Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Nemendur flykkjast heim að Hólum að læra fiskeldi Sprenging hefur orðið í fjölda nemenda í fiskeldisnámi við Háskólann á Hólum og stunda núna um áttatíu manns nám í faginu. Samtímis fer þar fram rannsóknar- og kynbótastarf í fiskeldi. 20.9.2022 23:13
Neita að reyna að sanna hvort Trump hafi svipt leynd af gögnunum Alríkisdómari sem fenginn var til að fara yfir opinber og leynileg gögn sem starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) tóku af Donald Trump, fyrrverandi forseta, í ágúst þrýsti á dómara Trumps í dómsal í dag. Hann vildi að þeir færðu sannanir fyrir því að Trump hefði svipt leynd af gögnum sem hann tók með sér úr Hvíta húsinu og hvaða gögn um væri að ræða. 20.9.2022 22:53
Frestuðu ávarpi Pútíns um innlimun til morguns Vladimír Pútín, forseti Rússlands, ætlaði að ávarpa þjóðina í kvöld en svo virðist sem hætt hafi verið við að birta ávarpið. Fyrst átti að ávarpið, sem ku hafa verið tekið upp fyrr í dag, klukkan fimm að íslenskum tíma. 20.9.2022 22:30
„Ég skal axla ábyrgð á þessu máli“ Þingmaður í stjórnarandstöðunni ætlar að taka ábyrgð í máli sem enginn annar virðist vilja taka ábyrgð á. 20.9.2022 21:30
Engin vindmylla eftir í Þykkvabæ Eftirstandandi vindmyllan í Þykkvabæ var felld í dag, níu mánuðum eftir að fyrri myllan var sprengd niður. Verkið gekk mun hraðar fyrir sig en síðast enda ákveðið að hvíla sprengjurnar í þetta skiptið. 20.9.2022 21:25
Rannsaka hreppaflutninga vonarstjörnu repúblikana á hælisleitendum Lögreglustjóri í Texas ætlar að kanna hvort að lög hafi verið brotin þegar ríkisstjóri Flórída lét fljúga tugum venesúelskra hælisleitenda þvert yfir landið til Massachusetts í síðustu viku. Vísbendingar hafa komið fram um að fólkið hafi verið beitt blekkingum um hvað biði þess þar. 20.9.2022 21:03
Evrópumálin varði mikilvæga hagsmuni almennings Samfylkingin hefur aftur sett Evrópumálin í forgang með því að setja á dagskrá Alþingis umræðu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar segir málin varða mikilvæga hagsmuni almennings og fyrirtækja í landinu. Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir Evrópumálin ekki vera forgangsmál. 20.9.2022 20:13
Segir offituaðgerðir geta komið í veg fyrir sjúkdóma eins og krabbamein Gríðarleg fjölgun hefur orðið á magaerma-og hjáveituaðgerðum hér á landi síðustu tvö ár. Langflestar eru framkvæmdar á einkastofu. Kviðarholssskurðlæknir á Klíníkinni segir slíkar aðgerðir geta komið í veg fyrir alvarlega sjúkdóma eins og krabbamein. Úrelt sé að segja of feitu fólki að borða minna og hreyfa sig meira. 20.9.2022 19:31
„Kannski mættu þeir sem fjölluðu um málið læra eitthvað“ Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra svarar ummælum Þórðar Snæs Júlíussonar og segist furða sig á skrifum Þórðar. Hann segist hvorki vera í liði með lögreglunni né blaðamönnum heldur lögum landsins. 20.9.2022 17:59
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum ræðum við við kviðarholsskurðlækni um gríðarlega fjölgun magaerma- og hjáveituaðgerða hjá Íslendingum á síðustu tveimur árum. Um þriðjungur Íslendinga er of feitur í dag. Læknirinn segir úrelt að segja feitu fólki að borða minna og hreyfa sig meira. 20.9.2022 17:59
Vilja stækka Hundavinahópinn: „Þeim mun fleiri sem við náum til, því betra er það fyrir okkar skjólstæðinga“ Hundavinir Rauða krossins leita að sjálfboðaliðum sem vilja bætast í starfið en þegar eru 42 virk pör sem sinna heimsóknum til einstaklinga og stofnana. Verkefnastjóri segir alltaf þörf á fleiri sjálfboðaliðum og eru allir og hundar þeirra, stórir sem smáir, velkomnir. 20.9.2022 17:32
MDE skeri úr um lögmæti aðgerða lögreglunnar á Norðurlandi eystra Aðalsteinn Kjartansson, blaðamaður á Stundinni, hefur falið Gunnari Inga Jóhannssyni lögmanni sínum, að óska eftir því að Mannréttindadómstóll Evrópu skeri úr um lögmæti framgöngu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra. 20.9.2022 17:30
Stórskotaliðið í Covid kemur saman á ný til að heiðra Þórólf Þríeykið verður sameinað á ný á málþingi til heiðurs Þórólfs Guðnasonar, fyrrverandi sóttvarnalæknis, í vikunni. Heilbrigðisráðherra, forstjóri Landspítala, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar og nýr sóttvarnalæknir verða einnig með erindi þar sem litið verður yfir farinn veg. 20.9.2022 15:54
Tjakkurinn gerði gæfumuninn þegar seinni vindmyllan var felld Seinni vindmyllan í Þykkvabæ féll til jarðar á fjórða tímanum í dag eftir að sérfræðingar Hringrásar skáru hana í sundur. Tjakkur gerði gæfumuninn í þetta skipti. 20.9.2022 15:45
Ætla sér að kjósa um innlimun í Rússland Embættismenn í hersetnum héruðum í austan- og sunnanverðri Úkraínu ætla sér að halda atkvæðagreiðslu um að þau verði hluti af Rússlandi um helgina. Fyrrverandi forseti Rússlands segir innlimunina nauðsynlega til þess að hægt sé að beita öllum brögðum til að verja svæðin. 20.9.2022 14:54
Gramsverslun á Þingeyri: „ Vonumst til að sögunni verði sómi gerður“ „Þetta er fallegt hús á sem á sína merku sögu. Við vonumst til að sögunni verði sómi gerður.“ 20.9.2022 14:54
Beiðni Erlu Bolladóttur um endurupptöku synjað Endurupptökudómstóll hafnaði beiðni Erlu Bolladóttur um endurupptöku á Hæstaréttardómi frá árinu 1980 þar sem Erla var dæmd í þriggja ára fangelsi fyrir rangar sakargiftir í tengslum við Guðmundar- og Geirfinnsmálin. Dómstóllinn féllst ekki á það að Erla hafi verið beitt þrýstingi, líkt og hún hélt fram. 20.9.2022 14:29
Pożar na dachu hali Lava Show Zeszłej nocy na dachu hali Lava Show na ulicy Fiskislóð w Reykjaviku wybuchł pożar. Pożar nie był duży, ale z miejsca gdzie wybuchł wydobywało się bardzo dużo dymu i straż pożarna musiała rozebrać dach przy kominie. 20.9.2022 13:55
Oddný tjáir sig ekki um afsökunarbeiðni Magnúsar Orra Magnús Orri Marínarson Schram, fyrrverandi alþingismaður, hefur slegið í gegn meðal Sjálfstæðismanna sem kunna sér vart læti yfir afsökunarbeiðni hans vegna hlutdeildar hans í Landsdómsmálinu. 20.9.2022 13:49
Trzech podejrzanych o wybuchy w Selfoss Policja w południowej Islandii aresztowała trzy osoby podejrzane o zdetonowanie bomb w Selfoss. 20.9.2022 13:40
Telur hótanir Hjörleifs settar fram í „geðshræringu og vanlíðan“ Boðað hefur verið til stjórnarfundar Flokks fólksins síðdegis til að reyna að ráða fram úr vanda flokksins sem hverfist um fulltrúa hans á Akureyri. Sjálftitlaður „guðfaðir listans“ fyrir norðan hótar meiðyrðastefnu á hendur þremur konum flokksins, formanni hans og varaformanni. 20.9.2022 12:13
Þórður Snær segir rannsókn Páleyjar ráðast af hagsmunum Samherja Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, hefur birt aðsenda grein á fréttavef sínum, þar sem hann setur fram alvarlegar ásakanir á hendur Páley Borgþórsdóttur og lögregluembættinu á Norðurlandi eystra. 20.9.2022 12:13
Hádegisfréttir Bylgjunnar Eitt stærsta fíkniefnamál Íslandssögunnar, nýjustu vendingar í málum Flokks fólksins, aðför lögreglu gegn blaðamönnum og vindmyllufellingar verða meðal umfjöllunarefna í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. 20.9.2022 11:50
Hin vindmyllan í Þykkvabæ felld: „Við eigum von á að það gangi betur en síðast“ Vindmylla í Þykkvabæ verður felld í dag í heilu lagi. Einn þeirra sem mun sjá um niðurskurð hennar segir að í þetta sinn verði myllan felld á réttan hátt, ekki eins og þegar hin vindmyllan í Þykkvabæ var felld í vetur með miklum vandræðum. 20.9.2022 11:05
Trump skipar Íslandi í flokk þriðja heims ríkja Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, gagnrýnir að Bandaríkjaforseta hafi verið skipað á bekk með þriðja heims leiðtogum við útför Bretadrottningar í gær. Bandarísku forsetahjónin sátu rétt fyrir aftan þau íslensku í kirkjunni. Trump telur að Bandaríkin hafi mátt þola vanvirðu sökum þessa. 20.9.2022 10:36
Karlagrobb Hjörleifs einungis brandari Jón Hjaltason segir allar ásakanir um andlegt ofbeldi sem konur í forystu Flokks fólksins hafa sakað hann og Brynjólf Ingvarsson um vera hreinan uppspuna. Hann segir konurnar fara ítrekað með rangfærslur. Þá segir hann kynferðislega áreitni Hjörleifs Hallgríms Herbertssonar hafa verið brandara. 20.9.2022 09:47
Foreldrar Madeleine McCann töpuðu hjá Mannréttindadómstólnum Mannréttindadómstóll Evrópu komst að þeirri niðurstöðu að foreldrar Madeleine McCann hafi fengið réttláta málsmeðferð í meiðyrðamáli sem þeir höfðuðu gegn lögreglumanni í Portúgal. 20.9.2022 09:21
„Við þurfum að gera miklu betur“ Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir að flugfélagið þurfi einfaldlega að gera miklu betur í innanlandsfluginu en raunin hefur verið að undanförnu, til að ná upp trausti á innanlandsflugið. 20.9.2022 09:12
Geimmiðstöð skemmdist þegar Nanmadol gekk yfir Japan Tveir eru látnir og yfir hundrað slasaðir eftir að hitabeltislægðin Nanmadol gekk yfir Japan. Samgöngur eru í lamasessi og víða er rafmagnslaust eftir óveðrið. Þá urðu skemmdir á eldflaugaverksmiðju japönsku geimstofnunarinnar JAXA. 20.9.2022 08:50
Hákon krónprins kemur til Íslands í október Hákon, krónprins Noregs, mun heimsækja Ísland í næsta mánuði þar sem hann mun meðal annars sækja hina árlegu ráðstefnu Hringborðs norðurslóða. 20.9.2022 08:40
Vilja flytja Útlendingastofnun til Reykjanesbæjar Fjórir þingmenn Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar um að starfsemi Útlendingastofnunar verði flutt til Reykjanesbæjar. Vilja þingmennirnir með þessu fjölga sérfræðistörfum og hlutfall háskólamenntaðra á svæðinu og segja að hentugt væri að hafa stofnunina staðsetta í nánd við Keflavíkurflugvöll. 20.9.2022 08:09
Lögreglubíll varð fyrir lest með handtekna konu í aftursætinu Kona sem lögregluþjónar í Colorado í Bandaríkjunum handtóku á föstudaginn slasaðist þegar lögreglubíll sem hún var í varð fyrir lest. Hún var ein í bílnum en lögregluþjónarnir höfðu lagt honum á lestarteinum, án þess að taka eftir því. 20.9.2022 08:00
Andlát Amini „óheppilegt atvik“ Lögreglan í Íran segir að dauði 22 ára konu sem lést í haldi lögreglu sé „óheppilegt atvik“. Lögreglan neitar að hafa beitt hana ofbeldi er hún var í haldi og segist hafa gert allt sem hægt var til að bjarga lífi hennar. 20.9.2022 07:56
Í áttunda neðsta sæti yfir fjölda látinna í umferðinni Ísland skipar nú áttunda neðsta sætið á lista yfir banaslysa í umferðinni í Evrópu eftir að hafa skipað það tíunda neðsta síðustu fjögur árin. 20.9.2022 07:40
Kallar konurnar „upphlaupsmanneskjur“ og „svikakvensur“ Hjörleifur Hallgríms Herbertsson, sem kallar sig „guðföður“ framboðslista Flokks fólksins á Akureyri, hefur ritað aðsenda grein á Akureyri.net þar sem hann svarar þremur konum á listanum sem hafa sakað karlmenn í forystunni á Akureyri um lítilsvirðingu, rógburð og áreiti. 20.9.2022 07:22
Rigning með köflum og áfram hlýtt Veðurstofan gerir ráð fyrir suðlægri átt í dag, yfirleitt á bilinu þrír til átta metrar á sekúndu, en að tíu metrum á sekúndu við suður- og vesturströndina. Má búst við rigningu með köflum, en bjartviðri austanlands fram á kvöld. 20.9.2022 07:08
Herinn í Mjanmar skaut sex skólabörn til bana Sex börn eru látin og sautján slösuð eftir að þyrla mjanmarska hersins skaut á skóla á Sagaing-svæðinu á föstudaginn. Herinn heldur því fram að uppreisnarmenn hafi notað skólann til að ráðast á hermenn. 20.9.2022 07:07
Stefnt á umhverfisvænasta bílaþvott sem völ er á Löður rekur 15 bílaþvottastöðvar á Íslandi og á hverju ári fara um 250 þúsund bílar í gegnum þvott á stöðvum fyrirtækisins. Í bílaþvotti þarf að nota sápur og önnur hreinsiefni ásamt því að nota mikið af vatni. 20.9.2022 07:01
Eldur kom upp í þaki Lava Show Eldur kom upp í þaki húsnæðis Lava Show við Fiskislóð í Reykjavík í nótt. Eldurinn sjálfur var ekki mikill en töluverður reykur kom frá honum og þurfti slökkviliðið að rífa svæðið í kringum strompinn. 20.9.2022 06:46
Var ekki í öryggisbelti þegar hann fór útaf veginum og lést Ökumaðurinn sem lést þegar hann missti stjórn á bifreið sinni á bröttum vegi nærri Látravík var ekki í öryggisbelti þegar slysið átti sér stað. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa. 20.9.2022 06:38
Grunsamlegir menn reyndust vera í leit að ánamöðkum Lögreglunni í Hafnarfirði barst tilkynning um grunsamlegar mannaferðir klukkan rétt rúmlega tíu í gærkvöldi. Lögreglan hafði uppi á mönnunum en þeir reyndust einungis vera í leit að ánamöðkum. 20.9.2022 06:28
Borðaði þrjú kíló af avókadó í þrjátíu klukkutíma hlaupi Sigurvegari Bakgarðs náttúruhlaupa um helgina borðaði um þrjú kíló af Avocado á þeim þrjátíu klukkutímum sem hlaupið stóð yfir. Hann hljóp fjórum sinnum lengra en hann hefur nokkurn tímann gert. 19.9.2022 23:00
Sleppt úr fangelsi átta árum eftir útgáfu Serial Morðdómi Adnan Syed hefur verið snúið við af dómara eftir að saksóknarar fundu nýjar vísbendingar sem tengjast morði fyrrverandi kærustu hans. Mál Syeds varð frægt um heiminn allan eftir að fjallað var um það í hlaðvarpinu Serial sem birt var árið 2014. 19.9.2022 22:51
Segjast hafa Húnvetninga í vinnu til að halda friðinn Húnvetningar sjá fram á miklar samgöngubætur með fimmtán kílómetra vegagerð í Refasveit. Þetta er stærsta verk sem unnið er að á Norðurlandi vestra um þessar mundir, upp á einn og hálfan milljarð króna. Það eru hins vegar Skagfirðingar sem annast vegagerðina. 19.9.2022 22:42
Fyrrverandi þingmaður sér eftir sínum hlut í Landsdómsmálinu Magnús Orri Marínarson Schram átti sæti í nefnd þingmanna sem fjallaði um Rannsóknarskýrslu Alþingis sem unnin var eftir bankahrunið árið 2008. Hans afstaða var sú, á meðan hann sat í nefndinni, að rétt væri að vísa málum þriggja ráðherra ríkisstjórnar Geirs H. Haarde til Landsdóms. Þeirri afstöðu sér hann nú eftir. 19.9.2022 21:18