Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ekið á gangandi vegfarendur í Reykjanesbæ Ekið var á gangandi vegfarendur í Reykjanesbæ laust fyrir hádegi í dag. Tveir voru fluttir á bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi til aðhlynningar, að því er segir í tilkynningu frá lögreglu á Suðurnesjum. 7.1.2021 16:26
Tvíburar eineggja en ekki eins Með því að raðgreina erfðamengi eineggja tvíbura og bera þau saman við erfðamengi náinna skyldmenna þeirra gátu vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar fundið stökkbreytingar sem höfðu myndast snemma á fósturskeiði og greindu tvíburana að. 7.1.2021 16:01
Telur bænahring í Reykjavík hafa bjargað Seyðfirðingum Bæjarfulltrúi Miðflokksins í Múlaþingi, er sannfærður um að bænahring í Reykjavík megi þakka að ekki varð manntjón í aurskriðununum sem féllu á Seyðisfirði í desember. Það sé rugl að heimurinn standi frammi fyrir hlýnun og það séu pólitísk vísindi. Bæjarfulltrúa Vinstri grænna blöskrar fullyrðingarnar. 7.1.2021 15:00
Ákæru um kynferðisbrot á hendur Jóni Baldvin vísað frá Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði í morgun frá ákæru á hendur Jóni Baldvin Hannibalssyni fyrrverandi utanríkisráðherra um kynferðisbrot. 7.1.2021 14:52
Ýti undir umræðu að lögregla sé hliðholl svona öflum Utanríkisráðherra segir það hafa verið ógnvekjandi að horfa á myndir af atburðunum í Washington í gær. Þeir sem réðust inn í þingið séu óþjóðalýður og að viðbrögð Donalds Trumps hafi ekki staðist væntingar. Stjórnmálafræðingur segir það hafa komið á óvart hver óundirbúin löggæsluyfirvöld voru þrátt fyrir að það hafi mátt blasa við í hvað stefndi. 7.1.2021 13:01
74 nemendur í Hveragerði í sóttkví eftir smit í skólanum Alls eru 74 nemendur og átta starfsmenn Grunnskólans í Hveragerði nú komnir í sóttkví eftir að kennari við skólann greindist með Covid-19 í gær. 7.1.2021 12:29
Íslenski fáninn meðal stuðningsmanna Trumps vekur athygli Vígalegur mótmælandi veifar íslenska fánanum samhliða miklum fána til stuðnings Trump í borginni Sacramento í Bandaríkjunum. Framganga hans og og hvernig íslenski fáninn tengist róstursömum mótmælunum liggur ekki fyrir. 7.1.2021 11:51
Leggur aftur til að afnema sóttkvíarmöguleikann og skikka alla í tvöfalda skimun Sóttvarnalæknir hefur lagt til við stjórnvöld að allir sem koma til landsins verði skyldaðir í tvöfalda skimun fyrir kórónuveirunni. Þá er einnig til skoðunar að þeir sem greinast með hið svokallaða breska afbrigði veirunnar fari í farsóttarhús þar sem hægt er að fylgjast vel með þeim. 7.1.2021 11:46
Vonandi ekki vísbending um að faraldurinn sé á uppleið Sóttvarnalæknir vonar að fjöldi nýsmitaðra í gær sé ekki vísbending um að faraldurinn sé á uppleið. Tillögur sóttvarnalæknis um veirutakmarkanir sem taka gildi í næstu viku eru í vinnslu. 7.1.2021 11:30
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum okkar verður að sjálfsögðu fjallað um hina ótrúlegu atburðarás sem átti sér stað í höfuðborg Bandaríkjanna í gærkvöldi og í nótt. 7.1.2021 11:29
Ellefu greindust innanlands Ellefu greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Sjö þeirra sem greindust voru í sóttkví, en fjórir ekki. Ekki hafa svo margir greinst innanlands á sama degi síðan 22. desember, þegar tólf greindust. 7.1.2021 10:49
Líklegast að kórónuveiran þróist í vægari gerð sem smitast betur Erfðafræðingur telur líklegast að SARS-CoV-2, veiran sem veldur Covid-19, muni þróast í átt að vægari gerð sem smitist greiðar en núverandi afbrigði. Slíkar gerðir nái að sýkja fleiri einstaklinga og mögulega smjúga í gegnum sóttvarnir sem virkuðu á upprunaleg afbrigði. Samhæft bólusetningarátak sé lykilatriði til að útrýma veirunni. 7.1.2021 10:46
Svona var 151. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar klukkan 11 í dag. 7.1.2021 10:30
Tveir skjálftar um þrír að stærð í nótt Tveir skjálftar um þrír að stærð urðu vestan við Krýsuvík á Reykjanesskaga í nótt. 7.1.2021 07:51
Nýtt Covid-greiningartæki verði loks klárt í febrúar Nýtt greiningartæki Landspítala, sem á meðal annars að nýtast við greiningar á Covid-19, hefur enn ekki verið tekið í notkun. Tækið var keypt síðasta sumar og stóðu þá vonir til að það yrði tekið í gagnið í nóvember, en nú standa hins vegar vonir til að það verði í febrúar. 7.1.2021 07:36
Íslenskum börnum greiddar fimm til tíu þúsund krónur fyrir kynferðislegar myndir Hátt í tíu mál voru kærð til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í desember þar sem karlmenn greiddu allt niður í 13 ára íslenskum börnum fyrir kynferðislegar myndir af þeim. Börnin fengu greiddar á bilinu fimm til tíu þúsund krónur fyrir myndina í gegnum forrit í símanum. 7.1.2021 07:01
Skólastarf fellur niður vegna brunans í Glerárskóla Skólastarf fellur niður í Glerárskóla á Akureyri í fyrramálið vegna elds sem upp kom kjallara skólans fyrr í kvöld. Eldurinn olli rafmagnsleysi í stórum hluta bæjarins sem gerði það að verkum að viðbragðstími slökkviliðsins var lengri en ella þar sem dyr slökkvistöðvarinnar eru rafknúnar og því þurfti að ná dælubílum út með öðrum ráðum. 7.1.2021 01:32
Allt tiltækt slökkvilið kallað út vegna elds í Glerárskóla Allt tiltækt lið Slökkviliðsins á Akureyri hefur verið kallað út vegna elds í Glerárskóla á Akureyri. Þetta staðfestir Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri í samtali við Vísi. 6.1.2021 23:47
Vestfirðingar vilja láta bora fern ný jarðgöng Forystumenn á Vestfjörðum telja þörf á minnst fernum nýjum jarðgöngum í fjórðungum til að koma samgöngumálum þar í viðunandi horf; einum á norðanverðum fjörðunum og þrennum á sunnanverðum. 6.1.2021 23:19
85 ára með beinar útsendingar frá Lírukassanum sínum Jóhann Gunnarsson, áttatíu og fimm ára íbúi í Hveragerði lætur ekki deigan síga þó hann geti ekki spilað á lírukassann sinn opinberlega vegna heimsfaraldursins því í staðinn hefur hann boðið upp á beinar útsendingar frá tónleikum sínum í gegnum Facebook. 6.1.2021 20:03
Kalla eftir skýrari svörum: Óvissa ofan á alla aðra óvissu Yfir þrjátíu þúsund manns sem eru sjötíu ára og eldri verða bólusettir næst þar sem sóttvarnalæknir hefur breytt forgangsröðun í bólusetningu. Ungur maður með taugahrörnunarsjúkdóm segir vanta betri skilgreiningu á áhættuhópum enda mikilvægt að eyða óvissu hjá fólki sem hefur verið lengi í einangrun. 6.1.2021 18:31
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Yfir þrjátíu þúsund manns sem eru sjötíu ára og eldri verða bólusettir næst þar sem sóttvarnalæknir hefur breytt forgangsröðun í bólusetningu. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 og rætt við ungan mann með taugahrörnunarsjúkdóm sem kallar eftir betri skilgreiningu á áhættuhópum. 6.1.2021 17:58
„Ég bjóst við sakfellingu“ Jóhannes S. Ólafsson, réttargæslumaður brotaþola í máli meðhöndlarans Jóhannesar Tryggva Sveinbjörnssonar, segir þá niðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness að dæma meðhöndlarann í fimm ára fangelsi fyrir að hafa nauðgað fjórum konum á meðferðarstofu sinni vera rétta. Niðurstaðan sé jafnframt sigur fyrir þær konur sem leituðu til lögreglu vegna hans. 6.1.2021 17:35
Bóluefni Moderna veitt íslenskt markaðsleyfi Lyfjastofnun veitti bóluefni Moderna skilyrt íslenskt markaðsleyfi síðdegis í dag. 6.1.2021 17:01
Öll nema eitt á heimleið frá Póllandi Öll sem greindust með veiruna á landamærum í dag eru búsett á Íslandi og voru öll nema eitt á heimleið frá Póllandi. Yfirmaður smitrakningateymis almannavarna segir þessar sveiflur á landamærum viðbúnar þegar fólk snýr heim til Íslands eftir hátíðarnar. 6.1.2021 16:48
Mæla ekki með bólusetningu barna í áhættuhópum að svo stöddu Barnalæknar mæla ekki með því að börn í áhættuhópum verði bólusett gegn kórónuveirunni að svo stöddu. Þó gæti komið til greina að bólusetja börn í áhættuhópum í undantekningartilfellum, sérstaklega þegar reynsla er komin á bóluefnið. 6.1.2021 16:04
Kom á óvart að vera boðaður í bólusetningu Á þriðja hundrað einstaklinga hafa verið bólusettir við Covid-19 á höfuðborgarsvæðinu sem tilheyra ekki hópi heilbrigðisstarfsmanna eða íbúa á dvalar- og hjúkrunarheimilum. 6.1.2021 15:52
Fyrstu smitin á Norðurlandi eystra í tæpan mánuð Tveir eru nú með virka kórónuveirusýkingu á Norðurlandi eystra en fjórðungurinn hefur verið veirulaus síðan 12. desember. Þeir smituðu greindust við landamæraskimun, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu. 6.1.2021 15:24
Sementsverksmiðjan harmar rykmengunina Mannleg mistök urðu til þess að síló við Sementsverksmiðjuna á Akranesi yfirfylltist við uppskipun aðfaranótt 5. janúar, með þeim afleiðingum að sementsryk þyrlaðist upp og settist á götur, hús og bifreiðar í nágrenninu. 6.1.2021 15:12
Mikið álag á bráðamóttökuna í Fossvogi og fólki vísað annað Mikið álag er núna á Landspítalanum, meðal annars á bráðamóttöku í Fossvogi. Fólk sem leitar á bráðamóttökuna vegna vægari slysa eða veikinda má því gera ráð fyrir langri bið eftir þjónustu. 6.1.2021 14:26
Skutu flugeldum á endurnar á Tjörninni Íbúum við Tjörnina er brugðið en ungir menn hafa sést þar við þann ljóta leik að kveikja á flugeldum og kínverjum og beina að fuglalífi sem þar er. 6.1.2021 13:59
Breytt forgangsröðun: Sjötíu ára og eldri bólusettir næst Fólk sem er sjötíu ára og eldra er í næsta forgangshópi og fær næstu bólusetningar. Í hópnum eru um 34 þúsund manns. Samkvæmt dreifingaráætlunum lyfjafyrirtækja er von á bóluefni fyrir um þrjátíu þúsund einstaklinga á fyrsta ársfjórðungi og geta aðrir því sennilega ekki búist við bólusetningu fyrr en eftir mars. 6.1.2021 13:44
„Líklega verða börn oftar send heim“ Fyrirséð er að þjónusta í leikskólum muni skerðast við útfærslu styttingar vinnuvikunnar því viðbótarfjármagn fylgir ekki með framkvæmdinni. Líklega verða börn oftar send fyrr heim vegna svokallaðrar fáliðunarstefnu. Þetta segir formaður Félags stjórnenda leikskóla. 6.1.2021 13:15
Jóhannes í Postura dæmdur í fimm ára fangelsi Jóhannes Tryggvi Sveinbjörnsson, sem hefur sérhæft sig í meðferð við ýmsum stoðkerfisvandamálum, hefur verið dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir að hafa nauðgað fjórum konum á meðferðarstofu sinni á árunum 2009 eða 2010, 2010 eða 2011, 2011 og 2015. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness rétt í þessu. 6.1.2021 12:56
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum okkar tökum við stöðuna á kórónuveirufaraldrinum og bólusetningum hér á landi. 6.1.2021 11:31
Innkalla Malt og appelsín dósir vegna glerbrots Ölgerðin hefur ákveðið að innkalla Malt og appelsín í hálfs lítra dósum vegna tilkynningar um glerbrot í slíkri dós. 6.1.2021 11:06
Fimm greindust innanlands og átján á landamærum Fimm greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Tveir þeirra sem greindust voru í sóttkví, en þrír ekki. 6.1.2021 10:51
Lyfjanotkun ekki lengur frágangssök í lögreglunáminu Notkun lyfseðilsskyldra lyfja verður ekki lengur útilokandi þáttur við inntöku í starfsnám í lögreglufræðum hjá Mennta- og starfsþróunarsetri lögreglunnar. Þetta kemur fram í tölvupósti frá Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra til Ólafíu Kristínar Norðfjörð, sem hefur tvívegis verið neitað um námið sökum þess að hún tekur kvíða- og þunglyndislyfið Sertral. 6.1.2021 09:02
Vistunartími barna á leikskólum Reykjavíkur skerðist ekki þótt vinnuvikan styttist Vistunartími barna í leikskólum Reykjavíkurborgar mun ekki skerðast og ekki eru gerðar breytingar á þjónustu við börnin og fjölskyldur þeirra þótt vinnuvikan hafi verið stytt í skólunum nú um áramótin. 6.1.2021 08:41
Spá allt að fjórtán stiga frosti Það er tiltölulega rólegt veður þessa dagana með sterkar hæðir í kringum okkur en í dag er spáð norðvestlægri átt, fimm til þrettán metrum á sekúndu og bjartviðri. 6.1.2021 07:34
Hjólhýsi brann til kaldra kola í Laugardal Eldur kom upp í hjólhýsi á tjaldstæðinu í Laugardal um klukkan sex í morgun. Þegar slökkviliðið kom á vettvang var hjólhýsið alelda og brann það til kaldra kola. 6.1.2021 07:31
Förum næst í kræklinginn þegar við verðum búin að byggja upp fiskeldið Kræklingur sest í stórum stíl á fiskeldiskvíar og er vannýtt tegund, að mati fiskeldismanns á Vestfjörðum. Hann hvetur til þess að Vestfirðingar snúi sér að kræklingaeldi þegar búið verði að byggja upp fiskeldið. 5.1.2021 23:19
Doktorsnemar nái ekki endum saman og andleg heilsa þeirra slæm Andleg heilsa doktorsnema er oft á tíðum mjög slæm að sögn formanns félags doktorsnema. Þeir eigi erfitt með að ná endum saman og þurfi því að vinna mikið með náminu þrátt fyrir að doktorsnám sé skilgreint sem full vinna. 5.1.2021 22:02
Ríkisstjórnin vinsælli en stjórnarflokkarnir samanlagt Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði, segir stuðning við ríkisstjórnina ágætan ef marka megi kannanir. Þó sé fylgi stjórnarflokkanna ekki í takt við stuðning við ríkisstjórnina og því virðist sem flokkunum sé ekki að takast að ná til sín fylgi. 5.1.2021 21:00
Fær ekki að flytja inn American Pit Bull Terrier Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur staðfest ákvörðun Matvælastofnunar um að synja einstaklingi um undanþágu frá banni við innflutningi á hundi af tegundinni American Pit Bull Terrier. 5.1.2021 20:38