Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sagði mikilvægt að gefa Rússum ekki andrými til að efla varnir sínar Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti virðist ekki gefa mikið fyrir tilraunir Rússa til að stigmagna átökin í Úkraínu með því að boða til herkvaðningar. 22.9.2022 07:23
Norðvestan gola, skúrir og fremur svalt Veðurstofan spáir norðvestan golu eða kalda í dag, skúraleiðingum og og fremur svölu veðri. Hitinn kemst þó líklega í þrettán til fjórtán stig á Suðausturlandi þegar best lætur. 22.9.2022 07:22
Spéhræddir ferðamenn reyna að komast undan því að baða sig Starfsmenn sundlauga segja spéhræðslu valda því að fjöldi ferðamanna reynir að koma sér undan því að baða sig áður en farið er ofan í laugarnar. Frá þessu greinir Fréttablaðið og vísar til starfsmanna lauga í Reykjavík, á Akureyri og Egilsstöðum. 22.9.2022 07:11
Samþykki í nauðgunarmáli undir smásjá Hæstaréttar Karlmaður sem dæmdur var í þriggja ára fangelsi fyrir að nauðga fyrrverandi kærustu sinni í Landsrétti fær áheyrn Hæstaréttar. Rétturinn telur að málið kunni að vera fordæmisgefandi eftir lagabreytingar um veitt samþykki. 22.9.2022 07:01
Skora á Persónuvernd að banna Google Analytics Persónuverndaryfirvöld í Danmörku hafa gefið út að notkun danskra vefsíðna á vefvöktunarforritinu Google Analytics brýtur í bága við persónuverndarlög landsins. Neytendasamtökin vilja banna notkun forritsins hér á landi. 22.9.2022 06:51
Starfsfólk elti mann sem hafði stolið úr verslun Starfsfólk verslunar í Kópavogi hringdi í lögreglu klukkan rétt rúmlega sex í gærkvöldi eftir að maður hafði stolið úr búðinni. Starfsfólkið hafði elt manninn en lögreglan hafði síðar afskipti af honum og vettvangsskýrsla rituð. 22.9.2022 06:31
„Ég vona að þetta klárist fyrir minn dag“ Erla Bolladóttir skoðar að fara með mál sitt fyrir Mannréttindadómstól Evrópu eftir að beiðni hennar um endurupptöku var hafnað. Hún glímir við ólæknandi krabbamein og kallar eftir því að ríkisstjórnin taki á sig rögg og ljúki Guðmundar- og Geirfinnsmálunum í eitt skipti fyrir öll. 21.9.2022 23:39
„Held að íbúar í Íran séu komnir með meira en nóg af ríkisstjórninni“ Umfangsmikil mótmæli hafa átt sér stað í Íran undanfarna daga eftir að ung kúrdísk kona dó í haldi lögreglu. Hún hafði verið handtekin fyrir að vera ekki klædd samkvæmt ströngum reglum klerkastjórnar Írans og dó í síðustu viku. 21.9.2022 23:03
„Einhverskonar holdgerving staðalmynda um fatlað fólk“ Í Víðsjá í gær birtist gagnrýni sem fjallaði um verkið „Sem á himni“ sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu. Gagnrýnin hefur fengið mikla athygli síðan hún var birt og þá sérstaklega fyrir það að benda á meðferð og túlkun á fötluðum karakter innan verksins. Embla Guðrúnar- Ágústsdóttir, talskona hjá Tabú segir karakterinn birtast sem holdgerving staðalmynda um fatlað fólk. 21.9.2022 22:16
Segir kórkápu biskups algjört listaverk og þvílíkan heiður að fá að bera hana Forláta biskupskápa Hólastiftis, eftirgerð kórkápu Jóns Arasonar, hefur núna skipt um herðar, með vígslu nýs Hólabiskups. Solveig Lára Guðmundsdóttir, fráfarandi vígslubiskup, segir það hafa verið mikinn heiður að fá að bera kórkápuna enda sé hún algjört listaverk. 21.9.2022 22:11
Notuðu hestamennsku sem yfirvarp fyrir kannabisræktun Fjórir karlmenn eru ákærðir fyrir mjög umfangsmikla kannabisræktun á bóndabæ á Suðurlandi. Samkvæmt vitnisburði lögreglunnar átti húsráðandi, sem ekkert vit hafði á kannabisræktun, samskipti við annan höfuðpaur ræktunarinnar með hestamennskudulmáli. 21.9.2022 21:01
Nancy Pelosi og Katrín Jakobsdóttir funduðu á Capitol Hill Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings funduðu í dag í Washington D.C., höfuðborg Bandaríkjanna. 21.9.2022 21:00
Segir Pútín hafa gert „stór mistök“ Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO) segir hótanir Vladimírs Pútins, forseta Rússlands, um notkun kjarnorkuvopna vera „hættulegan og óábyrgan“ áróður. Hann segir að eina leiðin til að binda enda á stríðið í Úkraínu sé að sýna Rússum það og sanna að þeir geti ekki sigrað í Úkraínu. 21.9.2022 20:27
Aukin tíðni krabbameina ekki vegna mengaðra vatnsbóla líkt og íbúar óttuðust Aukin tíðni krabbameina á Suðurnesjum má rekja til lifnaðarhátta frekar en mengunar í vatnsbólum en þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar rannsóknar á tíðni og orsökum krabbameina í Reykjanesbæ. Forstöðumaður Rannsókna- og skráningaseturs Krabbameinsfélagsins segir að ýmislegt sé hægt að gera til þess að draga úr krabbameinstilfellum, ekki aðeins á Suðurnesjum heldur landinu öllu. 21.9.2022 20:26
Starfsfólk Stúdentakjallarans þreytt á slæmri hegðun fótboltaáhugamanna Stúdentakjallarinn, skemmti-, lærdóms og griðastaður fyrir háskólasamfélagið sendi frá sér tilkynningu fyrr í kvöld. Þar kemur fram að starfsfólk hafi lent í hrottalegum dónaskap og ógnandi hegðun frá fótboltaáhugamönnum sem heimsæki staðinn. Haldi þessi hegðun áfram sé hætta á því að kjallarinn hætti að sýna fótboltaleiki. 21.9.2022 20:24
Notuð dömubindi, blautþurrkur og smokkar í fjörunni í Vesturbæ Notuð dömubindi, blautþurrkur og smokkar eru á meðal þess sem finna má í fjörunni í Vesturbæ nú þegar óhreinsað skólp hefur flætt þar um. Sérfræðingur hjá Veitum segir að draga þurfi úr blautþurrkunotkun með reglugerð. Fréttastofa kannaði hvað ratar úr klósettinu í fjöruna. 21.9.2022 20:00
Saka Trump og börn hans um umfangsmikil fjársvik Letitia James, ríkissaksóknari New York-ríkis, hefur höfðað mál gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, og þremur elstu börnum hans, þeim Donald Trump yngri, Ivönku Trump og Eric Trump. Þau eru sökuð um umfangsmikil skatt- og bankasvik. 21.9.2022 18:29
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Rússnesk stjórnvöld hóta notkun kjarnavopna og segja að öllum tiltækum ráðum verði beitt til þess að verja landið. Bandaríkjaforseti sakar Rússa um gróf brot gegn stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna og vestrænir leiðtogar segja herkvaðningu til marks um örvæntingu. 21.9.2022 18:01
„Mildi að engan sakaði“ Ríkislögreglustjóri segir hættuástandi hafa verið afstýrt í dag. Fjórir voru handteknir af sérsveit ríkislögreglustjóra en í yfirlýsingu segir að tveir þeirra hafi verið taldir vopnaðir og hættulegir og að handtökurnar snúi að skipulagðri glæpastarfsemi og vopnalagabrotum. 21.9.2022 17:51
Kristín Linda nýr formaður samninganefndar ríkisins Kristín Linda Árnadóttir aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, verður nýr formaður samninganefndar ríkisins. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins. Þessa dagana er unnið að því að ljúka skipan samninganefndarinnar fyrir komandi kjaraviðræður. 21.9.2022 17:17
Bein útsending: Tryggjum leiðina.... 21. september er alþjóðlegur dagur heilabilunar. Efnt er til málþings Alzheimer-samtakanna í Háskólabíó sem hefst klukkan 16:30 og stendur í tvær klukkustundir. 21.9.2022 16:30
Fundu tvö kíló af fíkniefnum í töskum móður og sextán ára sonar Liðlega tvö kíló af amfetamíni og kókaíni fundust falin í ferðatöskum mæðgina er komu til Seyðisfjarðar með Norrænu að morgni þriðjudagsins 13. september síðastliðinn. Þetta kemur í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi. 21.9.2022 16:13
Húsvíkingar ósáttir við himinhátt kattagjald og slæma þjónustu: „Það er mikið dýrahatur sem fólk finnur fyrir“ Nokkrir kattaeigendur á Húsavík hafa óskað eftir að afskrá ketti sína eftir að leyfisgjaldið hækkaði um rúmlega tíu þúsund krónur milli ára og er nú það hæsta á landinu öllu. Einn kattareigandi segir að um óskiljanlega hækkun sé að ræða, þar sem ekkert sé í raun innifalið í gjaldinu og kettirnir fái ekki einu sinni að fara út. Það sé sjálfsagt að kattaeigendur sýni ábyrgð en eitthvað þurfi að koma á móti. 21.9.2022 15:44
Sérsveitin í aðgerð á iðnaðarsvæði í Mosfellsbæ Sérsveit ríkisslögreglustjóra og lögreglan á höfuðborgarsvæðinu standa nú í aðgerð á iðnaðarsvæði í Mosfellsbæ. Sérsveitin handtók einnig karlmann í Kópavogi fyrr í dag. 21.9.2022 15:37
Segist ekkert vita um hvað Erla Bolladóttir sé að tala Sigurbjörn Víðir Eggertsson, fyrrverandi yfirmaður ofbeldis- og kynferðisbrotadeildar lögreglu, segist ekki kannast við að vera sekur um þær ásakanir sem Erla Bolladóttir lét falla á blaðamannafundi fyrr í dag. Þar fullyrti Erla að Sigurbjörn Víðir hefði nauðgað henni í fangaklefa þegar Erla sætti gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsókn á Guðmundar- og Geirfinnsmálunum. 21.9.2022 15:33
Skýrasta myndin af Neptúnusi í þrjátíu ár Ekki frá því að könnunarfarið Voyager 2 flaug fram hjá fyrir meira en þrjátíu árum hafa menn fengið eins skarpa mynd af ísrisanum Neptúnusi og James Webb-geimsjónaukinn náði nýlega af honum. Hringir plánetunnar og stærstu tungl eru greinileg á myndinni. 21.9.2022 14:55
Með ólæknandi krabbamein og þráir réttlæti Erla Bolladóttur greindi frá því á blaðamannafundi í dag að hún væri með krabbamein sem læknar teldu ólæknandi. Hún þráir ekkert heitar en að mál hennar fái réttlát endalok. Það kemur til greina að fara með mál hennar til Mannréttindardómstóls Evrópu. 21.9.2022 14:27
„Það er mikilvægt að þessi mál séu í lagi“ Formaður velferðarnefndar Alþingis segir mikilvægt að koma í veg fyrir lyfjaskort á landinu eftir að greint var frá því fyrr á árinu að skortur væri á lífsnauðsynlegum lyfjum fyrir börn. Um sé að ræða viðvarandi verkefni og unnið sé að umbótum á ýmsum sviðum. Bæta þurfi meðal annars upplýsingamiðlun til stofnana og heilbrigðisstarfsmanna og auka samstarf við Norðurlöndin. 21.9.2022 14:01
Formaður BÍ segist ekkert botna í því hvað Bjarna gangi til Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands (BÍ), segist ekki vita hvað Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra, gangi til með að vilja blanda sér mál sem snýr að rannsókn lögreglu á fjórum blaðamönnum. Afstaða hans standist enga skoðun. 21.9.2022 12:20
Gefið í skyn að aðgerðum á hernumdum svæðum verði svarað fullum hálsi Orðræða rússneskra stjórnvalda hefur stigmagnast að mati sérfræðings í utanríkismálum, þar sem gefið er í skyn að hernaðaraðgerðum í úkraínskum héröðum sem Rússar hyggjast innlima verði svarað með öllum tiltækum ráðum. Tilkynnt var um herkvaðningu í Rússlandi í morgun. 21.9.2022 12:05
Svona var blaðamannafundur Erlu Bolladóttur Erla Bolladóttir boðaði til blaðamannafundar í dag. Í gær var greint frá því að Endurupptökudómstóll hafi hafnað beiðni hennar um endurupptöku á Hæstaréttardómi í tengslum við Guðmundar- og Geirfinnsmálin. 21.9.2022 12:00
Lögreglumenn lýstu lygilegum rannsóknaraðferðum Lögreglumenn lýstu því fyrir dómi í gær hvernig þeir notuðu gögn frá Europol til að tengja tvo íslenska menn við huldumenn á netinu sem skipulögðu einn umfangsmesta fíkniefnainnflutning Íslandssögunnar. 21.9.2022 12:00
Hádegisfréttir Bylgjunnar Herkvaðning og hótanir Rússlandsforseta, kólnun á fasteignamarkaði, lyfjaskortur og brostnar vonir um Þjóðarhöll verða meðal umfjöllunarefna í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. 21.9.2022 11:48
Munu ræða tillögur um nýtt nafn á sameinuðu sveitarfélagi Bæjarráð Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar mun á næstunni boða til íbúafundar vegna nafns á hinu nýja sveitarfélagi sem varð til fyrr á árinu með sameiningu Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar. 21.9.2022 11:37
Hjóli Gísla Arnar stolið þrátt fyrir lás af dýrustu gerð Hjóli leikarans Gísla Arnar Garðarssonar var stolið fyrir utan Borgarleikhúsið í laugardagskvöld á meðan Gísli var að sýna sýninguna Ég hleyp. Það tók þjófinn aðeins örfáar sekúndur að nappa hjólinu. 21.9.2022 11:36
Gagnrýndur fyrir að syngja Bohemian Rhapsody stuttu fyrir jarðarförina Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, hefur verið gagnrýndur síðustu daga fyrir að hafa sungið lag með hljómsveitinni Queen í hótelanddyri í London, tveimur dögum fyrir jarðarför Elísabetar II Bretlandsdrottningar. 21.9.2022 11:21
Danadrottning greinist með Covid í annað sinn Margrét Þórhildur Danadrottning hefur greinst með kórónuveiruna í annað sinn. 21.9.2022 10:40
Vaktin: Skiptu á verjendum Maríupól fyrir vin Pútíns Mikil eftirspurn er eftir flugferðum aðra leiðina frá Rússlandi eftir að Vladímír Pútín forseti tilkynnti í sjónvarpsávarpi að um 300.000 manns yrði kvaddir í herinn vegna stríðsins í Úkraínu í morgun. 21.9.2022 10:26
Samdi ljóð og sendi til MAST vegna dýraníðs á næsta bæ Guðrún Jónína Magnúsdóttir bjó á árunum 2011 til 2019 nálægt bænum í Borgarfirði sem fjallað hefur verið um ítrekað nýverið vegna dýraníðs. Hún segist endurtekið hafa tilkynnt slæma meðferð á kúnum á bænum til héraðsdýralæknis og Matvælastofnunar. 21.9.2022 09:56
Úthverfatófan ekki hættuleg mönnum Tófan sem sást á flakki um Breiðholtið fyrr í vikunni hefur sést bæði í Árbænum og Grafarholti síðan þá. Dýraþjónusta Reykjavíkur segir enga ástæðu til að óttast tófuna en varar fólk þó við að reyna að klappa henni. 21.9.2022 09:09
Miklar hitasviptingar gætu fylgt haustlægð um helgina Hiti gæti náð tuttugu gráðum einhvers staðar á Austurlandi þegar haustlægð nálgast landið á laugardag. Á aðfaranótt sunnudags fara hins vegar kuldaskil yfir landið og gæti hitinn þá snarlækkað. 21.9.2022 08:44
Segja herkvaðninguna til marks um misheppnaða aðgerð Rússa Ákvörðun Vladimir Pútín Rússlandsforseta að grípa til herkvaðningar er viðurkenning á því að innrásin í Úkraínu hefur ekki gengið eins og Rússar ætluðu. Þetta segja bæði talsmenn Úkraínustjórnar og Ben Wallace, varnarmálaráðherra Bretlands. 21.9.2022 08:33
Kveikti í sér til að mótmæla ríkisútför Abe Karlmaður á áttræðisaldri kveikti í sér nærri skrifstofu forsætisráðherra Japan til að mótmæla því að Shinzo Abe, fyrrverandi forsætisráðherra landsins, fái ríkisútför. Ríkisútfarir í Japan kosta um það bil 1,4 milljarð íslenskra króna. 21.9.2022 08:07
Hundruð hvala stranda við Tasmaníu Um 230 grindhvalir hafa strandað á Ocean-ströndinni á Tasmaníu síðustu daga. Um helmingur þeirra er enn á lífi og verið er að vinna í því að koma þeim aftur í sjóinn. 21.9.2022 07:40
Konur brenna slæður sínar í Íran Íranskar konur hafa undanfarin fimm kvöld mótmælt hijab-lögum landsins eftir að 22 ára gömul kona lést í haldi lögreglu. Hún var handtekin fyrir að nota ekki hijab-slæðu á almannafæri en lést degi síðar. 21.9.2022 07:13