Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Enginn sé betri en Bjarni í að koma sér úr vandræðum Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórmálafræði við Háskóla Íslands, telur að hér á landi sé enginn stjórnmálamaður betri í að koma sér út úr vandræðum en Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. 28.12.2020 15:42
Útlit fyrir að sex skammtar leynist í hverju glasi Útlit er fyrir að hægt verði að ná sex skömmtum í stað fimm úr hverju glasi af bóluefninu frá Pfizer og BioNTech sem barst hingað til lands í morgun. Einfaldur útreikningur leiðir í ljós að skammtarnir telja þá tólf þúsund í stað tíu þúsund. 28.12.2020 14:49
Íslendingar feitastir allra í OECD-löndunum Samkvæmt súluriti sem OECD birtir á Facebooksíðu sinni eru Íslendingar á toppi lista yfir þá sem þyngri en góðu hófi gegnir. 28.12.2020 14:36
Formenn þingflokka funda með Steingrími Þingflokksformenn munu funda með forseta Alþingis í dag um kröfu stjórnarandstöðunnar um að þing verði kallað saman til að ræða sóttvarnarbrot Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra. 28.12.2020 14:25
Eldur í gistiheimili Eldur kom upp á gistiheimili á Ránargötu í Vesturbæ Reykjavíkur upp úr klukkan tvö í dag. 28.12.2020 14:19
„Þigg bólusetningu þegar kemur að mér“ Starfsmönnum bráðamóttöku Landspítalans eru farin að berast boð í bólusetningu. Þetta staðfestir Ragnar Freyr Ingvarsson, umsjónarlæknir göngudeildar Covid-19. Sjálfur hefur hann ekki fengið boð en segist afar rólegur; mikilvægast sé að bólusetja aldraða og þá sem eru í nánum samskiptum við sjúklinga. 28.12.2020 13:59
Íslendingar agndofa yfir litadýrð á himnum Mikil litadýrð á himnum hefur vakið mikla athygli Íslendingar í morgunsárið. Svokölluð glitský hafa verið áberandi og hafa fjölmargir tekið myndir af þeim. Svo virðist sem glitský hafi sést víðsvegar um landið. 28.12.2020 13:48
Ekki lengur óvissustig á Austurlandi Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Austurlandi og Veðurstofu Íslands aflýsir óvissustigi vegna skriðuhættu á Austurlandi. 28.12.2020 13:17
Bjarna Bernharði dæmdar bætur vegna nauðungarvistunar Listamaðurinn Bjarni Bernharður Bjarnason fær 200 þúsund krónur í bætur auk dráttarvaxta frá 27. apríl 2017 og gjafsókn í máli hans á hendur ríkinu. 28.12.2020 13:12
Úr háum snúningi ferðaþjónustunnar yfir í lágan snúning skíðalyftunnar Það styttist óðum í að hægt verði að fara aftur á skíði á skíðasvæðinu við Kröflu eftir margra ára hlé, þökk sé sjálfboðaliðum sem vilja ólmir komast á skíði í sveitinni. 28.12.2020 13:00
Eigendurnir segja fjöldatakmarkanir í Ásmundarsal ekki hafa verið brotnar Eigendur Ásmundarsalar segja að reglur um fjöldatakmarkanir eða opnunartíma hafi ekki verið brotnar á Þorláksmessu á sýningu sem fjármálaráðherra sótti. Fjöldi í húsinu hafi ekki farið yfir fimmtíu manns en salurinn hafi leyfi fyrir þeim fjölda. Grímunotkun hafi hins vegar verið ábótavant og því ljóst að mistök hafi verið gerð í að tryggja sóttvarnir. 28.12.2020 11:43
Þór sendur til að sækja vélarvana Lagarfoss Varðskipinu Þór er nú siglt í átt að flutningaskipinu Lagarfossi sem er vélarvana. Flutningaskipið er um 230 sjómílur suðvestur af Garðskaga og varð vélarvana í gær. Til stendur að draga skipið til hafnar í Reykjavík. 28.12.2020 11:39
Telur að samstarf við Pfizer geti svarað mikilvægum spurningum fyrir heimsbyggðina Þórólfur Guðnason telur að mögulegt rannsóknarsamstarf við bandaríska lyfjaframleiðandann Pfizer um að bólusetja stóran hluta þjóðarinnar sem fyrst, geti svarað mikilvægum spurningum um bóluefnið fyrir heimsbyggðina alla. 28.12.2020 11:35
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Fyrsti skammtur bóluefnis gegn kórónuveirunni kom til landsins í morgun og heilbrigðisyfirvöld tóku formlega á móti efninu á ellefta tímanum. 28.12.2020 11:28
Nákvæmlega tíu mánuðir frá því að SARS-CoV-2 greindist fyrst hér á landi Í dag eru nákvæmlega tíu mánuðir frá því að veiran kom til landsins, sagði Alma D. Möller landlæknir við athöfnina þegar bóluefnið frá Pfizer og BioNTech kom í hús hjá Distica í morgun. 28.12.2020 11:19
Ekki stórir kassar en sögulegir, segir heilbrigðisráðherra „Þetta er stór dagur hjá okkur öllum,“ sagði Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra, þegar 10 þúsund skammtar af bólefni Pfizer og BioNTech komu í hús hjá Distica rétt í þessu. 28.12.2020 10:57
Þrír greindust með kórónuveiruna í gær Þrír greindust með kórónuveiruna í gær. Tveir voru í sóttkví við greiningu, en einn ekki. 28.12.2020 10:51
Þröng á þingi á Reykjavíkurflugvelli Töluverður fjöldi er samankominn á Reykjavíkurflugvelli í morgunsárið þar sem nokkrar flugvélar eru á leiðinni út á land og til baka. Lítið hefur verið flogið innanlands um hátíðarnar og aflýsa þurfti fjölmörgum flugferðum í gær vegna veðurs. 28.12.2020 10:30
Bóluefnið afhent Íslensk heilbrigðisyfirvöld taka á móti fyrsti skömmtunum af bóluefni Pfizer og BioNTech með formlegum hætti klukkan 10.30. 28.12.2020 10:00
„Þetta er langþráður dagur“ „Þetta er langþráður dagur. Að geta tekið á móti fyrstu sendingu af bóluefni. Það er bara alveg frábært.“ Þetta segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir um daginn í dag en von er á fyrstu sendingu af bóluefni Pfizer til landsins í dag. 28.12.2020 08:28
Flugvélin með bóluefnið lent í Keflavík Flugvél með fyrstu skammtana af Pfizer bóluefninu lendir á Keflavíkurflugvelli í morgunsárið. Skammtarnir eru ætlaðir starfsmönnum Covid-göngudeildar Landspítalans, framlínustarfsfólki á spítölunum og íbúum á hjúkrunarheimilum. Vísir fylgist með lendingu flugvélarinnar í beinni útsendingu. 28.12.2020 08:19
Slökktu eld í gámi í Hafnarfirði Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna elds í ruslatunnu eða gámi í hverfi 221 í Hafnarfirði skömmu eftir klukkan 18 í gærkvöldi. 28.12.2020 06:05
Bóluefnið kemur með flugi í fyrramálið Það hefur vart farið fram hjá neinum að von er á fyrstu skömmtunum af bóluefni gegn covid-19 til landsins í fyrramálið. Bólusetning hófst víðast hvar í aðildarríkjum Evrópusambandsins í dag en von er á tíu þúsund skömmtum af bóluefni Pfizer-BioNTech með fyrstu sendingunni sem væntanleg er með flugi til Íslands í fyrramálið. 27.12.2020 23:03
Kveikt í ruslatunnu sem brann til kaldra kola Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um sex leytið í kvöld vegna elds í ruslatunnu við Einivelli í Hafnarfirði. Líkt og sjá má á meðfylgjandi myndbandi sem fréttastofu barst af atvikinu logaði töluverður eldur í tunnunni sem var farin að fjúka til. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu var kveikt í tunnunni með vítissprengju eða skoteld. 27.12.2020 21:50
Ungliðahreyfingar bregðast við: UJ skorar á Framsókn og VG að slíta stjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn Ungliðahreyfingar stjórnmálaflokkanna hafa í dag og undanfarna daga brugðist við vegna þeirrar gagnrýni sem Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur sætt eftir að hann sótti fjölmennt samkvæmi í Ásmundarsal á Þorláksmessu. 27.12.2020 20:58
Ástarpungar í umbúðum frá kvenfélagskonum á Hvolsvelli Kvenfélagskonur á Hvolsvelli slá ekki slöku við í heimsfaraldri því þær prjóna út í eitt því þær ætla sér að prjóna þrjú hundruð hluti í sérstöku áheitaprjóni. 27.12.2020 20:04
Ritari Framsóknarflokksins: „Erfitt að sjá Sjálfstæðisflokkinn fyrir sér í næstu ríkisstjórn“ Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri í Fjarðabyggð og ritari Framsóknarflokksins, segir erfitt að sjá fyrir sér að Sjálfstæðisflokkurinn geti setið í næstu ríkisstjórn. Forystufólki flokksins „gangi illa að upplifa sig sem hluta af þjóðinni,“ og kveðst Jón Björn hafa áhyggjur af stöðu Sjálfstæðisflokksins og segir að augljósir brestir flokksins veiki hann til forystu í íslensku þjóðfélagi. 27.12.2020 19:19
Mikilvægt að hefja framkvæmdir á Fjarðarheiði eins fljótt og hægt er Vonskuveður var víðast hvar á landinu í dag og töluvert um foktjón. Þá var úrhellir á Seyðisfirði og Fjarðarheiði var lokuð bróðurpart dags. Sveitarstjóri Múlaþings segir gríðarlega mikilvægt að hefja framkvæmdir á Fjarðarheiði eins fljótt og auðið er. 27.12.2020 19:00
Sala á fasteignum líklega ekki verið meiri í fimm ár Eftirspurn eftir fasteignum hefur sjaldan verið meiri þrátt fyrir heimsfaraldur, segir fasteignasali. Framboðið sé hins vegar alltof lítið sem hafi leitt af sér ríflega sjö prósenta hækkun á fasteignaverði á þessu ári. 27.12.2020 18:35
Þurfa tvo þingmenn í viðbót til að kalla saman þing Allir þingmenn stjórnarandstöðu hafa tekið undir kröfu Samfylkingarinnar um að Alþingi komi saman til fundar þann 29. desember. Þrjátíu þingmenn móta stjórnarandstöðu og þyrftu þannig aðeins tveir þingmenn stjórnarflokka að taka undir kröfuna svo að af þingfundi geti orðið. Þetta kemur fram í orðsendingu Oddnýjar Harðardóttur, þingflokksformanns Samfylkingarinnar, til fréttastofu. 27.12.2020 18:03
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í fréttum okkar í kvöld verður rætt við sóttvarnalækni um fund sem hann mun eiga með Kára Stefánssyni við fulltrúa Pfizer um bóluefnarannsóknir hér á landi. Þórólfur ræðir einnig breska afbrigði kórónuveirunnar og spurningar sem á eftir að svara um það. 27.12.2020 18:00
Krabbamein skorar Þórunni „aftur á hólm“ Þórunn Egilsdóttir, þigflokksformaður Framsóknarflokksins, var lögð inn á Sjúkrahúsið á Akureyri 22. desember og hóf hún lyfjameðferð vegna krabbameins í gær. Þórunn hefur áður glímt við krabbamein en hún greinir frá því á Facebook í dag að meinið hafi aftur skotið upp kollinum. 27.12.2020 17:28
Segir Þórhildi Sunnu og Helgu Völu ekkert erindi eiga í pólitík Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, þingmann Pírata og Helgu Völu Helgadóttur, þingmann Samfylkingarinnar, hafa „lítið sem ekkert fram að færa í pólitík,“ og að þær „noti hvert tækifæri til að skapa upplausn.“ Þetta má ráða af færslu sem Brynjar birtir á Facebook-síðu sinni í dag þar sem hann vitnar til annarrar Facebook-færslu sem hann skrifaði í gær þar sem Helga Vala og Þórhildur Sunna komu við sögu. 27.12.2020 16:52
Samfylkingin vill að Alþingi verði kallað saman fyrir áramót Þingflokksformaður Samfylkingarinnar hefur óskað eftir að Alþingi komi saman þann 29. desember þar sem fram fari sérstök umræða við forsætisráðherra um „þá hættu sem skapast getur vegna hópamyndana um áramótin,“ að því er segir í tilkynningu frá Samfylkingunni. 27.12.2020 15:51
Fleiri útköll vegna veðurs Fleiri björgunarsveitir hafa verið kallaðar út eftir hádegi vegna veðurs. Um foktjón er að ræða í öllum tilfellum en nokkrar beiðnir um aðstoð hafa meðal annars borist í Reykjavík. 27.12.2020 14:50
Ritari Vinstri grænna: „Mikið vildi ég að Bjarni hefði stigið til hliðar“ Ingibjörg Þórðardóttir, ritari Vinstri grænna, segir veru Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra í samkvæmi í Ásmundarsal á Þorláksmessu, þar sem sóttvarnareglum var greinilega ekki fylgt, það alvarlega að hann ætti að segja af sér. Hún sé þó ekki þeirrar skoðunar að samstarfsflokkarnir ættu að krefjast afsagnar. 27.12.2020 14:44
Sigmundur Davíð segir kirkjuna hafa gengið of langt með Trans-Jesú Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, gerir trúmál að umfjöllunarefni í nýjum pistli í The Spectator. Nánar tiltekið beinir hann sjónum sínum að kristinni trú og sakar kirkjuna um að koma að stefnumálum í anda róttækra sósíalista eða umhverfissinna. Það sé útséð að slíkt gangi ekki upp. 27.12.2020 13:45
Misskilningur að óttast um þjóðina vegna Pfizer-rannsóknar Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir það algjöran misskilning að óttast það að íslenska þjóðin verði notuð undir lokarannsókn á bóluefni bandaríska lyfjaframleiðandans Pfizer. 27.12.2020 12:38
Tilboð Pírata pólitískt útspil og sett fram í veikri von um að fella ríkisstjórnina Tilboð Pírata um stuðning við minnihluta stjórn VG og Framsóknar er pólitískt útspil og sett fram í veikri von um að hægt verði að fella ríkisstjórnina, segir Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur. Ekkert bendi til þess að flokkarnir þekkist boðið. 27.12.2020 12:18
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar er rætt við Þórólf Guðnason sóttvarnalæknir um fund hans og Kára Stefánssonar með Pfizer eftir helgi. 27.12.2020 11:44
„Enginn sem raðgreinir eins mikið og við“ Níu greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og voru átta í sóttkví. Sjö greindust á landamærunum í gær. Hingað til hafa aðeins tveir greinst með nýtt afbrigði veirunnar á landamærunum, sem kennt er við Bretland, og varð engin breyting þar á milli daga. 27.12.2020 11:23
Um tuttugu tilkynningar um foktjón Björgunarsveitir hafa verið kallaðar út í morgun vegna veðurs í Vestmannaeyjum og Suðurnesjabæ. Gul veðurviðvörun er í gildi og hefur vindur mælst hátt í fjörutíu metrar á sekúndu. 27.12.2020 10:28
Níu greindust með veiruna Níu hafa bæst við þann fjölda sem greinst hafa með kórónuveiruna innanlands undanfarna daga. 27.12.2020 10:16
Góðir gestir fara yfir árið 2020 á Sprengisandi Síðasti þáttur Sprengisands í ár fer í loftið klukkan tíu í dag á Bylgjunni. 27.12.2020 09:30
Vistaður í fangageymslu eftir líkamsárás Líkamsárás átti sér stað í miðbæ Reykjavíkur á níunda tímanum í gær. Einn var handtekinn grunaður um líkamsárás og hótanir og var hann vistaður í fangageymslu lögreglu fyrir rannsókn málsins. Sá sem varð fyrir árásinni fór á bráðadeild til aðhlynningar, en samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er ekki vitað um áverka. 27.12.2020 07:29