að hún byggi á hrapi F-16 þotu í fyrradag. Oleksiy Mes, flugmaður þotunnar, fórst í slysinu.

Afhending F-16 þotanna, sem Úkraína fékk að gjöf frá nokkrum Evrópuríkjum, dróst nokkuð á langinn vegna þeirrar tímafreku þjálfunar sem þarf til, bæði fyrir flugmenn og starfsmenn hersins á jörðu niðri, til að nota flugvélarnar.

Mannleg mistök eða vélarbilun

Ýjað hefur verið að því víða að flugvélin hafi verið skotin niður af Rússum en bandaríski herinn telur ólíklegt að svo sé. Líklegra sé að annað hvort hafi komið upp vélarbilun eða flugvélin hafi hrapað vegna mannlegra mistaka.

Slysið hefur fengið mjög á Úkraínumenn enda hefur rússneski herinn á sama tíma sótt mjög á og náð undir sig nokkru landsvæði í austurhluta landsins. Rússar nálgast borgina Pokrovsk óðfluga og hefur stjórn úkraínska herisins og Selenskí sjálfur sætt mikilli gagnrýni.

Rússar hafa svo mánuðum skiptir stefnt að því að ná Pokrovsk undir sitt vald. Staðsetning borgarinnar, sem er námuborg, er talin hernaðarlega mikilvæg. Síðustu mánuði hefur lítið gengið en á nokkrum vikum hafa Rússar nálgast markmiðið.

Í gær var greint frá því að rússneski herinn væri minna en 10 kílómtera frá borginni og var hún rýmd í snarhasti. Um 60 þúsund bjuggu í borginni fyrir stríð. Eins gerðu Rússar loftárás á íbúahverfi í Kharkív í gær. Minnst fimm fórust, þar á meðal barn, og fjörutíu særðust. 


Tengdar fréttir

Hefðu getað komið í veg fyrir á­rásina með leyfi banda­manna

Forseti Úkraínu segir að hægt hefði verið að koma í veg fyrir mannskæða sprengjuárás Rússa á Kharkív í dag ef vestrænir bandamenn leyfðu Úkraínumönnum að gera árásir á rússneska herflugvelli. Börn létust og særðust í árásinni.

Stúlka á leikvelli lést í sprengjuárás

Fjórtán ára gömul stelpa sem stödd var á leikvelli er meðal fimm látinna í Kharkiv borg í Úkraínu eftir sprengjuárásir Rússa. Fjörutíu til viðbótar hafa slasast vegna árásanna það sem af er degi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×