Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Hagfræðingur segir að jákvæðar fréttir af bóluefni geti haft óbein áhrif á efnahagslífið. Óvissa sé þó um hvað gerist í ferðaþjónustunni þegar búið er að bólusetja flestar þjóðir. Fjallað verður um þau áhrif sem bólusetningar hafa haft í hádegisfréttum Bylgjunnar 6.12.2020 11:46
Fjórir greindust með veiruna í gær og voru allir í sóttkví Fjórir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Enginn var utan sóttkvíar við greiningu. 6.12.2020 10:53
Mál Elísabetar á borði lögreglu Mál Elísabetar Guðmundsdóttur lýtaskurðlæknis sem fór hvorki í skimun né sóttkví við komuna til landsins er á borði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt heimildum fréttastofu. 6.12.2020 10:24
Viðbrögð við bóluefni og Landsréttarmálið á Sprengisandi Viðbrögð hagkerfisins við tíðindum af bóluefni, nýsköpun og viðreisn efnahagslífsins, dómur yfirdeildar Mannréttindadómstóls Evrópu og staða eldri borgara er á meðal þess sem fjallað verður um á Sprengisandi á Bylgjunni á dag. 6.12.2020 09:16
Frostið skreið undir tuttugu stig í nótt Það var ansi kalt víða á landinu í nótt, þá helst norðan til. Áfram verður kalt í innsveitum norðaustantil en hlýnar víða annars staðar. 6.12.2020 07:37
Frelssisvipting og fall á rafskutlu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmis horn að líta í gærkvöldi og nótt. 6.12.2020 07:27
Þvottavél stolið í miðjum þvotti Svo virðist sem að ansi bíræfinn þjófur hafi stolið þvottavél úr þvottahúsi í fjölbýlishúsi í 101 Reykjavík í gærkvöldi, í miðjum þvotti. 6.12.2020 07:21
Aldrei fundið svona kulda Íbúi á Hvanneyri segist aldrei hafa fundið fyrir jafn miklum kulda og nú en þar hefur hitastig mælst lægst mínus 16,8 gráður í dag. 5.12.2020 21:01
Tómas biðst afsökunar og fjarlægir myndböndin Tómas Guðbjartsson hjartaskurðlæknir á Landspítalanum hefur fjarlægt myndbönd sem hann birti á Facebook-síðu sinni í gær. Í myndböndunum sagðist Tómas að hann og ritari á spítalanum hefðu unnið að því að para saman læknanema í skurðlæknisfræðikúrsi á fjórða ári. 5.12.2020 20:41
Starfsmenn Hótel Selfoss „gengu, hjóluðu og hlupu“ til Austurríkis Starfsmenn Hótel Selfoss sitja ekki með hendur í skauti og bíða eftir því að heimsfaraldrinum ljúki því þeir hafa nýtt tímann til að hreyfa sig og efla starfsandann. Það gerðu þeir með því að ganga, hjóla og hlaupa þrjú þúsund kílómetra í nóvember, eða vegalengdina sem samsvarar því að komast í árlega skíðaferð hópsins til Austurríkis. 5.12.2020 20:08
„Væri grátlegt að detta í fjórðu bylgju þegar bóluefni er handan við hornið“ Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra óttast að fólk sé farið að slaka verulega á vegna jákvæðra fregna af bóluefni. 5.12.2020 20:01
Hinn almenni borgari geti ekki keppt við yfirburði ríkisins Berglind Svavarsdóttir, formaður Lögmannafélags Íslands, segir það miður að fólki gefist ekki kostur á að sækja um gjafsókn við málarekstur fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu. Íslenska ríkið hafi yfirburði sem almennur borgari geti ekki keppt við. Allir eigi að hafa jafnan aðgang að dómstólum, óháð stöðu. 5.12.2020 19:20
Fór hvorki í skimun né sóttkví og var mætt á mótmælin í dag Elísabet Guðmundsdóttir lýtaskurðlæknir sem gagnrýnt hefur sóttvarnaraðgerðir íslenskra yfirvalda kom til landsins í gærkvöldi eftir dvöl í Danmörku. Hún kaus að fara hvorki í skimun né sóttkví við komuna til landsins og var mætt á mótmæli á Austurvelli klukkan 13 í dag. 5.12.2020 18:32
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við formann Lögmannafélags Íslands sem segir miður að fólki gefist ekki kostur á að sækja um opinberan stuðning, eða gjafsókn, við málarekstur fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu. 5.12.2020 18:13
Hafnarfjarðarvegi lokað vegna bílveltu Hafnarfjarðarvegi milli Hamraborgar og Arnarnesshæðar hefur verið lokað vegna bílveltu sem varð við Kópavogslæk. 5.12.2020 16:44
Mótmæltu sóttvarnaaðgerðum og væntanlegum bólusetningum Um þrjátíu til fjörutíu mótmælendur söfnuðust saman á Austurvelli eftir hádegi í dag til þess að mótmæla væntanlegum bólusetningum vegna Covid-19 og sóttvarnaaðgerðum stjórnvalda, sem þeir segja valda skaða á heilsu og líf fólks. Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir mótmælin ekki í anda þeirra aðgerða sem séu í gangi í landinu og minnir á tíu manna samkomubann. 5.12.2020 16:00
Bætir í kuldakastið eftir því sem líður á daginn fyrir norðan Fastlega má gera ráð fyrir því að það kólni enn frekar á Norðausturlandi eftir því sem líður á daginn. Lægsti hitastig á láglendi sem mælst hefur í dag var á Hvanneyri. Vel hefur gengið að veita heitu vatni á höfuðborgarsvæðinu. 5.12.2020 14:00
Göngumaður fluttur af Esjunni á slysadeild Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur flutt göngumann, sem rann og slasaðist á Esjunni fyrir um klukkutíma síðan, á slysadeild. Þetta staðfestir varðstjóri slökkviliðs og upplýsingafulltrúi Landsbjargar í samtali við fréttastofu. 5.12.2020 13:24
72 tilkynningar í október þar sem barn var talið í yfirvofandi hættu Hátt í fimmtán hundruð tilkynningar bárust Barnaverndaverndarstofu í október. Forstjórinn segir tölurnar áhyggjuefni en ekki óvæntar. 5.12.2020 13:21
Stuðningurinn víðtækari en fréttir gefi til kynna Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra segir stuðning við hugmyndir sínar um miðhálendisþjóðgarð víðtækari en fréttir gefi til kynna. Hann hyggst mæla fyrir frumvarpinu eftir helgi og er vongóður að það nái fram að ganga. 5.12.2020 12:52
Ánamaðkaverksmiðja í Árborg Ein milljón ánamaðka frá Austurríki verða fluttir inn til landsins á nýju ári en ánamaðkarnir munu fara til starfa í Árborg við framleiðslu á áburði úr lífrænum úrgangi á bænum Borg. 5.12.2020 12:19
Grunur um sóttvarnarbrot á sýningu Lögreglan hefur nú til rannsóknar mögulegt brot á sóttvarnareglum eftir að sextán manna hópur mætti á sýningu í miðborg Reykjavíkur. 5.12.2020 12:04
Of snemmt að segja til um hvort hægt verði að fara í tilslakanir fyrir jól Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannavörnum segir of snemmt að segja til um hvort hægt verði að fara í tilslakanir fyrir jól, en að tölur síðustu daga séu jákvæðar. 5.12.2020 12:00
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Kona sem lagði Íbúðalánasjóð í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær segist ekki hafa átt von á niðurstöðunni, en dómurinn er sagður marka tímamót og gæti kostað ríkissjóð á annan tug milljarða. 5.12.2020 11:32
Fjórtán greindust með veiruna Fjórtán greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Tveir voru utan sóttkvíar við greiningu. 5.12.2020 10:53
Dæmi um að einstaklingar undir tvítugu þurfi jólaaðstoð Dæmi eru um að einstaklingar undir tvítugu þurfi að sækja sér jólaaðstoð hjálparsamtaka á Eyjafjarðarsvæðinu fyrir komandi jól. Umsókum um aðstoð hefur fjölgað um þriðjung á milli ára. 5.12.2020 08:01
Frost á bilinu þrjú til sextán stig í dag Það verður nokkuð kalt í veðri í dag, en frostið verður yfirleitt á bilinu þrjú til sextán stig, kaldast í innsveitum norðanlands. 5.12.2020 07:39
Tvær líkamsárásir og innbrot í skartgripaverslun Tvær líkamsárásir, innbrot í skartgripaverslun og tilkynningar um fimm heimilisofbeldismál voru á meðal þess sem kom til kasta lögreglu á erilsamri nótt. 5.12.2020 07:20
Flúðu á Hverfisgötu undan myglu Samtökin ’78 hafa flutt skrifstofu sína í húsnæði á Hverfisgötu 39 vegna myglu sem fannst í húsakynnum Samtakanna við Suðurgötu. Frá þessu greina samtökin á Facebook í dag. 4.12.2020 23:45
Sagði 497 símtöl á 23 dögum tengjast „bílaviðskiptum“ Héraðsdómur Reykjavíkur taldi félagana Matthías Jón Karlsson og Vygantas Visinskis ekki eiga sér neinar málsbætur í stórfelldu fíkniefnamáli, sem þeir voru dæmdir í fjögurra og tæplega sex ára fangelsi fyrir í dag. Matthías og Vygantas hringdust á 497 sinnum á 23 daga tímabili í vor en sá síðarnefndi sagði að símtölin hefðu tengst „bílaviðskiptum.“ 4.12.2020 22:09
Sjálfsafgreiðslubúðir að hætti Svía gætu gagnast dreifbýlinu Ómannaðar sjálfsafgreiðslu gámaverslanir, líkt og komið hefur verið á fót í Svíþjóð, gætu verið lausn fyrir fámenn samfélög á landsbyggðinni, að mati sveitarstjóra Reykhólahrepps, en þar var einu matvöruverslun sveitarinnar nýlega lokað. 4.12.2020 21:21
Tuttugu mínútna bið eftir bólusetninguna flækir málið Framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir flókið að skipuleggja bólusetningu við kórónuveirunni og horfa þurfi til ýmissa sviðsmynda. Eitt flækjustigið felist til dæmis í því að þeir sem eru bólusettir þurfa að bíða í 20 mínútur eftir bólusetninguna áður en þeir geta haldið brott. 4.12.2020 20:28
Pfizer-bóluefnið verður flutt um allt land í þurrís og geymist í kæli í nokkra daga Pfizer-bóluefnið verður flutt um allt land í þurrís til að tryggja að það haldist við 80 gráðu frost. Þá geymist það í nokkra daga í kæli við 2 – 8 gráður. 4.12.2020 20:00
Grunaðir um framleiðslu á hættulegu ofskynjunarlyfi Þrír menn sem úrskurðaðir voru í gæsluvarðhald í gær í tengslum við umfangsmikla rannsókn lögreglu á höfuðborgarsvæðinu eru grunaðir um framleiðslu á ofskynjunarlyfinu DMT. Ríkisútvarpið greinir frá þessu. 4.12.2020 19:28
Með hlaupabretti og upphífingarstöng í skólastofunni Hreyfing gegnir veigamiklu hlutverki í almennu skólastarfi í Langholtsskóla þar sem nemendur geta tekið sér hvíld frá lærdómnum og notað æfingatæki sem hafa verið sett upp í skólastofunni. 4.12.2020 19:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 í beinni útsendingu Skipulag fjöldabólusetningar við kórónuveirunni í Reykjavík verður klárt fyrir jól. Kjördeildir í kosningum verða lagðar til grundvallar. 4.12.2020 18:00
Ungir jafnaðarmenn segja orðræðu Sigríðar Andersen hættulega Ungir jafnaðarmenn segja í yfirlýsingu að það sé fullkomlega óboðlegt að Sigríður Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra, hafi verið gerð að formanni utanríkismálanefndar Alþingis eftir að hafa gerst brotleg í starfi. 4.12.2020 17:15
Kosningabragur á bólusetningum í Reykjavík Borgarstjóri segir að skipulag bólusetningar í höfuðborginni verði með svipuðu fyrirkomulagi og í kosningum. Markmiðið sé að gera bólusetninguna auðsótta og aðgengilega svo opnaðir verða bólusetningastaðir í anda kjörstaða víða um borgina. 4.12.2020 17:05
Sýknaður af brotum gegn dóttur fyrrverandi sambýliskonu Landsréttur staðfesti sýknu karlmanns sem var ákærður fyrir að misnota dóttur fyrrverandi sambýliskonu sinnar kynferðislega þegar hún var níu til ellefu ára gömul í dag. 4.12.2020 16:46
Sakfelldur fyrir manndráp af gáleysi en heldur ökuréttindum fyrir mistök Landsréttur staðfesti í dag dóm yfir karlmanni fyrir manndráp af gáleysi í október 2018. Var hann sakfelldur fyrir að hafa ekið bíl sínum yfir á rangan vegarhelming á Reykjanesbraut í Hafnarfirði með þeim afleiðingum að árekstur varð við bíl sem kom úr gagnstæðri átt. 4.12.2020 16:31
Gagnaversþjófur fékk tæplega sex ára dóm í dópmáli Matthías Jón Karlsson, sem hlaut dóm í Bitcoin-málinu svokallaða, hefur verið dæmdur í fimm ára og níu mánaða fangelsi fyrir stórfellda fíkniefnaframleiðslu. Vygantas Viskinskis hlaut fjögurra ára dóm í málinu. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. 4.12.2020 16:07
Neyslan merki þess að aðgerðir stjórnvalda virki Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra sér fram á bjartari tíma í efnahagsmálum hér á landi á komandi ári. Komur ferðamanna séu lykill að góðum árangri í þeim efnum. 4.12.2020 15:57
Fimm handteknir í máli sem talið er tengjast skipulagðri brotastarfsemi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur handtekið fimm vegna umfangsmiklar rannsóknar sem talin er tengjast skipulagðri brotastarfsemi. Rannsóknin snýr að framleiðslu og sölu fíkniefna og hafa þrír verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 15. desember á grundvelli rannsóknarhagsmuna. 4.12.2020 15:38
Litakóðakerfi vegna Covid-19 samþykkt Ríkisstjórnin hefur samþykkt að taka upp Covid-19 viðvörunarkerfi sem byggir á litum. Tillaga þessi kom frá Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra og Embættis landlæknis og svipar veðurviðvörunarkerfi Veðurstofu Íslands. 4.12.2020 14:39
Veikindi Víðis fara versnandi Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn fór í skoðun á Covid-göngudeild Landspítalans í dag vegna íferðar í lungum. Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannvarnadeild ríkislögreglustjóra og staðgengill Víðis, segir Víði kominn heim eftir skoðun. Hann sé brattur miðað við aðstæður. 4.12.2020 14:23