Innlent

Virðast hafa leyst úr á­greiningi Við­reisnar og Flokks fólksins

Bjarki Sigurðsson skrifar
Eiríkur Bergmann Einarsson, stjórnmálafræðingur.
Eiríkur Bergmann Einarsson, stjórnmálafræðingur. Vísir/Ívar

Stjórnmálafræðingur segir ljóst að valkyrjurnar svokölluðu hafi leyst stór ágreiningsmál á síðustu dögum. Þær séu staðráðnar í að mynda ríkisstjórn og aðrir flokkar hafi sætt sig við það. 

Formenn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins stefna að því að hefja ritun á stjórnarsáttmála eftir helgi. Formennirnir þrír funda saman um helgina um niðurstöður vinnuhópa sem myndaðir voru í vikunni.

Góður taktur hefur verið í viðræðum flokkanna og telur Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, að fátt geti komið í veg fyrir myndun ríkisstjórnar þessara flokka.

„Það er mikill ágreiningur á milli þessara flokka um mjög mörg mál. Sérstaklega milli Viðreisnar og Flokks fólksins. Hins vegar blasir líka við að þarna eru forystumenn sem hafa verið staðráðnir í að ná niðurstöðu og leysa úr þeim ágreiningi. Þeim virðist, að því er fréttir herma, að þeim hafi einfaldlega bara tekist það,“ segir Eiríkur. 

Aðrir flokkar séu búnir að sætta sig við að vera í stjórnarandstöðu á næsta kjörtímabili.

„Ég held að stjórnmálalífið standi einfaldlega frammi fyrir því að það eru þrír formenn með meirihluta á þingi sem eru búnir að ákveða að mynda ríkisstjórn. Það er bara staðreynd málsins,“ segir Eiríkur. 

Áhugi almennings liggur að miklu leyti í hvaða flokkur fær hvaða ráðuneyti. Flokkarnir hafa tilkynnt að ráðuneytum verði fækkað en þau eru tólf í dag. Augljósast sé að Kristrún verði forsætisráðherra.

„Hins vegar, ef maður skoðar þessa stjórnmálamenn, þá kann að vera klókara að Þorgerður Katrín verði forsætisráðherra, einfaldlega vegna hennar reynslu og hvernig hún fer fram í sinni pólitík. Hún er öflugur leiðtogi. Á meðan málefnalega er styrkur Kristrúnar Frostadóttur meiri á sviði fjármálaráðuneytisins. Þess vegna gæti þetta verið klókt. Þorgerður forsætisráðherra, Kristrún fjármálaráðherra og það yrði búið til stórt velferðarráðuneyti fyrir Ingu Sæland,“ segir Eiríkur. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×