Fleiri fréttir Ostatnia okazja na zbiory jagód? Nad Islandię nadciąga prawdziwie jesienna pogoda. 12.9.2020 18:14 Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í beinni útsendingu klukkan 18:30. 12.9.2020 18:04
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í beinni útsendingu klukkan 18:30. 11.9.2020 18:00 Centrum miasta z deptakami do 1 maja Rada Planowania i Transportu chce przedłużyć deptaki w mieście do 1 maja. 11.9.2020 16:55 Stjórnvöld nýti tímann til að meta ýmsar útfærslur af skimunum á landamærum Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, telur að stjórnvöld eigi að nýta næstu vikur til þess að meta ýmsar útfærslur af skimunum á landamærunum. 11.9.2020 16:54 Evrópulönd taka við 400 börnum frá Moria Um fjögur hundruð börnum sem bjuggu í Moria-flóttamannabúðunum á grísku eyjunni Lesbos verður fundið hæli annars staðar í Evrópu eftir að búðirnar brunnu því sem næst til grunna í tveimur eldsvoðum í vikunni. 11.9.2020 16:37 Samsæriskenningar flæða yfir neyðarlínu í gróðureldunum Starfsmenn neyðarlínu í Oregon í Bandaríkjunum hafa ekki undan að svara símtölum frá fólki með samsæriskenningar um að svonefndir andfasistar hafi kveikt gríðarlega gróðurelda sem þar geisa. 11.9.2020 15:55 Sjö ára fangelsi staðfest í einu stærsta fíkniefnamáli Íslandssögunnar Landsréttur staðfesti í dag sjö ára fangelsisdóm yfir Þjóðverjanum Heinz Bernhard Sommer fyrir smygl á tæpum fjörutíu kílóum á amfetamíni og fimm kílóum af kókaíni. 11.9.2020 15:29 Faraldurinn setur svip sinn á minningarathafnir um hryðjuverkin 11. september Minningarathafnir um hryðjuverkaárásirnar 11. september í Bandaríkjunum hafa farið fram með breyttu sniði í ár vegna kórónuveirufaraldursins sem geisar enn. 11.9.2020 15:14 Barnamálaráðherra treystir dómsmálaráðherra til að vinna fram úr máli egypsku fjölskyldunnar Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, kveðst treysta Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, dómsmálaráðherra, mjög vel til þess að vinna fram úr máli egypskrar barnafjölskyldu sem vísa á úr landi í næstu viku. 11.9.2020 14:51 Sjá næstu 50 fréttir
Handtekin fyrir líkamsárás og eignaspjöll Konan er sögð hafa verið í annarlegu ástandi. 12.9.2020 17:21
Gulu vestin mótmæla á ný Mótmælendur sem jafnan eru kenndir við gul vesti sem þeir klæðast sneru aftur út á götur Parísar eftir að þeir gerðu hlé á mótmælum vegna kórónuveirufaraldursins. 12.9.2020 16:59
„Það eru aldrei mistök að upphefja fjölbreytileika samfélagsins“ Auglýsing Þjóðkirkjunnar fyrir sunnudagaskólann sem vakið hefur mikla athygli undanfarið þar sem á henni má sjá Jesú með brjóst hefur verið tekin út af heimasíðu Kirkjunnar. 12.9.2020 16:15
Segir berin enn bera sig vel Berjaspretta hefur verið með miklum ágætum þetta sumarið einkum á Vestfjörðum. Enn þá er hægt að fara í berjamó í þeim landshlutum þar sem ekki hefur fryst. 12.9.2020 14:55
Breska lögreglan: „Hafnið hátíðahöldum“ Lögreglan í Bretlandi hefur varað almenning við því að nýta líðandi helgi til hátíðarhalda og partístands þó að hertar reglur um samkomutakmarkanir taki ekki gildi fyrr en á mánudag. 12.9.2020 14:49
AstraZeneca hefur prófanir á bóluefninu á ný Lyfjaframleiðandinn AstraZeneca hefur fengið leyfi frá breskum heilbrigðisyfirvöldum til að halda áfram tilraunum sínum með bóluefni gegn Covid-19 sjúkdómnum. 12.9.2020 14:40
Yfir fjögur þúsund tóku þátt í fréttaljósmyndakeppni á heimsvísu Ljósmyndasýningin World Press Photo opnaði í gær í Kringlunni. World Press Photo stendur fyrir stærstu og veglegustu samkeppni heims á sviði fréttaljósmynda á hverju ári og í þetta skipti tóku yfir fjögur þúsund atvinnuljósmyndarar þátt í keppninni. 12.9.2020 14:10
Lögreglan á Lesbos beitir farendur táragasi Lögreglan á grísku eyjunni Lesbos beitti farendur úr Moria-flóttamannabúðunum sem voru við mótmæli táragasi í dag. 12.9.2020 14:06
Allir sem sinna heilbrigðisþjónustu þurfa að skila gæðauppgjöri á næsta ári Landlæknisembættið hyggst efla eftirlit með þeim sem veita heilbrigðisþjónustu hér á landi á næsta ári en í heild eru það um 3100 aðilar. Stofnunin hefur síðustu þrjú ár gert innan við tíu úttektir á heilbrigðisþjónustu og kórónuveirufaraldurinn hefur sett strik í reikninginn á þessu ári. 12.9.2020 14:06
Friðarviðræður Afganistan og Talíbana hafnar Friðarviðræður milli Afganistan og Talíbana hófust í morgun í Katar eftir margra mánaða bið. Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir viðræðurnar sögulegar en hann er nú á leið til Doha í Katar til að vera viðstaddur opnunarhátíðar viðræðnanna. 12.9.2020 13:12
Gagnrýnir myndbirtingu af fáklæddum Foden og segir karla eiga skilið sömu virðingu og konur Hödd Vilhjálmsdóttir almannatengill telur að viðbrögð fjölmiðla og almennings hefðu verið önnur ef kynjunum í máli ensku landsliðsmannanna og kvennanna tveggja sem hittu þá á Hóteli Sögu hefði verið snúið við. 12.9.2020 12:46
Ganga enn út frá því að mótefni dofni ekki innan fjögurra mánaða Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að fréttir af niðurstöðum erlendra rannsókna, sem benda til þess að mótefni við kórónuveirunni hjá einstaklingum sem hafa veikst dofni eftir nokkra mánuði, ekki breyta afstöðu sóttvarnayfirvalda hér á landi. 12.9.2020 12:11
Tvö sambærileg mál fari á borð landlæknisembættisins Lögmaður konu sem ætlar í skaðabótamál við Krabbameinsfélag Íslands vegna mistaka við sýnatöku mun eftir helgi senda gögn í tveimur málum sem hann telur sambærileg til landlæknisembættisins. Um er að ræða mál tveggja kvenna sem látist hafa af völdum leghálskrabbameins. 12.9.2020 11:30
Upplýsa þurfi konur af erlendum uppruna um tilvist Kvennaathvarfsins Átta af tíu konum af erlendum uppruna sem dvöldu í Kvennaathvarfinu og tóku þátt í rannsókn á vegum athvarfsins vissu ekki af tilvist þess eða að þær gætu leitað þangað vegna heimilisofbeldis. 12.9.2020 11:24
Einn greindist í gær Einn einstaklingur greindist með kórónuveiruna í gær og var í sóttkví við greiningu. Þá greindist einn á landamærunum, en viðkomandi bíður mótefnamælingar. 12.9.2020 11:12
Sjúkraflutningamenn tóku á móti barni sem flýtti sér í heiminn Sjúkraflutningarmenn aðstoðuðu í nótt lítinn dreng við að koma í heiminn en móðirin sem býr úti á landi hafði komið sér til Reykjavíkur til að eiga barnið. 12.9.2020 11:00
Ráðgjafar Trump gerðu tilraunir til að breyta skýrslum um framgang faraldursins Samskiptaráðgjafar í heilbrigðisráðuneyti Bandaríkjanna, sem skipaðir voru af Donald Trump Bandaríkjaforseta, hafa óskað eftir því að fá að fara yfir og gera breytingar á vikulegum skýrslum Sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna um þróun kórónuveirufaraldursins. 12.9.2020 10:04
Sprittbrúsum stolið af Heilbrigðisstofnun Suðurlands Sprittbrúsum hefur verið stolið af og til af Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi eftir að kórónaveiran kom upp. Forstjóri stofnunarinnar segir það mjög leitt en það sé fórnarkostnaðurinn, sem stofnunin taki á sig til að geta tryggt sóttvarnir. 12.9.2020 08:14
Tuga saknað vegna eldanna í Oregon Yfirvöld í Oregon-ríki í Bandaríkjunum segja að tuga fólks sé saknað vegna skógar- og gróðureldanna sem loga glatt í ríkinu. Eldar loga einnig í fleiri ríkjum, en hvað mest í Kaliforníu og Washington. 12.9.2020 08:11
Enn tækifæri til berjatínslu Ekki hefur frosið enn á mörgum vinsælum berjastöðum, samkvæmt Veðurstofunni. 12.9.2020 07:50
Handteknir grunaðir um þjófnað og að kveikja í bíl Tveir 18 ára menn voru handteknir í austurbæ Reykjavíkurborgar á þriðja tímanum í nótt. 12.9.2020 07:41
Flugfreyja smituð og fimm aðrar í sóttkví Flugfreyja hjá færeyska flugfélaginu Atlantic Airways greindist með kórónuveiruna. 11.9.2020 23:40
NASA leitar að fyrirtækjum til að sækja tunglgrjót Geimvísindastofnun Bandaríkjanna, NASA, leitar nú að einkafyrirtæki til þess að fara til tunglsins og sækja jarðveg og tunglgrjót til frekari rannsókna. 11.9.2020 23:11
Engar myndavélar á vegum lögreglunnar þar sem líkamsárásin átti sér stað Áætlað er að fjölga eftirlitsmyndavélum í miðborginni og verður það tekið í ákveðnum skrefum. 11.9.2020 23:00
Grænlendingar kynna olíuleit norðan Íslands Grænlensk stjórnvöld hafa kynnt umhverfismat vegna fyrirhugaðrar olíuleitar við Austur-Grænland, beint norður af Íslandi. Matsskýrslan fjallar meðal annars um áhrif olíuleka á lífríki sjávar milli Íslands og Grænlands. 11.9.2020 22:35
Barein fjórða arabaríkið sem nær friðarsamkomulagi við Ísrael Barein varð í dag fjórða arbaríkið til þess að viðurkenna Ísraelsríki. 11.9.2020 22:28
Samþykktu fjármögnun fjarskiptasæstrengs Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að tryggja fjármögnun nýs fjarskiptasæstrengs milli Íslands og Írlands. 11.9.2020 21:46
Staða barna af erlendum uppruna í Kvennaathvarfinu slæm Stór hluti barna af erlendum uppruna sem dvalið hefur í Kvennaathvarfinu undanfarin tæp tvö ár hefur orðið fyrir líkamlegu ofbeldi á heimili sínu, flest alla sína ævi. Þá er félagsleg staða þeirra slæm samkvæmt rannsókn athvarfsins. 11.9.2020 21:31
Þurfa reglulega að bregðast við vegna dreifingu kláms Ekki er talin þörf á að bregðast við því myndefni sem birt er á vefsíðunni Only Fans. Það sé kynferðislegt en ekki klám. 11.9.2020 20:30
Núverandi ráðstafanir „vonlausar fyrir ferðaþjónustuna“ Bjarnheiður Hallsdóttir segir mikilvægt að gera ferðamönnum kleift að koma hingað til lands með minna íþyngjandi hætti. 11.9.2020 20:04
Segir að verið sé að brjóta á grundvallarmannréttindum barnanna Skólastjóri Háaleitisskóla segist ekki geta hugsað til þess að þremur börnum í skólanum verði vísað úr landi í næstu viku. Verið sé að brjóta á grundvallarmannréttindum barnanna og hann geti ekki setið hjá þegar slíkt er um það bil að eiga sér stað. 11.9.2020 20:01
Stjórnvöld skoða sérstaka útfærslu á ferðamennsku Stjórvöld hafa framlengt sóttvarnaaðgerðir við landamærin og segja þær hafa skilað árangri þegar kórónuveiran sé í sókn í nágrannalöndum. Hins vegar sé verið að skoða leiðir til einfaldrar ferðamennsku með sóttvarnaráðstöfunum. 11.9.2020 19:20
Tónlistarmönnum og öðrum listamönnum verða tryggðar bætur Stærstur hluti tónlistarmanna hefur verið án launa í sjö mánuði. Menntamálaráðherra kynnir aðgerðir í næstu viku sem eiga að bæta þeim og öðrum listamönnum skaðan. 11.9.2020 19:20
Sérsveit og lögregla kölluð til vegna vopnaðs manns Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn á sjöunda tímanum í kvöld eftir umfangsmiklar aðgerðir lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og sérsveitar ríkislögreglustjóra. 11.9.2020 19:03
Tvö ár langur tími í lífi ungra barna Salvör Nordal, umboðsmaður barna, segir nauðsynlegt að meta hvað sé barni fyrir bestu þegar kemur að umsóknum barnafjölskyldna um alþjóðlega vernd. 11.9.2020 18:32
Centrum miasta z deptakami do 1 maja Rada Planowania i Transportu chce przedłużyć deptaki w mieście do 1 maja. 11.9.2020 16:55
Stjórnvöld nýti tímann til að meta ýmsar útfærslur af skimunum á landamærum Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, telur að stjórnvöld eigi að nýta næstu vikur til þess að meta ýmsar útfærslur af skimunum á landamærunum. 11.9.2020 16:54
Evrópulönd taka við 400 börnum frá Moria Um fjögur hundruð börnum sem bjuggu í Moria-flóttamannabúðunum á grísku eyjunni Lesbos verður fundið hæli annars staðar í Evrópu eftir að búðirnar brunnu því sem næst til grunna í tveimur eldsvoðum í vikunni. 11.9.2020 16:37
Samsæriskenningar flæða yfir neyðarlínu í gróðureldunum Starfsmenn neyðarlínu í Oregon í Bandaríkjunum hafa ekki undan að svara símtölum frá fólki með samsæriskenningar um að svonefndir andfasistar hafi kveikt gríðarlega gróðurelda sem þar geisa. 11.9.2020 15:55
Sjö ára fangelsi staðfest í einu stærsta fíkniefnamáli Íslandssögunnar Landsréttur staðfesti í dag sjö ára fangelsisdóm yfir Þjóðverjanum Heinz Bernhard Sommer fyrir smygl á tæpum fjörutíu kílóum á amfetamíni og fimm kílóum af kókaíni. 11.9.2020 15:29
Faraldurinn setur svip sinn á minningarathafnir um hryðjuverkin 11. september Minningarathafnir um hryðjuverkaárásirnar 11. september í Bandaríkjunum hafa farið fram með breyttu sniði í ár vegna kórónuveirufaraldursins sem geisar enn. 11.9.2020 15:14
Barnamálaráðherra treystir dómsmálaráðherra til að vinna fram úr máli egypsku fjölskyldunnar Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, kveðst treysta Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, dómsmálaráðherra, mjög vel til þess að vinna fram úr máli egypskrar barnafjölskyldu sem vísa á úr landi í næstu viku. 11.9.2020 14:51