Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
SA hafi reynt allt til að „afstýra því stórslysi“ sem blasi við Það er ekki ávísun á lægra atvinnuleysi að lækka eða frysta laun fólks á vinnumarkaði að sögn forseta ASÍ. Það stefnir í stórslys á vinnumarkaði að mati framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins í ljósi þeirra miklu launahækkana sem kveðið er á í kjarasamningum og taka gildi um áramótin. 29.11.2020 22:45
Hraun Skaftárelda skóp nýja sveit eftir Móðuharðindin Skaftáreldum og Móðuharðindunum sem þeim fylgdu hefur verið lýst sem mestu hörmungum Íslandssögunnar. Talið er að fimmtungur þjóðarinnar hafi látist og 75 prósent af bústofni landsmanna fallið af völdum eldgossins í Lakagígum árin 1783-1784. 29.11.2020 22:12
Spurning um óbreytt ástand eða ekki Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir þróun undanfarinna daga sýna hversu lítið þurfi til svo bakslag komi í baráttuna við kórónuveiruna. Hann er nú að vinna að nýju minnisblaði til ráðherra, en segir ekki í spilunum að fara að herða aðgerðir. 29.11.2020 21:51
TF-GRO útkallshæf á ný Flugvirkjar hafa lokið skoðun á TF-GRO, þyrlu Landhelgisgæslunnar. Reglubundinni skoðun lauk í kvöld og er þyrlan því orðin útkallshæf á ný samkvæmt tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. 29.11.2020 21:10
Bent á að leita til prests skömmu áður en æxlið fannst Lögfræðingur fjölskyldu konu, sem lést úr leghálskrabbameini í haust, hefur óskað eftir ítarlegri greiningu Landlæknis á leghálssýnum sem voru tekin hjá Krabbameinsfélaginu 2016 og 2018. Þá hefur verið kvartað undan heilbrigðisþjónustu á heilsugæslunni en heimilislæknir benti konunni í tvígang á að leita til prests réttur áður en æxlið fannst. 29.11.2020 20:36
Búast við nýju fjölmiðlafrumvarpi Páll Magnússon þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að reynt hafi verið að ná samkomulagi milli stjórnarflokkanna um fjölmiðlafrumvarpið sem menntmálaráðherra lagði fram á síðasta ári og fjallar um opinberan fjárstuðning til einkarekinna fjölmiðla. Nú sé búist við að nýtt frumvarp verði lagt fram. 29.11.2020 20:00
Kári skrifar opið bréf til Þórólfs: „Ykkur hefur samt orðið svolítið á í messunni“ Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segist aldrei hafa veist að Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni. Hann hafi einungis hrósað honum og sé montinn af því að hafa verið með honum í liði. Þetta kemur fram í opnu bréfi Kára til Þórólfs. 29.11.2020 18:53
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldréttum okkar segjum við frá því að sjö ára íslenskur drengur hafi veikst lífshættulega nú í haust af alvarlegri bráðabólgu sem tengist Covid-19. 29.11.2020 18:17
Sjö ára drengur veiktist lífshættulega eftir að hafa fengið Covid-19 Sjö ára íslenskur drengur veiktist lífshættulega nú í haust af bráða- bólguheilkenni í tengslum við Covid-19. 29.11.2020 18:04
Þórólfur, Drífa og Halldór í Víglínunni Aðgerðir vegna kórónuveirufaraldursins, bólusetningar og alvarleg staða á vinnumarkaði eru á meðal mála sem verða til umræðu í Víglínunni, þjóðmálaþætti Stöðvar 2 í dag.Sunna Sæmundsdóttir fréttamaður fær til sín þau Þórólf Guðnason, sóttvarnalækni, Drífu Snædal, forseta ASÍ og Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, og ræðir við þau um þessi mál og önnur í þættinum.Víglínan hefst klukkan 17:40 og er í opinni dagskrá á Stöð 2 og Vísi. 29.11.2020 17:15
Ekkert prófkjör hjá Samfylkingunni í Reykjavík Samfylkingin í Reykjavík kallar eftir tilnefningum fyrir framboðslista flokksins í Reykjavík fyrir alþingiskosningarnar á næsta ári. Ákveðið hefur verið að listi verði ákvarðaður með uppstillingu en ekki prófkjöri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samfylkingunni í Reykjavík. 29.11.2020 17:06
Komu manni til hjálpar sem villtist á Bláfjallasvæðinu Fyrir nokkrum mínútum síðan, laust eftir klukkan fjögur í dag, voru björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu kallaðar út vegna manns sem er týndur á Bláfjallasvæðinu. Þetta staðfestir Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, í samtali við Vísi. 29.11.2020 16:28
Bylting ef bóluefnið lukkast vel: „Þetta er algjörlega ný nálgun“ Tæknin við þróun mRNA-bóluefnisins, sem þau fyrirtæki sem standa hvað fremst við þróun bóluefnis gegn covid-19 eru að nota, er byltingarkennd ef vel tekst til. Þetta segir Magnús Gottfreðsson smitsjúkdómalæknir. Hann kveðst fullviss um að þrátt fyrir að þróun bóluefnis hafi gengið afar hratt fyrir sig að ekkert verði slegið af kröfum um gæði bóluefnisins áður en það fer í umferð. Aðferðin sem notuð er við prófun bóluefnis sé hugsuð til þess að hámarka árangur og lágmarka áhættu. 29.11.2020 13:32
„Hugsunin góð“ hjá Páli en hefði viljað ganga lengra Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður allsherjar- og menntamálanefndar og Benedikt Jóhannesson, stofnandi Viðreisnar og fyrrverandi fjármálaráðherra, mættust í umræðu um sjávarútveg í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. 29.11.2020 12:52
Kjaftshögg á Kirkjubæjarklaustri Sandra Brá Jóhannesdóttir, sveitarstjóri Skaftárhrepps segir það kjaftshögg fyrir íbúa sveitarfélagsins að Krónan ætli að loka Kjarvalsverslun sinni á Kirkjubæjarklaustri um áramótin. 29.11.2020 12:42
Segir forgangsröðun bólusetninga skringilega, elstir eigi að fara fyrst Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar telur forgangsröðun í bólusetningu skringilega þar sem 60 ára og eldri eru í sjötta sæti forgangslista. Hann leggur til að 85 ára og eldri verði bólusettir fyrst því þeir séu í mestri hættu ef þeir veikjast. Hann telur að heilbrigðisráðherra muni líta til þessa. 29.11.2020 12:30
„Ætlum að stytta biðtíma og álag á bráðadeild“ Stytta á biðlista og minnka álag á bráðamóttöku Landspítalans með fjölda umbótaverkefna en búist er við að þeim ljúki í febrúar á næsta ári. Yfirlæknir bráðaþjónustu spítalans segir að mikil ásókn sé í störf á deildinni. 29.11.2020 12:01
Batakveðjur streyma til Víðis en sumir hneykslaðir Óhætt er að segja að frásögn Víðis Reynissonar yfirlögregluþjóns á Facebook af því hvernig hann smitaðist af Covid-19 á dögunum hafi vakið mikla athygli. Langflestir þakka Víði fyrir hreinskilna frásögn en þó eru ýmsir sem gera athugasemdir við gestagang á heimili hans. Víðir lækar allar athugasemdir fólks, gagnrýnar sem hugulsamar. 29.11.2020 12:01
Segir Kára vega ómaklega að sér Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir tölur dagsins á svipuðum nótum og undanfarið. Sveiflur geti orðið á milli daga og ekki megi draga of sterkar ályktanir af einum degi. 29.11.2020 11:45
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Tíu greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og voru átta manns í sóttkví við greiningu. Í hádegisfréttum Bylgjunnar verður rætt við Þórólf Guðnason sóttvarnalækni sem segir ómaklega að sér vegið með gagnrýni um að fólk hafi orðið kærulaust vegna yfirlýsinga sóttvarnayfirvalda. 29.11.2020 11:19
Tíu greindust með veiruna innanlands í gær Tíu greindust með covid-19 innanlands í gær og þar af voru átta í sóttkví. Nú eru 187 í einangrun með covid-19 hér á landi og fækkar þeim milli daga sem eru með virkt smit. Alls voru tekin 965 sýni í gær og eru nú 667 í sóttkví. 29.11.2020 10:58
Bein útsending: Bóluefni, börn og sjávarútvegur Magnús Gottfreðsson smitsjúkdómalæknir ræðir nýju bóluefnin við Covid-19, þróun þeirra og mögulega áhættu. Einnig verður rætt um málefni barna í skólakerfinu sem ekki eiga aðgang að aðstoð sálfræðinga og sérkennara en auk þess verður rætt um sjávarútveg og fleira. 29.11.2020 09:17
Um tíu þúsund börn á leik- og grunnskólaaldri þurft í sóttkví í þriðju bylgju Þúsundir barna á leik- og grunnskólaaldri hafa þurft í sóttkví síðustu mánuði vegna kórónuveirufaraldursins. Þá hafa mörg hundruð börn á sama aldri greinst með veiruna. 29.11.2020 08:31
Fór inn í bíl og rændi ökumann Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gærkvöldi tilkynning um rán í Laugardalnum þar sem maður fór inn í bíl, ógnaði ökumanni og hafði á brott muni í eigu ökumannsins. Þá varð slys í Garðabæ þar sem tveir bílar skullu saman og urðu báðir óökufærir. 29.11.2020 07:22
Fagnar sigri og biður þolendur ofbeldis að gefast ekki upp Rúmlega fimm ára baráttu Rúnu Guðmundsdóttur við kerfið lauk í gær þegar Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi fyrrverandi sambýlismann hennar til þess að greiða henni 1,3 milljónir í skaðabætur vegna heimilisofbeldis. Rúna segir þungu fargi af sér létt, það sé ómetanlegt að kerfið viðurkenni að hún hafi verið beitt ranglæti. 28.11.2020 23:20
Aðstoðar jólasveina með gjafirnar í desember Jólasveina hjálparkokkar taka sig saman fyrir jólin og aðstoða jólasveina með skógjafir. Þeir útvega líka gjafir handa börnum þeirra sem eiga ekki sjálfir fyrir þeim. 28.11.2020 22:30
Erfitt fyrir foreldra að börnin séu ekki í öryggi fjölskyldunnar Mikil fólksfækkun hefur orðið í Reykhólahreppi á árinu en þar hefur íbúum fækkað um tíu prósent. Sveitarstjórinn telur eina skýringuna þá að fjölskyldur flytja fremur en að senda unglingana að heiman í framhaldsnám. 28.11.2020 22:15
Gæti misst af öllum prófum eftir smit korter í prófatörn Sálfræðinemi við Háskóla Íslands gæti mögulega misst af bæði lokaprófum og sjúkraprófum eftir að hún greindist með kórónuveirusmit í dag, fari svo að hún mælist enn með veiruna eftir tvær vikur. Jafnvel þó hún gæti mætt í sjúkrapróf er alls óvíst að undirbúningurinn verði fullnægjandi þar sem einkennin gera lesturinn erfiðari en ella. Umrædd próf eru öll staðpróf. 28.11.2020 21:00
Sprenging í útflutningi á íslenskum hestum Sjaldan eða aldrei hafa eins margir íslenskir hestar verið seldir úr landi eins og það sem af er árinu 2020. Vinsælir stóðhestar eru meðal hesta, sem hafa verið seldir eins og Kveikur frá Stangarlæk og Styrkur frá Leysingjastöðum. 28.11.2020 19:45
Fimm úr nærumhverfi Víðis og eiginkonu hans smituð Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn er nú á fjórða degi veikinda eftir að hafa greinst með kórónuveirusmit. Hann segir daginn í dag vera skárri en í gær, en þá voru þau hjónin verulega slöpp. Að minnsta kosti fimm aðrir úr þeirra nærumhverfi hafa greinst með veiruna. 28.11.2020 19:44
Björguðu veiðimanni úr sjálfheldu Björgunarsveitir voru kallaðar út um klukkan 14 í dag þegar beiðni barst frá veiðimanni sem var í sjálfheldu. Maðurinn var staðsettur við Skaftá nærri Kistufelli á Suðurlandi, en hann hafði verið á veiðum ásamt öðrum manni. 28.11.2020 18:42
Telur skilaboð sóttvarnayfirvalda hafa valdið kæruleysi Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar telur að skilaboð sóttvarnayfirvalda fyrir nokkrum vikum hafi mögulega valdið því að fólk hafi byrjað að slaka of mikið á. Hann segir mikilvægt að ekki sé spáð í framtíðina þegar um svo ótúreiknanlegan faraldur sé að ræða. Ekki sé rými fyrir tilslakanir fyrr en á næsta ári. 28.11.2020 18:24
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum okkar ræðum við við Kára Stefánsson, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, sem segir segir þróun kórónuveirufaraldursins síðustu daga frekar ískyggilega. Hann telur að sóttvarnaryfirvöld hafi yfirhöfuð staðið sig vel en brugðist bogalistinn síðustu vikur og gefið fólki vonir um tilslakanir. 28.11.2020 18:15
Maðurinn er fundinn Rétt fyrir klukkan fimm í dag voru björgunarsveitir kallaðar út á höfuðborgarsvæðinu vegna göngumanns sem er villtur nálægt Móskarðshnjúkum. Maðurinn náði sjálfur að tilkynna að hann hefði villst af leið. 28.11.2020 17:57
Segir Víði hressari í dag en í gær Rögnvaldur Ólafsson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, segir Víði Reynisson vera aðeins hressari í dag en í gær. Víðir greindist með covid-19 í vikunni en Rögnvaldur, sem er staðgengill Víðis, heldur góðu sambandi við hann reglulega. 28.11.2020 15:20
Kapp lagt á að TF- GRÓ verði tilbúin á morgun Flugvirkjar Landhelgisgæslunnar sneru á ný til vinnu í morgun eftir að lög voru sett á verkfall þeirra í gær. 28.11.2020 14:27
Hólmfríður sækist eftir þingsæti Ara Trausta Hólmfríður Árnadóttir, skólastjóri í Sandgerðisskóla, ætlar að gefa kost á sér til að leiða lista Vinstri grænna í Suðurkjördæmi í komandi Alþingiskosningum. Þannig hyggst Hólmfríður sækjast eftir sæti Ara Trausta Guðmundssonar, 5. þingmanns Suðurkjördæmis, sem hefur gefið það út að hann hyggist ekki sækjast eftir að gegna áframhaldandi þingmennsku á næsta kjörtímabili. 28.11.2020 14:16
Makaskipti mömmu tíð og verst þegar um ofbeldismenn var að ræða Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, segir að ekki eigi að svipta börn bernskunni og sakleysi þeirra. Hann sjálfur þekkir það að alast upp við erfiðar aðstæður og segir málefni barna mikið áherslumál hjá honum og vonast hann til að hjálpa öðrum að glíma við sambærilegar aðstæður og hann upplifði. 28.11.2020 14:04
Hræktu á lögreglumenn og höfðu uppi grófar hótanir Þrír ungir menn voru handteknir í Kópavogi í nótt fyrir ólæti. Mennirnir létu mjög ófriðlega eftir að lögregla stöðvaði för ökumanns í bænum sem var grunaður um akstur undir áfengis eða fíkniefna að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 28.11.2020 13:56
Nauðgaði tvisvar sömu nótt en á skilorði vegna dráttar á máli Landsréttur hefur staðfest 18 mánaða fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjaness yfir manni sem gerðist sekur um að nauðga fyrrverandi unnustu sinni í tvígang. Landsréttur mildar hins vegar refsingu að því leyti að dómurinn skuli skilorðsbundinn til tveggja ára vegna verulegs dráttar á meðferð málsins. 28.11.2020 13:37
Mikið um ölvun og hávaðakvartanir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að töluverður erill hafi verið hjá lögregluþjónum í nótt. Mikið hafi verið um ölvunartengd mál og hávaðakvartanir. 28.11.2020 13:21
Börnum verður ekki boðin bólusetning Heilbrigðisráðherra hefur staðfest og birt reglugerð um forgangsröðun við bólusetningu vegna kórónuveirunnar. Horft var til leiðbeininga Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, WHO, en sóttvarnalæknir mun hafa sveigjanleika til að gera breytingar. Börnum verður ekki boðin bólusetning. 28.11.2020 12:55
Kvenfélagskonur nýttu nóttina í að baka Hópur kvenfélagskvenna stendur nú fyrir áheitabakstri eftir að hafa fengið grænt ljós hjá almannavörnum og heilbrigðiseftirlitinu. Bakað er í deilieldhúsinu Eldstæðið í Kópavogi, sem er fullvottað eldhús. Baksturinn hófst klukkan 18:00 í gær og stendur til klukkan 18.:00 í dag. Í takt við tíðarfarið munu Kvenfélagskonur víða um land taka þátt með fjarbakstri heimavið. 28.11.2020 12:19
Átta fermetra svalahurð „ætlaði inn í stofu“ í rokinu Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu sinnti 117 sjúkraflutningum síðasta sólarhringinn. Þar af voru 28 forgangsflutningar og sex svokallaðir covid-flutningar. Þá sinnti slökkviliðið fremur óhefðbundnu verkefni í óveðrinu fyrr í vikunni vegna átta fermetra stórrar svalahurðar sem var til vandræða. 28.11.2020 11:54
Eitt boð ber tölurnar uppi Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir að stóran hluta dreifingar Covid-19 sem greinst hefur að undanförnu megi rekja til eins fjölskylduboðs. Hann segir tölurnar í dag svipaðar og í gær en þó hafi fleiri verið í sóttkví við greiningu. Það gæti verið til marks um línulegan vöxt. 28.11.2020 11:45