Fleiri fréttir Dæmi um að fólk sé óvinnufært vegna síþreytu eftir kórónuveirusmit Þrjátíu sem fengu aðeins væg einkenni covid-19 eru á biðlista eftir endurhæfingu hjá Reykjalundi. Dæmi eru um að fólk sé óvinnufært vegna þreytu og vísbendingar eru um að veiran geti valdið ólæknandi sjúkdómnum síþreytu. 5.9.2020 20:30 Vann fimmtíu milljónir í Lottó Einn vann 49 milljónir í Lottóútdrætti kvöldsins. 5.9.2020 20:27
WHO býst ekki við bóluefni fyrr en á næsta ári 4.9.2020 15:04 W kraju potwierdzono sześć nowych zakażeń Nowe przypadki COVID-19 w kraju. 4.9.2020 15:00 Starfsfólk og bekkjarfélagar í sóttkví eftir að nemandi í 7. bekk smitaðist Nemandi í 7. bekk í Vallaskóla á Selfossi greindist í gær með Covid-19, sjúkdóminn sem kórónuveiran veldur. 4.9.2020 14:07 Sjá næstu 50 fréttir
Dæmi um að fólk sé óvinnufært vegna síþreytu eftir kórónuveirusmit Þrjátíu sem fengu aðeins væg einkenni covid-19 eru á biðlista eftir endurhæfingu hjá Reykjalundi. Dæmi eru um að fólk sé óvinnufært vegna þreytu og vísbendingar eru um að veiran geti valdið ólæknandi sjúkdómnum síþreytu. 5.9.2020 20:30
Ragna hafði betur í forsetaslag Ungra jafnaðarmanna Ragna Sigurðardóttir var kjörin nýr forseti Ungra jafnaðarmanna, ungliðahreyfingar Samfylkingarinnar, á landsþingi félagsins í kvöld. 5.9.2020 20:20
Með risasvepp sem bragðast eins og steik Sveppabóndi í Kópavogi segir sveppina til margra hluta nytsamlega, hvort sem er í matreiðslu, húsgagnasmíð eða skógerð. Hann ræktaði á dögunum gríðarstóran svepp sem hann segir bragðast eins og dýrindis steik. 5.9.2020 19:30
Tilgangur með „neyðarfundi“ óljós og beiðninni því hafnað Forstjóri Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) segir að tilgangur með fundi sem Krabbameinsfélag Íslands óskaði eftir í dag hafi verið óljós. Því hafi SÍ ekki talið rétt að funda með félaginu á þessu stigi málsins. 5.9.2020 18:48
Var vakandi alla nóttina fyrir slysið við Tjarnarvelli Ökumaður bíls sem lenti í hörðum árekstri á Reykjanesbraut í október 2018 hafði verið vakandi alla nóttina áður en slysið varð og sennilegt er að hann hafi sofnað við aksturinn. 5.9.2020 18:28
Kvöldfréttir Stöðvar 2 í beinni útsendingu Þrjátíu sem fengu aðeins væg einkenni Covid-19 eru á biðlista eftir endurhæfingu hjá Reykjalundi. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 5.9.2020 18:04
Segja SÍ hafa hafnað beiðni um neyðarfund í dag Þá telur félagið „grafalvarlegt“ef heilbrigðisyfirvöld hafi búið yfir mikilvægum upplýsingum um starfsemi Leitarstöðvarinnar án þess að láta félagið vita. 5.9.2020 17:30
Tafir vegna fjárrekstrar við Þverárfjallsveg Þá verður Þverárfjallsvegur að mestu lokaður milli klukkan fjögur og sjö í dag. 5.9.2020 14:32
Samræma þjónustu fyrir flóttafólk sem kemur til landsins Félagsmálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga hafa ákveðið samræma þjónustu fyrir allt flóttafólk sem hingað kemur. Félagsmálaráðherra segir að ef sveitarfélög fallist ekki á samninginn dragist verkefnið á langinn. 5.9.2020 14:30
Tilkynntur vegna gruns um annað brot í skammtímavistuninni Málið var tilkynnt til lögreglu en látið niður falla. 5.9.2020 14:23
Lokar á útsendingu frá síðustu stundum manns sem var meinað um dánaraðstoð Facebook hefur lokað fyrir beina útsendingu fransks manns sem hafði í hyggju að sýna beint frá síðustu dögum lífs síns. 5.9.2020 14:19
Rúmlega þúsund í sóttkví eftir trúarsamkomu í Noregi Yfir hundrað manns hafa smitast af kórónuveirunni í Fredrikstad og Sarpsborg í Noregi og 1.100 eru í sóttkví eftir hópsýkingu sem kom upp á svæðinu. 5.9.2020 14:01
Vill ekki draga of víðtækar ályktanir af tilraun Rússa með bóluefni Þátttakendur í fyrstu rannsókn rússneskra vísindamanna á bóluefni við kórónuveirunni mynduðu mótefni gegn veirunni og hlutu ekki alvarlegar aukaverkanir. Sóttvarnarlæknir telur þó varhugavert að draga of miklar ályktanir af rannsókninni þar sem þátttakendur voru fáir. 5.9.2020 12:56
Útinám vinsælt á Laugarvatni Mikil ánægja er með útinám, sem Bláskógaskóli á Laugarvatni er með fyrir nemendur sína. 74 börn eru í skólanum og starfsmennirnir eru um 20. 5.9.2020 12:30
Á annan tug látnir eftir gassprengingu í Dhaka Sextán manns hið minnsta eru látnir og rúmlega tuttugu slösuðust eftir að gassprenging varð við mosku í Dhaka, höfuðborg Bangladess. 5.9.2020 11:47
Einn greindist innanlands Einn greindist með virkt kórónuveirusmit innanlands síðasta sólarhringinn. Sá var ekki í sóttkví. Virkum smitum fækkar milli daga og sömuleiðis fólki í sóttkví. 5.9.2020 11:00
Breyta verkferlum eftir að starfsmaður braut gegn fatlaðri konu Málið kom upp í febrúar á síðasta ári og var maðurinn, sem er tæplega fimmtugur, dæmdur í átta mánaða fangelsi í héraðsdómi Reykjavíkur í vikunni. 5.9.2020 10:45
Skiptar skoðanir um auglýsingu fyrir Sunnudagaskólann: „Allt í lagi að Jesú sé skeggjaður og með brjóst“ Miklar umræður hafa spunnist í athugasemdakerfinu á Facebook-síðu Þjóðkirkjunnar vegna málsins og segir samskiptastjóri Þjóðkirkjunnar að viðbrögðin hafi verið eftir væntingum. Einhverjir fagni og á meðan aðrir séu reiðir. 5.9.2020 09:10
Óeirðir í Leipzig aðra nóttina í röð Óeirðir voru á götum þýsku borgarinnar Leipzig aðra nóttina í röð eftir að lögregla lét fjarlægja hústökufólk úr húsi í hverfinu Connewitz. 5.9.2020 08:20
Mun ekki kenna við skólann þetta misserið Bandaríska fræðakonan Jessica Krug, sem rataði í fréttirnar í vikunni eftir að hún játaði að hafa um árabil logið til um að vera svört, mun ekki kenna við George Washingon háskólann þetta misserið. 5.9.2020 07:54
Víða sést til sólar og hlýjast á Suðurlandi Veðurstofan spáir hægri breytilegri átt í dag en norðavestan átta til þrettán metrum á sekúndu austast á landinu fram að hádegi. 5.9.2020 07:20
Reyndi að slá strætóbílstjóra með áfengisflösku Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók um kvöldmatarleytið í gær ofurölvi konu í strætisvagni vegna gruns um líkamsárás og fleira. 5.9.2020 07:13
Trump á í vök að verjast vegna meintra ummæla um fallna hermenn Joe Biden, forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins, er á meðal þeirra sem hafa deilt hart á Donald Trump Bandaríkjaforseta, vegna ummæla sem forsetinn á að hafa látið falla um að fallnir hermenn væru „minnipokamenn“ og „flón“. 4.9.2020 23:53
Leggur til að atvinnulausar konur skrifi upp á hlutabréfakaup með tíðablóði Atvinnulausar konur ættu að skrifa upp á það með tíðablóði að þær kaupi hlutabréf í Icelandair gegn því að fá hærri atvinnuleysisbætur, að sögn formanns Eflingar. 4.9.2020 23:04
Samþykktu ríkisábyrgð Icelandair og luku þingstubbi Alþingi samþykkti frumvarp fjármálaráðherra um ríkisábyrgð á lánalínum til Icelandair áður en stuttu síðsumarsþingi var slitið í kvöld. Áður samþykkti þingheimur fjáraukalög. 4.9.2020 20:52
Rússneska bóluefnið gaf góða raun í tilraunum Allir þátttakendur í frumtilraunum með bóluefni sem rússnesk stjórnvöld samþykktu í síðasta mánuði mynduðu mótefni gegn Covid-19 án alvarlegra aukaverkana samkvæmt niðurstöðum sem breska læknaritið Lancet birti í dag. 4.9.2020 20:13
109 þúsund fjár slátrað á Selfossi Haustslátrun hjá Sláturfélagi Suðurlands á Selfoss hófst í dag en reiknað er með að slátra um 109 þúsund fjár á næstu tveimur mánuðum í sláturtíðinni. 4.9.2020 19:35
Fyrsta haustlægðin: Hafa séð það svartara Það snjóaði víða á Norðausturlandi í nótt og í morgun eftir að fyrsta haustlægðin lét til sín taka. Bændur í Þingeyjarsveit voru smeykir við veðrið sem þó gekk yfir án teljandi vandræða. 4.9.2020 19:30
Ríkisábyrgð á lánum til Icelandair verður að lögum í kvöld Icelandair stefnir á hlutafjárútboð í þessum mánuði upp á allt að 23 milljarða. Eitt af skilyrðum þess að mati félagsins var að ríkið veitti félaginu ábyrgð á lánalínur. Frumvarp um ríkisábyrgðina verður að lögum í kvöld. 4.9.2020 19:20
Segir varnarorð sín vegna Krabbameinsfélagsins rætast Fyrrverandi yfirlæknir hjá Krabbameinsfélaginu segir varnaðarorð sín til fjölda ára rætast í mistökum við skimanir hjá félaginu. Reksturinn sé háður sérhagsmunum og fjármagn flæði milli sviða sem bitni sárlega á lífi og heilsu kvenna. 4.9.2020 19:01
Hvetur til uppbyggingar á hagkvæmu húsnæði samhliða hlutdeildarlánum Félagsmálaráðherra telur að framboð á nýju húsnæði aukist samhliða aukningu á hlutdeildarlánum ríkisins. Lánin muni því ekki valda hækkun á fasteignamarkaði. 4.9.2020 19:00
Halli ríkissjóðs tugum milljörðum meiri en reiknað var með Ríkissjóður var rekinn með 115 milljarða króna halla á fyrri helmingi ársins og var það 37 milljarða króna lakari afkoma en reiknað var með. 4.9.2020 18:28
Krefjast þess að Rússar upplýsi um taugaeitursáætlun sína Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO) krefst þess að rússnesk stjórnvöld veiti alþjóðlegum eftirlitsmönnum aðgang að upplýsingum um taugaeitrið novichok sem talið er að hafi verið notað til að eitra fyrir rússneska stjórnarandstæðingnum Alexei Navalní. 4.9.2020 18:05
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Fyrrverandi yfirlæknir hjá Krabbameinsfélaginu segir varnaðarorð rætast með mistökum við skimanir hjá félaginu. Rætt verður við hann í kvöldfréttum Stöðvar 2 sem hefjast klukkan 18:30. 4.9.2020 18:00
„Það er mjög ódýrt að ætla að taka starfsmann fyrir í þessu máli“ Sævar Þór Jónsson, lögmaður konu sem hyggur á skaðabótamál gegn Krabbameinsfélaginu vegna mistaka við sýnatöku, segir að umbjóðanda sínum þyki viðbrögð stjórnenda Krabbameinsfélagsins gagnrýnisverð. Það sé ekki sanngjarnt að varpa sökinni í heild á einn tiltekinn starfsmann í ljósi þess að ýmislegt bendi til þess að eftirliti hafi verið ábótavant. 4.9.2020 17:52
Harmar alvarleg og afdrifarík mistök Krabbameinsfélagsins „Ég harma þau og hugur minn er hjá þeim sem málið snertir á einhvern hátt og eiga um sárt að binda vegna þess,“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra. 4.9.2020 16:32
Troje pracowników Fossvogsskóli wysłano na kwarantannę Pracownicy Fossvogsskóli trafili na kwarantannę 4.9.2020 15:46
Samþykktu lagabreytingar til að mæta efnahagsáhrifum veirunnar Alþingi samþykkti á þriðja tímanum breytingar á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveirunnar. 4.9.2020 15:39
Óttast stærðarinnar umhverfisslys í Indlandshafi Verið er að draga olíuflutningaskips sem stendur í ljósum logum frá ströndum Srí Lanka. Óttast er að um 270 þúsund tonn af hráolíu muni enda í Indlandshafi, sem yrði stærðarinnar umhverfisslys. Sjóher Srí Lanka og strandgæsla Indlands reyna að slökkva eldinn. 4.9.2020 15:39
Zima w Hveragerði będzie bez basenu Z powodu remontu całą zimę zamknięty będzie basen Laugaskarð w Hveragerði. 4.9.2020 15:36
Í stað þeirra hundrað sem fóru bættust sex hundruð í hópinn Instagram-stjarnan grætur krókódílstárum þá sem fóru. 4.9.2020 15:16
Starfsfólk og bekkjarfélagar í sóttkví eftir að nemandi í 7. bekk smitaðist Nemandi í 7. bekk í Vallaskóla á Selfossi greindist í gær með Covid-19, sjúkdóminn sem kórónuveiran veldur. 4.9.2020 14:07