Innlent

Maðurinn sem var stunginn enn á sjúkra­húsi

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Maðurinn leitaði á bráðamóttöku með stungusár á brjóstkassa.
Maðurinn leitaði á bráðamóttöku með stungusár á brjóstkassa. Vísir

Maðurinn sem leitaði á bráðamóttöku í gær eftir að hafa verið stunginn í brjóstkassa er enn á sjúkrahúsi. Að öðru leyti liggja ekki fyrir frekari upplýsingar um líðan mannsins en málið er í rannsókn.

Þetta staðfestir Hjördís Sigurbjartsdóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í samtali við fréttastofu. Að öðru leyti kveðst hún ekki geta veitt frekari upplýsingar um málið sem er í rannsókn.

Þannig liggur ekki fyrir að svo stöddu hvers konar vopni var beitt, hvar hugsanleg árás átti sér stað eða hvort einhver liggi undir grun. Málið var meðal þess sem greint var frá í dagbók lögreglu fyrir nóttina en tólf gistu fangageymslur á höfuðborgarsvæðinu í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×