Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gætu þurft að opna fleiri farsóttarhús vegna mikillar fjölgunar Mikil fjölgun hefur verið í farsóttarhúsinu við Rauðarárstíg síðustu daga. Forstöðumaður segir ekki ólíklegt að það þurfi að opna fleiri slík hús ef fram heldur sem horfir. Ríflega þúsund manns hafa þurft að dvelja í sóttvarnahúsum frá því kórónuveirufaraldurinn hófst. 9.1.2021 22:49
Bjartsýnn á að bólusetningu verði lokið hér á landi í sumar Vonir glæðast um að það styttist í hjarðónæmi á Íslandi og reikna má með því að bólusetningu við Covid-19 verði lokið um mitt sumar. Þetta segir Richard Bergström, sem hefur yfirumsjón með bóluefnamálum í Svíþjóð og á sæti í samninganefnd framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB) um bóluefni. 9.1.2021 21:34
Farið í yfir 60 verkefni í aftakaveðri á Austurlandi Nær allar björgunarsveitir á svæðinu milli Þórshafnar og Djúpavogs hafa verið kallaðar út á einhverjum tímapunkti í dag vegna óveðurs. Voru verkefnin orðin ríflega 60 talsins á Austurlandi um klukkan 16 í dag. Aftakaveður hefur verið í landshlutanum og appelsínugular veðurviðvaranir í gildi á öllum austurhelmingi landsins. 9.1.2021 18:33
Önnur lönd tilkynna um andlát aldraðra eftir bólusetningar Fimmta andlátið sem tengist mögulega bólusetningu við Covid-19 var tilkynnt til Lyfjastofnunar í gær. Þetta er sjötta alvarlega tilkynningin sem stofnunin fær vegna bólusetningarinnar. Forstjóri stofnunarinnar segir að sambærilegar tilkynningar hafi komið upp í nágrannalöndum okkar. 9.1.2021 18:32
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Fimmta andlátið sem tengist mögulega bólusetningu við Covid-19 var tilkynnt til Lyfjastofnunar í gær. Um er að ræða sjöttu alvarlegu tilkynninguna sem stofnunin fær í kjölfar bólusetninga. Við ræðum við forstjóra Lyfjastofnunar í fréttum Stöðvar 2 í kvöld, sem segir sambærilegar tilkynningar hafa komið upp í nágrannalöndum. 9.1.2021 18:11
Réðust á og rændu skutlara Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar tveggja aðila sem grunaðir eru um að hafa ráðist á og rænt svokallaðan skutlara í Hafnarfirði í nótt. 9.1.2021 16:48
Vestanverðum Neskaupstað lokað fyrir umferð vegna aftakaveðurs Aftakaveður er á Austurlandi og appelsínugular veðurviðvaranir í gildi á öllum austurhelmingi landsins. Búist er við því að veðrið taki að lægja eftir miðnætti en þangað til verður ekkert ferðaveður. 9.1.2021 16:22
Áhyggjuefni hve mikið smituðum hefur fjölgað Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, segir það kveikja á viðvörunarbjöllum að greindum kórónuveirusmitum hafi fjölgað núna eftir áramót. Tíu greindust með veiruna innanlands í gær en tveir daginn þar áður. Níu af þessum tíu voru í sóttkví. 9.1.2021 16:15
Var ekki í síbrotagæslu þrátt fyrir langan sakaferil og mörg nýleg brot Verjandi manns sem var dæmdur í sex og hálfs árs fangelsi í héraðsdómi Reykjavíkur í gær segir að skjólstæðingur sinn hafi tekið ákvörðun um næstu skref en vilji ekki gefa upp hver hún sé á þessari stundu. Þá hefur ekki komið fram hvort ríkissaksóknari hyggst áfrýja málinu til Landsréttar eður ei. 9.1.2021 14:00
Tryggja lágmarksflug til Bandaríkjanna út mars Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur gert nýjan samning við Icelandair sem tryggir lágmarkssamgöngur milli Bandaríkjanna og Íslands til og með 31. mars. Verður því flogið minnst tvisvar í viku til Boston á því tímabili. 9.1.2021 13:35
Tilkynnt um annað tilvik alvarlegra aukaverkana í kjölfar bólusetningar Ein tilkynning hefur borist til Lyfjastofnunar um andlát eftir bólusetningu gegn Covid-19 til viðbótar við þær fjórar tilkynningar sem greint var frá fyrr í vikunni. Um er að ræða aldraða manneskju sem var bólusett í lok desember en lést fyrir skömmu. 9.1.2021 12:56
„Hér er snarvitlaust veður“ Aftakaveður er á Austurlandi og appelsínugular veðurviðvaranir í gildi á öllum austurhelmingi landsins. Bátar hafa losnað frá bryggju, rúður sprungið og þakklæðningar losnað. 9.1.2021 12:55
Óttast að fuglaflensa berist til Íslands Dýralæknir hjá Matvælastofnun óttast mikla útbreiðslu fuglaflensu í Evrópu og að flensan gæti borist til Íslands um leið og farfuglarnir fara að skila sér aftur til landsins. Fuglaeigendur eru því beðnir um að gera ráðstafanir til að verja fugla sína fyrir smiti frá villtum fuglum með því að viðhafa góðum smitvörnum og forðast að hafa nokkuð í umhverfi fuglahúsa sem laðar að villta fugla. 9.1.2021 12:46
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum okkar fjöllum við meðal annars um vont veður á stórum hluta landsins og farþegaflugvél frá Indónesíu sem horfinn er af radarmælum. 9.1.2021 11:56
Tíu greindust innanlands í gær Tíu greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og voru níu í sóttkví við greiningu. Þetta kemur fram í nýuppfærðum tölum á covid.is. 9.1.2021 10:46
Ekkert ferðaveður á Austurlandi í dag Mjög slæmt veður er á austurhelmingi landsins og hríð á norðausturfjórðungnum. Appelsínugular viðvaranir eru í gildi á meðan ofsaveðrið gengur yfir, en búist er við að það taki að lægja eftir miðnætti. 9.1.2021 10:05
Jón Þór sækist ekki eftir endurkjöri Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata og formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, mun ekki gefa kost á sér í næstu alþingiskosningum. Þetta tilkynnti hann í dag samhliða því að opnað var fyrir skráningar í prófkjör Pírata. 9.1.2021 09:02
Lögðu hald á plöntur og búnað til fíkniefnaframleiðslu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af manni í Hafnarfirði skömmu eftir klukkan tíu í gærkvöldi vegna framleiðslu fíkniefna. Samkvæmt dagbók lögreglu var lagt hald á plöntur og búnað til framleiðslunnar. 9.1.2021 07:32
„Við viljum ekki að þessar reglur séu of íþyngjandi“ Takmarkanir á samkomum verða rýmkaðar þann 13. janúar. Samkvæmt reglunum verður krám og skemmtistöðum áfram gert að hafa lokað. Heilbrigðisráðherra segist skilja gremju fólks yfir misræmi í sóttvarnaraðgerðum. 8.1.2021 22:37
Appelsínugular viðvaranir og ekkert ferðaveður Gular og appelsínugular viðvaranir taka gildi að stórum hluta landsins í nótt. Appelsínugular viðvaranir eru á miðhálendi og austurhluta landsins og ekkert ferðaveður. 8.1.2021 21:39
Laugavegshlaupið seldist upp á tuttugu mínútum: „Ómögulegt að fjölga þátttakendum“ Laugavegshlaupið seldist upp á tuttugu mínútum í dag. Upplýsingafulltrúi ÍBR segir leitt að færri komust að en vildu. 8.1.2021 20:58
Eigandi Sporthússins segir reksturinn ekki standa undir sér: „Þetta hjálpar við að lágmarka tjónið eða minnka það“ Eigandi Sporthússins segir rýmkun á sóttvarnareglum hjálpa við að lágmarka tjónið sem líkamsræktarstöðvar hafa orðið fyrir. Reksturinn standi þó ekki undir sér. 8.1.2021 20:26
Maðurinn var stórhættulegur og kerfið brást Kona sem varð fyrir stórhættulegri hnífstunguárás að tilefnislausu á heimili sínu síðasta sumar af hálfu síbrotamanns telur kerfið hafa brugðist. Maðurinn hafi fengið að ganga laus þrátt fyrir að hafa stuttu áður framið alvarlega líkamsárás, frelsissviptingu og fjölda annarra brota. Hann var dæmdur í sex og hálfs árs fangelsi fyrir brotin í Héraðsdómi í dag. 8.1.2021 19:01
Breyttar ferðatakmarkanir í Bretlandi og Danmörku Breyttar ferðatakmarkanir eru í Bretlandi og Danmörku vegna faraldurs kórónuveirunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Utanríkisráðuneytinu. 8.1.2021 18:59
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Fjöldatakmarkanir miða við 20 manns, heimilt verður að bjóða upp á hópatíma á líkamsræktarstöðvum og fleiri mega sækja menningarviðburði. Þetta er meginefni breyttra reglna um samkomutakmarkanir sem heilbrigðisráðherra hefur ákveðið. Reglurnar taka gildi í næstu viku með fyrirvara um breytingar á faraldrinum hér á landi. 8.1.2021 18:00
Krefst kyrrsetningar á Bræðraborgarstíg eitt og þrjú Lögmaður þeirra, sem urðu fyrir líkams- eða eignatjóni vegna brunans á Bræðraborgarstíg í sumar og aðstandanda þeirra sem létust, hefur farið fram á kyrrsetningu á Bræðraborgarstíg eitt og þrjú. Hann segir það gert til að tryggja skaðabótakröfur umbjóðenda sinna gagnvart húseigandanum, sem er fyrirtækið HD verk. 8.1.2021 17:59
Hreinsunarstarf gengur vel en hættustig áfram í gildi Hreinsunarstarf á Seyðisfirði hefur gengið vel og er búið að opna leið í gegnum stóru skriðuna sem féll þann 18. desember. 8.1.2021 17:10
Íslendingar fá tvöfalt fleiri skammta af bóluefni Pfizer og BioNTech Gert er ráð fyrir því að Ísland geti fengið tvöfalt fleiri skammta af bóluefni Pfizer og BioNTech við Covid-19 í kjölfar nýs samkomulags Evrópusambandsins (ESB) við framleiðendurna. Þetta staðfestir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra í samtali við fréttastofu. 8.1.2021 17:07
Ofurhlauparar verulega skúffaðir eftir skráningarvesen Fullbókað er í Laugavegshlaupið 2021. Gangi ykkur vel í undirbúningnum! Svona voru skilaboð sem birtust á Facebook-síðu Laugavegs - Ultra marathon upp úr klukkan tólf í hádeginu. Viðbrögðin létu ekki á sér standa. 8.1.2021 15:54
„Lem þig svo illa að mamma þín á eftir að skammast sín fyrir að eiga þig“ Guðfinnur Óskarsson hefur verið ákærður fyrir hótanir í garð tæplega fimmtugs karlmanns. Ákæran á hendur Guðfinni er birt í Lögbirtingablaðinu í dag þar sem ekki hefur tekist að birta honum ákæruna í persónu. Hann er kvaddur til þingfestingar málsins þann 18. febrúar næstkomandi. 8.1.2021 14:51
Þóra beið lægri hlut í launadeilu við Óperuna Íslenska óperan hefur verið sýknuð í máli sem söngkonan Þóra Einarsdóttir höfðaði á hendur Óperunni vegna meintra vangoldinna greiðslna. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Málskostnaður fellur niður. 8.1.2021 14:02
Appelsínugul viðvörun á stórum hluta landsins Almannavarnir vekja athygli á því að Veðurstofa Íslands hefur gefið út appelsínugula viðvörun á Norðausturlandi, Austurlandi, Austfjörðum, Suðausturlandi og á miðhálendinu sem tekur gildi klukkan tvö í nótt og gildir til klukkan 18 á morgun. 8.1.2021 13:57
Gunnar Þormar er látinn Gunnar Þormar, tannlæknir og fyrsti formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar, er látinn. Hann lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut sunnudaginn 3. janúar. 8.1.2021 12:30
Hafa náð tökum á eldinum en íbúar áfram hvattir til að loka gluggum Íbúar í Mosfellsbæ eru enn hvattir til að loka gluggum vegna mengunar sem stafar frá ruslahaugi sem kvikna í árla morguns. Eldurinn náði á tímabili yfir heilmikil yfirborð ruslahaugs í Álfsnesi en slökkviliðsmaður á vettvangi segir að búið sé að ná tökum á eldinum. 8.1.2021 12:28
Breytingar 13. janúar: Tuttugu mega koma saman, ræktin opnuð og íþróttir fá grænt ljós Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur lagt til að rýmka reglur um fjöldatakmarkanir í 20 manns. Þá verður líkamsræktarstöðvum heimilt að opna aftur en aðeins til að bjóða upp á hópatíma og þá með ákveðnum skilyrðum. 8.1.2021 12:20
Ráðherra kominn með minnisblað Þórólfs í hendurnar Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, hefur skilað heilbrigðisráðherra minnisblaði, sem felur í sér tillögur hans um tilhögun næstu sóttvarnaaðgerða. 8.1.2021 12:00
Þúsund Moderna skammtar til landsins snemma í næstu viku Von er á fyrstu skömmtum bóluefnis gegn kórónuveirunni frá Lyfjafyrirtækinu Moderna í fyrrihluta næstu viku og koma þúsund skammtar í sendingunni. Þetta segir Júlía Rós Atladóttir, framkvæmdastjóri Distica, sem dreifir bóluefninu frá Moderna hér á landi. 8.1.2021 11:55
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum okkar fjöllum við um þróun kórónuveirufaraldursins hér á landi en aðeins tveir greindust smitaðir innanlands í gær. 8.1.2021 11:30
Tveir greindust innanlands og fimmtán á landamærum Tveir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Báðir voru þeir í sóttkví. Fimmtán greindust á landamærum. 8.1.2021 10:55
Sex og hálfs árs fangelsi fyrir tvær hrottalegar líkamsárásir Þorlákur Fannar Albertsson hefur verið dæmdur í sex og hálfs árs fangelsi fyrir tilraun til manndráps, alvarlega líkamsárás og frelsissviptingu á síðasta ári. Önnur árásin var á leigusala hans í júní, konu á fimmtugsaldri, en hin á félaga sinn á þrítugsaldri í apríl. Þorlákur bar fyrir sig að hafa verið í geðrofi þegar hann réðst á fólkið. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. 8.1.2021 09:26
Íbúar loki gluggum vegna elds í dekkjakurli í Álfsnesi Íbúar á Esjumelum og Leirvogstunguhverfi í Mosfellsbæ hafa verið hvattir til að loka gluggum vegna elds í urðunarstöð Sorpu í Álfsnesi. Reykur leggur í átt að byggðinni. 8.1.2021 09:01
Telja að aðgerðir um borð í Polar Nanoq hafi verið ólögmætar Lögfræðingarnir Bjarni Már Magnússon, prófessor við Háskólann í Reykjavík, og Hlín Gísladóttir telja að aðgerðir íslensku lögreglunnar um borð í grænlenska togaranum Polar Nanoq í janúar 2017 hafi hvorki staðist íslensk lög né alþjóðalög. 8.1.2021 08:24
Þessar breytingar tóku gildi um áramótin Ýmsar breytingar í hinum ýmsu málaflokkum tóku gildi nú um áramótin. Gjöld voru víða hækkuð, til dæmis í sund, sorphirðu og strætó - en í sumum tilfellum lækkuð. Skattabreytingar voru innleiddar, fæðingarorlof lengt og plastpokar bannaðir. 8.1.2021 08:15
Lélegt skyggni, hættuleg akstursskilyrði og hviður yfir 45 m/s Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular viðvaranir fyrir Norðurland eystra, Austurland að Glettingi, Austfirði og Suðausturland sem taka gildi í nótt og standa fram á annað kvöld. 8.1.2021 07:16
Meðhöndlarinn sem misnotaði traust þjáðra kvenna Jóhannes Tryggvi Sveinbjörnsson, sem dæmdur var í fimm ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fjórum konum, virðist hafa talið kvenkyns sjúklinga marga hverja girnast sig kynferðislega. Brot hans gegn tveimur kvennanna þóttu sérstaklega ósvífin í ljósi ungs aldurs annarrar konunnar og þess að hin var með alvarlegan sjúkdóm. 8.1.2021 07:01