Manchester City á­fram í miklu basli eftir tap á Ítalíu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Erling Haaland komst lítið áleiðis í tapi Manchester City í kvöld.
Erling Haaland komst lítið áleiðis í tapi Manchester City í kvöld. Getty/Harry Langer/

Lærisveinar Pep Guardiola í Manchester City eru í miklum vandræðum í Meistaradeildinni þessa dagana alveg eins og heima í ensku úrvalsdeildinni. Það stefnir því í taugtrekkjandi lokaumferðir hjá Englandsmeisturunum í deildarkeppni Meistaradeildarinnar.

Juventus vann 2-0 sigur á Manchester City í Torinó í kvöld sem skilar ítalska liðinu í ágætis mál í hópi fjórtán efstu liðanna í töflunni.

Manchester hefur aðeins unnið tvo af sex leikjum sínum í Meistaradeildinni í vetur og er fyrir vikið í 22. sæti. 24 efstu liðin komast í útsláttarkeppnina.

Uppskera City í síðustu þremur Meistaradeildarleikjum er aðeins eitt stig og í þeim hefur liðið fengið á sig níu mörk.

Það þurfti dómaraúrið í fyrra markinu sem Dusan Vlahovic skoraði með skalla. Ederson Moraes reyndi að verja á marklínunni en marklínutæknin sannaði að það tókst ekki hjá honum.

Juventus komst síðan í 2-0 á 75. mínútu með marki Weston McKennie. Hann skoraði það eftir stoðsendingu frá Timothy Weah.

Manchester City mætir síðan Paris Saint-Germain í næsta leik sem fer fram eftir áramót. Það er annað stórlið í vandræðum og það gæti orðið hálfgerður úrslitaleikur um að halda sér á lífi í keppninni.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira