Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Fyrstu niðurstöður rannsóknar á því hvort fjögur andlát megi rekja til bólusetningar gegn Covid-19 eiga að liggja fyrir í næstu viku. 5.1.2021 18:00
Mögulegt að slaka á takmörkunum ef vel gengur á landamærunum Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segist telja að tækifæri til slökunar á samkomutakmörkunum innanlands gætu verið fyrir hendi, takist að halda utanaðkomandi veirustofnum í skefjum með landamæraskimun. 5.1.2021 17:54
Tveir sérfróðir læknar rannsaka alvarlegu atvikin fimm Tveir sérfróðir og óháðir læknar á sviði öldrunar munu rannsaka gaumgæfilega fimm alvarleg atvik, þar af fjögur andlát, sem tilkynnt var um sem hugsanlegar aukaverkanir af bólusetningu við kórónuveirunni. Stefnt er að því að frumniðurstöður liggi fyrir innan viku til tíu daga. 5.1.2021 15:05
Segir Íslendinga á Bretlandseyjum sýna hertum aðgerðum skilning Nú er skollið á útgöngubann í Bretlandi sem mun gilda að minnsta kosti út miðjan febrúar. Boris Johnson, forsætisráðherra, sagði í sjónvarpsávarpi til þjóðarinnar að ljóst væri að næstu vikur framundan yrðu erfiðar. 5.1.2021 14:15
Fimm þúsund skammtar frá Moderna væntanlegir í janúar og febrúar Gert er ráð fyrir að Ísland fái samtals fimm þúsund skammta af bóluefni Moderna í janúar og febrúar, sem duga fyrir 2.500 manns. Eftir það verði afhending hraðari. Alls á Ísland von á 128 þúsund skömmtum frá Moderna sem duga fyrir 64 þúsund manns. 5.1.2021 14:12
Segja umræðuna ekki eiga að snúast um færni starfsfólks Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins áréttar að blöndun og meðhöndlun bóluefnis Pfizer hafi að öllu leyti farið eftir leiðbeiningum markaðsleyfishafa og fyrirmælum Lyfjastofnunar og Embættis landlæknis. Umræða um blöndunina eigi ekki að snúast um færni starfsfólks heldur hvort farið sé eftir leiðbeiningum. 5.1.2021 14:04
Allt að 600 milljóna kostnaður við hreinsunarstarf Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að greiða tvo þriðju af kostnaði við hreinsunarstarf á Seyðisfirði vegna hamfaranna í síðasta mánuði. Gróf áætlun gerir ráð fyrir hundruð milljóna kostnaði. Forsætisráðherra reiknar með að heildartjónið á Seyðisfirði hlaupi á einum til tveimur milljörðum hið minnsta. 5.1.2021 13:41
Deilan komin til gerðardóms Gerðardómur mun úrskurða um laun og kjör flugvirkja hjá Landhelgisgæslunni. Í gær var kjaradeilu flugvirkjanna og ríkisins vísað til gerðardóms þar sem ekki tókust kjarasamningar fyrir þann tíma. 5.1.2021 13:02
Hefur ekki áhyggjur af því að tilkynningarnar fæli fólk frá bólusetningu Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ekki áhyggjur af því að tilkynningar um hugsanlegar aukaverkanir af bóluefni gegn kórónuveirunni hafi áhrif á vilja þjóðarinnar til að láta bólusetja sig. Miklu máli skipti fyrir samfélagið allt að bólusetning verði almenn. 5.1.2021 12:51
Sementsryk dreifðist yfir bíla og hús á Akranesi Sementsryk úr sementstönkum Sementsverksmiðjunnar á Akranesi dreifðist yfir nærliggjandi svæði eftir að síló yfirfylltist þegar verið var að fylla á það. 5.1.2021 12:45
Bílastæðasjóður endurgreiðir þrettán milljónir vegna oftekinna gjalda Bílastæðasjóður Reykjavíkur mun endurgreiða bifreiðareigendum oftekin gjöld sem innheimt voru vegna tiltekinna stöðubrota á tímabilinu 1. janúar til 24. september á síðasta ári. 5.1.2021 12:27
Breska afbrigðið virðist bindast frumum líkamans af meiri krafti en aðrir stofnar Nýtt afbrigði kórónuveirunnar sem greindist fyrst í Bretlandi í haust er með fleiri stökkbreytingar en búast mætti við miðað við þann tíma sem liðinn er frá því að veiran kom fyrst fram. Þá virðast bæði smithæfni og smitstuðull afbrigðisins vera meiri en hjá öðrum stofnum veirunnar. 5.1.2021 12:15
Býst við fleiri smituðum á landamærum Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir tölur dagsins yfir nýsmitaða af kórónuveirunni ánægjulegar. Staðan á faraldrinum í útlöndum sé hins vegar áhyggjuefni, sem muni skila sér í fleiri smituðum á landamærum. 5.1.2021 12:00
Mikilvægt að fá skýringar á andlátum fyrir næsta skammt af bóluefni Fjögur andlát hafa verið tilkynnt til Lyfjastofnunar vegna mögulegra tengsla við bólusetningu við Covid-19. Sóttvarnalæknir segir mikilvægt að fá betri mynd af því hvort andlátin megi rekja til bólusetningar áður en seinni skammtur efnisins verður gefinn. 5.1.2021 11:58
Amma og afi Liverpool-aðdáanda 104 milljónum króna ríkari Hjón á Selfossi sem keyptu lottómiða í Krambúðinni á Selfossi eru 104 milljónum króna ríkari. Þau unnu sexfaldan vinning í Lottóinu á öðrum degi jóla. Potturinn fór óskiptur til hjónanna. 5.1.2021 11:52
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum heyrum við í Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni sem ræðir bólusetningar og möguleg tengsl við andlát sem orðið hafa á hjúkrunarheimilum. 5.1.2021 11:32
Jarðskjálfti við Gjögurtá fannst í Fjallabygð Jarðskjálfti að stærð 2,8 varð um fjórtán kílómetra vestur af Gjögurtá. Tilkynningar hafa borist frá Ólafsfirði og Siglufirði um að skjálftinn hafi fundist, að því er segir í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands. 5.1.2021 11:20
Kennari sakaður um kynferðislega áreitni og ruddalegt athæfi gagnvart stúlku Karlmaður á Norðurlandi eystra hefur verið ákærður af Embætti héraðssaksóknara fyrir kynferðisbrot gegn barni og barnaverndarlagabrot á árunum 2017 og 2018. Í ákærunni á hendur manninum segir að barnið hafi verið nemandi hans. 5.1.2021 11:06
Treysta á mat Evrópsku lyfjastofnunarinnar Íslensk heilbrigðisyfirvöld árétta að þau treysti á mat Evrópsku lyfjastofnunarinnar (EMA) á öryggi, gæðum og virkni bóluefna gegn kórónuveirunni. Þá benda stjórnvöld á að með tímabundnu neyðarleyfi, líkt og Bretland veitti fyrir notkun bóluefnis AstraZeneca, séu ekki gerðar jafnríkar kröfur til bóluefnanna og EMA gerir með skilyrtu markaðsleyfi. 5.1.2021 10:57
Fjórir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær Fjórir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Allir þeir sem greindust voru í sóttkví við greiningu. 5.1.2021 10:56
Manndrápsmál fellt niður vegna andláts ákærða Manndrápsmál á hendur karlmanni um þrítugt sem ákærður var fyrir að myrða móður sína og stinga sambýlismann hennar í Hafnarfirði í apríl í fyrra verður formlega fellt niður í Héraðsdómi Reykjaness á næstunni. Ástæðan er sú að ákærði er látinn. 5.1.2021 10:40
Afgreiðslustúlku á Hlemmi ógnað og hún elt inn á starfsmannarými Súrdeigsbakaríið Brauð & Co hefur lokað útibúi sínu við Hlemm Mathöll. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir ástæðuna meðal annars þá að ekki sé unnt að tryggja öryggi starfsmanna á Hlemmi. 5.1.2021 09:01
Kvörtunum til landlæknis fjölgar mikið Kvörtunum til Landlæknis frá sjúklingum og aðstandendum vegna heilbrigðisþjónustu fjölgaði um nærri fjórðung í fyrra. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag. 5.1.2021 06:58
Þremur bifhjólum stolið í Vesturbænum Laust fyrir klukkan hálfellefu í gærkvöldi barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um að þremur bifhjólum hefði verið stolið í Vesturbæ Reykjavíkur, allt frá sama heimilinu. 5.1.2021 06:28
Fornar lögbækur sýna að fjárrekstur á hálendið hófst skömmu eftir landnám Ákvæði um afrétti sem finna má í elstu lögbókum Íslendinga, bæði Grágás og Jónsbók, benda til að íbúar landsins hafi snemma farið að nýta hálendið til búfjárbeitar. Fornar heimildir styðja þannig það álit Kristins Guðnasonar, fjallkóngs Land- og Holtamanna, að menn hafi byrjað að reka fé á fjöll um landnám. 4.1.2021 22:32
73 prósent íbúa á hjúkrunarheimilum á geðlyfjum 58,5% íbúa á íslenskum hjúkrunarheimilum voru með geðsjúkdómagreiningu árið 2018 og tóku 72,5% íbúa einhvers konar geðlyf að staðaldri. Neysla slíkra lyfja hefur aukist frá árinu 2012 og eru þunglyndislyf mest notuð. 4.1.2021 22:00
Segir sérþekkingu lífeindafræðinga kastað fyrir róða Lífeindafræðingar sem störfuðu hjá Krabbameinsfélagi Íslands við að greina leghálssýni hafa orðið fyrir miklu höggi og sérþekkingu þeirra kastað fyrir róða. Þetta segir framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins um þá ákvörðun að flytja sýnagreiningu úr landi. 4.1.2021 21:01
Yfirlæknir á Grund segir ekkert hægt að segja um bein tengsl milli bólusetningar og andláts Þrjú andlát eftir bólusetningu gegn Covid-19 hafa verið tilkynnt til Lyfjastofnunar Íslands. Karlmaður á hjúkrunarheimili lést nokkrum dögum eftir bólusetningu og segir yfirlæknir á Grund mikilvægt að fylgjast vel með áhrifum bólusetninga á fólkið í viðkvæmasta hópnum. 4.1.2021 19:07
Ekki hægt að segja til um orsakasamband milli bólusetninga og dauðsfalla Þrjár tilkynningar hafa borist Lyfjastofnun þess efnis að einstaklingar hafi látist eftir að hafa verið bólusettir fyrir kórónuveirunni í síðustu viku. Rúna Hauksdóttir, forstjóri Lyfjastofnunar, segir ekkert benda til þess að um orsakasamband sé að ræða en tilfellin verði þó skoðuð. 4.1.2021 18:53
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Þrjú andlát eftir bólusetningu við Covid-19 hafa verið tilkynnt til Lyfjastofnunar Íslands. Karlmaður á hjúkrunarheimili lést nokkrum dögum eftir bólusetningu. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við yfirlækni á Grund sem segir mikilvægt að fylgjast vel með áhrifum bólusetninga á fólkið í viðkvæmasta hópnum. 4.1.2021 18:01
Dómur þyngdur um eitt og hálft ár vegna stórfelldrar líkamsárásar Landsréttur dæmdi í síðasta mánuði Brynjar Kristensson til tveggja ára fangelsisvistar vegna stórfelldrar líkamsárásar sem hann tók þátt í þann 19. febrúar 2017. Brynjar hafði áður verið dæmdur til sex mánaða fangelsisvistar í héraðsdómi. 4.1.2021 17:36
Tilkynnt um þrjú dauðsföll í kjölfar bólusetningar Þrír sjúklingar með undirliggjandi sjúkdóma létust hér á landi eftir að hafa verið bólusettir við kórónuveirunni í síðustu viku. Ekki er þó hægt að staðfesta að andlátin tengist bólusetningunni. Þetta kom fram í máli Rúnu Hauksdóttur forstjóra Lyfjastofnunar í þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. 4.1.2021 16:58
Landlæknir vill hækka verð á gosdrykkjum til mikilla muna Jóhanna Eyrún Torfadóttir verkefnastjóri hjá Landlæknisembættinu telur helsta verkfærið í baráttunni gegn aukakílóum geta reynst hækkun verðs á gosdrykkjum. 4.1.2021 16:52
Mest fjölgun í Reykjavík en hlutfallslega í Fljótsdalshreppi Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 2.133 á þrettán mánaða tímabilinu frá 1. desember 2019 til 1. janúar 2021. Það sveitarfélag sem kemur næst var Garðabær en þar fjölgaði íbúum um 768 á sama tímabili og íbúum Mosfellsbæjar fjölgaði um 519 íbúa. 4.1.2021 16:19
Ætlað að efla netöryggissveitina í skugga aukinna netárása Guðmundur Arnar Sigmundsson hefur verið ráðinn forstöðumaður netöryggissveitarinnar CERT-IS og kemur til með að leiða starfsemi sveitarinnar og áframhaldandi uppbyggingu hennar. 4.1.2021 16:13
Þau sem greinast með breska afbrigðið eru „undir smásjá“ Sóttvarnalæknir segir að aukið eftirlit sé haft með ferðalöngum frá Bretlandi á landamærum vegna hins svokallaða breska afbrigðis kórónuveirunnar. Mjög vel sé fylgst með þeim sem greinast með afbrigðið hér á landi. 4.1.2021 14:27
Vilja fylgja reglum en ekki „sérreglum sem virðast gilda bara um kaþólska kirkju“ Biskup kaþólskra á Íslandi hefur ákveðið að aflýsa opinberum sunnudagsmessum og vigilmessum á laugardagskvöldum. Þetta hafi verið það eina rétta í stöðunni því ekki komi til greina að vísa fólki frá messu sem vilji sækja hana. Honum finnst sóttvarnareglur sem gilda um helgihald vera ósanngjarnar. 4.1.2021 13:08
Jafnvel von á meira bóluefni fyrr en búist var við Sóttvarnalæknir telur að vonast megi til þess að meira bóluefni berist til landsins fyrr en talið hefur verið til þessa. Þá sé „mjög óráðlegt“ að hans mati að gefa bóluefni á annan máta en framleiðendur og rannsóknir mæla með, til dæmis í hálfum skömmtum. 4.1.2021 12:30
Útför Jónínu Benediktsdóttur streymt vegna samkomutakmarkanna Útför Jónínu Benediktsdóttur, íþróttafræðings og frumkvöðuls, var gerð frá Digraneskirkju í dag. Vegna samkomutakmarkana ákváðu aðstandendur að streyma jarðarförinni. 4.1.2021 12:15
Lyfjastofnun klár um leið og leyfi Moderna liggur fyrir Búist er við því að bóluefni Moderna fái markaðsleyfi hér á landi á morgun og forstjóri Lyfjastofnunar gerir ráð fyrir að dreifing hefjist fljótlega. Íslendingar hafa samið um að fá skammta frá Moderna fyrir 64 þúsund manns. 4.1.2021 12:10
Biður fyrir því að sóttvarnayfirvöld „íhugi málin með visku“ „Ég lýsi yfir að þrátt fyrir góðan vilja getum við ekki fylgt öllum gildandi sóttvarnareglum í sambandi við messuhald í kirkjum okkar. Með harm í hjarta hef ég tekið þá ákvörðun að aflýsa öllum opinberum sunnudagsmessum og vigilmessum á laugardagskvöldum. Ákvörðunin tekur þegar gildi.“ 4.1.2021 11:46
„Hugsanlega ein alvarleg“ tilkynning um aukaverkanir vegna bólusetningar Sjö tilkynningar um aukaverkanir í kjölfar bólusetningar við kórónuveirunni hafa borist Lyfjastofnun Íslands, þar af „hugsanlega ein alvarleg“. Þetta kom fram í máli Ölmu Möller landlæknis á upplýsingafundi almannavarna í dag. 4.1.2021 11:36
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum okkar tökum við stöðuna á kórónuveirufaraldrinum en í morgun var fyrsti upplýsingafundur nýs árs. Við heyrum einnig í forstjóra Lyfjastofnunar en að öllum líkindum fær bóluefni Moderna markaðsleyfi hér á landi á morgun. 4.1.2021 11:28
Tíu greindust innanlands í gær Alls greindust tíu með kórónuveiruna innanlands í gær. Sjö þeirra voru í sóttkví. Þá greindust þrettán manns á landamærunum. Þrír þeirra reyndust með virkt smit, hjá hinum er beðið niðurstöðu mótefnamælingar. 4.1.2021 10:48
Svona var 150. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar klukkan 11:00 í dag. Um er að ræða fyrsta upplýsingafundinn á nýju ári. 4.1.2021 10:21