Uppgjörið: Grótta - Haukar 21-31 | Haukar munu etja keppi við Fram í úrslitum Hjörvar Ólafsson skrifar 27. febrúar 2025 21:33 Elín Klara Þorkelsdóttir var markahæst hjá Haukum í leiknum. Vísir/Vilhelm Haukar munu mæta Fram í úrslitaleik Powerade-bikars kvenna í handbolta. Þetta varð ljóst eftir sigur Haukaliðsins gegn Gróttu í undanúrslitum keppninnar að Ásvöllum í Hafnarfirði í kvöld. Haukar eru í öðru til þriðja sæti Olís-deildarinnar en Gróttukonur sitja á botni deildarinnar. Fyrirfram var því búist við sannfærandi sigri Haukaliðsins og sú varð að lokum raunin. Grótta beit frá sér framan af leik en munurinn á liðunum kom svo í ljós þegar líða tók á leikinn og niðurstaðan þægilegur sigur Haukaliðsins. Haukar voru þó með þriggja til fjögurra marka forskot lungann úr fyrri hálfleiknum en í hálfleik leiddi Haukaliðið með þremur mörkum, 12-9. Haukar settu svo upp um einn gír eða jafnvel tvo í upphafi seinni hálfleiks og jók muninn hægt og bítandi upp í tíu mörk, 20-10, og eftir það var aldrei spurning hvoru megin sigurinn myndi lenda. Lokatölur í leiknum urðu 31-21 Haukum í vil. Powerade-bikarinn Grótta Haukar