Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rýmingu ekki aflétt á Seyðisfirði Ákveðið hefur verið að aflétta ekki rýmingu Fossgötu á Seyðisfirði að svo stöddu. Er það vegna úrkomuspár og var ákvörðunin tekin á samráðsfundi lögreglunnar á Austurlandi, almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra, Veðurstofu Íslands og Múlaþings í dag. 13.1.2021 18:07
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í fréttatíma Stöðvar tvö í kvöld verðum við með óhugnanlegar myndir af árásinni í Borgarholtsskóla í dag þegar unglingur var stunginn og aðrir barðir. Við tölum einnig við sóttvarnalæknir um aðgerðir á landamærunum. 13.1.2021 18:00
Leggur til að fólk þurfi að framvísa vottorði til að komast til landsins Sóttvarnalæknir hefur sent heilbrigðisráðherra nýja tillögu um fyrirkomulag við landamærin í ljósi þess að ráðuneytið hefur tjáð honum að ekki sé lagastoð fyrir tillögum hans, hvorki tillöguna um að öllum verði gert skylt að fara í tvöfalda skimun með sóttkví á milli né tillögu hans um tveggja vikna dvöl í farsóttarhúsi. Þórólfur greindi frá þessu í Reykjavík síðdegis. 13.1.2021 17:20
Fjórtán ára fangelsi fyrir manndráp í Sandgerði Karlmaður á sextugsaldri hefur verið dæmdur í fjórtán ára fangelsi fyrir að hafa banað eiginkonu sinni í Sandgerði í lok mars. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness í dag en þinghald í málinu var lokað. 13.1.2021 16:50
Lögregla raðar saman púslunum í Borgarholtsskóla Að minnsta kosti sex manns hafa þurft að leita aðstoðar á slysadeild eftir að til átaka kom í Borgarholtsskóla í Grafarvogi í hádeginu í dag. Lögregla segir í tilkynningu að meiðsli þessara sex liggi ekki fyrir. Elín Agnes Kristínardóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn staðfestir í samtali við Vísi að engin þeirra slösuðu séu í lífshættu eða alvarlega slasaðir. 13.1.2021 16:44
Ásmundur á mölina Ásmundur Einar Daðason hefur ákveðið að leggja allt undir og færa sig yfir á mölina úr til þess að gera öruggu þingsæti fyrir næstu kosningar. 13.1.2021 16:17
Fresta breytingum á skimun eftir mikla gagnrýni Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að fresta um ótiltekinn tíma breytingum á neðri mörkum aldursviðmiða vegna lýðgrundaðra skimana fyrir brjóstakrabbameinum. Kynna þurfi betur áformaðar breytingar og fagleg rök að baki þeim. Ákvörðun um að hækka efri mörk aldursviðmiðanna úr 69 árum í 74 ár stendur óbreytt. 13.1.2021 15:50
Skólastjórinn í Borgarholtsskóla: Árásin verði til að breyta ýmsu í íslensku samfélagi Ársæll Guðmundsson skólameistari segir að árás í Borgarholtsskóla sé grafalvarlegt mál og muni verða til þess að breyta íslensku samfélagi. Sex voru fluttir á slysadeild eftir atburðina sem áttu sér stað upp úr klukkan eitt í dag. 13.1.2021 15:17
Elliði sakar Katrínu um hræsni og aumt yfirklór Elliði Vignisson bæjarstjóri Ölfuss er afar ósáttur með háðugleg orð Katrínar Oddsdóttur formanns Stjórnarskrárfélagsins í sinn garð og svarar í sömu mynt. Og vill bæta heldur í ef eitthvað er. 13.1.2021 14:56
„Þetta er ekki hugsað til að þú getir haldið partíið sem þig hefur langað til að halda“ Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Almannavörnum, segir að fólk verði að gera sér grein fyrir því að tilslakanir á sóttvarnareglum séu alls ekki hugsaðar til þess að fólk geti haldið veislur og partí. 13.1.2021 13:42
Fullt í alla tíma og ætla að nýta sólarhringinn enn betur Líkamsræktarstöðvar hafa opnað dyr sínar á nýjan leik en ný reglugerð heilbrigðisráðherra tók gildi í dag. Aðeins má hafa opið fyrir hóptíma með þjálfara sem hefur yfirsýn og tryggir að sóttvarnarreglum sé fylgt. Tuttugu manna hámark er í hvern tíma. 13.1.2021 13:13
Enginn greindist og sóttkví aflétt af hjartadeild Landspítalans Niðurstöður úr Covid-19 skimun allra sjúklinga og meirihluta starfsfólks hjartadeildar Landspítala liggja núna fyrir og eru allar neikvæðar. 13.1.2021 13:06
Sex fluttir á slysadeild eftir árás í Borgarholtsskóla Sex voru fluttir á slysadeild á öðrum tímanum í dag eftir að árás var gerð í Borgarholtsskóla. Þetta staðfestir varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í samtali við Vísi. Einn var leiddur út úr skólanum í járnum. 13.1.2021 13:03
Stjórnvöld hafni of oft beiðnum umsækjenda um gögn í ráðningarmálum Stjórnvöld hér á landi eiga almennt nokkuð í land með að beita reglum um aðgang að gögnum með viðunandi hætti. Þörf er bæði á viðhorfsbreytingu og aukinni fræðslu innan stjórnsýslunnar að því er fram kemur í áliti setts umboðsmanns Alþingis. 13.1.2021 13:00
Bein útsending: Vísindarannsóknir á tímum heimsfaraldurs Vísindasiðanefnd boðar til opins málþings um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði á tímum Covid-19. 13.1.2021 12:15
„Ekki smíða spegil nema þú sért tilbúinn til að spegla þig í honum sjálfur“ Katrín Oddsdóttir, formaður Stjórnarskrárfélagsins, segir ekki hægt að tengja baráttuaðferðir félagsins við aðferðir Donalds Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseta. 13.1.2021 11:51
Vongóður um að staðan á Landakoti sé ekki að endurtaka sig Yfirlæknir hjartadeildar Landspítalans er vongóður um að staðan á Landakoti í október sé ekki að endurtaka sig. Hvorki starfsmenn né sjúklingar á hjartadeild hafi greinst með kórónuveiruna í umfangsmiklum prófunum sem hófust á deildinni í gær eftir að einn sjúklinga greindist jákvæður við útskrift í gærdag. 13.1.2021 11:50
Neikvæðar niðurstöður komnar hjá liðlega helmingi þeirra sem þarf að skima Landspítali hefur nú fengið niðurstöður rannsókna sýkla- og veirufræðideildar á Covid-skimun liðlega helmings þeirra 180 einstaklinga sem þarf að skima eftir að sjúklingur á hjartadeild greindist með Covid-19 í gær. 13.1.2021 11:42
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Nýjar reglur um samkomutakmarkanir hafa tekið gildi. Við fjöllum um breytingarnar í hádegisfréttum okkar og heimsækjum líkamsræktarstöð en slíkir staðir fá nú að hafa opið, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. 13.1.2021 11:33
Áslaug Arna skipar í embætti fjögurra héraðsdómara Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hefur skipað Björn L. Bergsson og Jóhannes Rúnar Jóhannsson í embætti dómara með fyrsta starfsvettvang hjá Héraðsdómi Reykjavíkur frá 14. janúar næstkomandi. 13.1.2021 11:30
Sex greindust innanlands og 26 á landamærum Sex greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Þrír þeirra sem greindust voru í sóttkví, en þrír ekki. 26 greindust á landamærum. 13.1.2021 10:59
Píratar vilja að fleiri en tveir geti verið í hjúskap Björn Leví Gunnarsson telur fráleitt að ríkið hafi með það að gera hversu margir eru skráðir í hjúskap. 13.1.2021 10:38
Hagur neytenda og auglýsenda að ríkið sé á auglýsingamarkaði að mati VG Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir telur að tryggja þurfi fjármögnun Ríkisútvarpsins ef taka eigi stofnunina af auglýsingamarkaði. 13.1.2021 10:14
Þórunn Egilsdóttir hættir á þingi Þórunn Egilsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hyggst ekki gefa kost á sér til áframhaldandi setu á Alþingi í komandi kosningum í haust. 13.1.2021 09:19
Svipti sig lífi eftir vitnisburð um greiðslu undirheimamanns til lögreglufulltrúa Þrítugur karlmaður sem tjáði lögreglumönnum að hann hefði orðið vitni að óeðlilegum samskiptum undirheimamanns og lögreglufulltrúa fór með þær upplýsingar til lögreglumanna á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglumennirnir mátu frásögn hans trúverðuga og fóru á fund yfirmanns fíkniefnadeildar. Viðbrögð hans voru að bera ásakanirnar beint upp á lögreglufulltrúann án þess að taka þær fyrst til skoðunar. Karlmaðurinn þrítugi svipti sig lífi skömmu síðar. 13.1.2021 09:00
Öll sýni af starfsfólki hafa enn sem komið er reynst neikvæð Enn sem komið er hafa öll sýni af starfsfólki á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut, deild 14 EG, reynst neikvæð eftir að sjúklingur á deildinni greindist smitaður af kórónuveirunni í gær. 13.1.2021 08:19
Þessar breytingar á samkomubanni tóku gildi á miðnætti Nýjar reglur á samkomutakmörkunum tóku gildi á miðnætti. Nú mega tuttugu koma saman í stað tíu áður, líkamsræktarstöðvar mega hafa opið en einungis fyrir hóptíma þar sem ítrustu sóttvarnareglum er fylgt og veitingastaðir mega taka á móti tuttugu gestum í sama rými í stað fimmtán. 13.1.2021 06:19
Ógnaði starfsmönnum skyndibitastaðar með eggvopni Maður ógnaði starfsmönnum á skyndibitastað í austurhluta borgarinnar með eggvopni um kl. 19.30 en náði engum fjármunum. Hann hefur verið handtekinn. 12.1.2021 23:02
Öll sýni annarra sjúklinga reyndust neikvæð Enginn annar sjúklingur sem liggur inni á hjartadeild 14 EG í Landspítalanum við Hringbraut er smitaður af Covid-19. Öll sýni sem tekin voru í dag reyndust neikvæð en skimun á starfsfólki deildarinnar stendur enn yfir. 12.1.2021 22:44
„Óperan er alvaldur hér,“ segir formaður FÍH „Það blasir við mér að dómurinn tekur þá afstöðu að þarna hafi verksali og verkkaupi gert með sér samning en við munum skoða það í framhaldinu hvort við áfrýjum þessu,“ segir Gunnar Hrafnsson, formaður Félags íslenskra hljómlistarmanna, um nýfallinn dóm í máli söngkonunnar Þóru Einarsdóttur gegn Íslensku óperunni. 12.1.2021 21:22
Sakaður um gróft heimilisofbeldi og má fylgjast með vitnaleiðslu Dómarar við Landsrétt segja að ekki sé hægt að vísa manni úr réttarsal á meðan kona sem hann hefur verið ákærður fyrir að beita grófu heimilisofbeldi gefur skýrslu í aðalmeðferð málsins. Með því felldu þeir úrskurð Héraðsdóms Reykjaness þar að lútandi niður. 12.1.2021 20:57
Brjóstaskurðlæknir hefur efasemdir um að seinka skimun á brjóstakrabbameini Brjóstaskurðlæknir hefur efasemdir um þá ákvörðun að hefja skimun fyrir brjóstakrabbameini um fimmtugt í stað fertugs. Ísland sé í aðstöðu til að gera betur og miða þjónustuna við hverja konu. 12.1.2021 20:01
Biskupsemættið skoðar útfærslur á fermingum í samvinnu við sóttvarnalækni Biskupsembættið vinnur nú að því með sóttvarnalækni að útfæra leiðir til að standa að fermingum í vor. Þetta kemur fram í bréfi sem sitjandi biskup, Solveig Lára Guðmundsdóttir, sendi prestum og öðrum starfsmönnum kirkjunnar í dag. 12.1.2021 19:38
Enginn á að verða útundan í bólusetningu Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins bindur enn vonir við að hægt verði að bólusetja stærstan hluta þjóðarinnar á stuttum tíma. Gætt verði að því að enginn verði útundan þegar búið verði að bólusetja viðkvæmustu hópana. 12.1.2021 19:22
Óttast að vera send aftur til Ítalíu þar sem hún hafi verið seld í mansal Kona frá Nígeríu sem sótt hefur um alþjóðlega vernd á Íslandi óttast að verða send aftur til Ítalíu þar sem hún hafi verið fórnarlamb mansals. Óttast er að stór hluti kvenna frá Nígeríu sem óskað hefur eftir vernd hér á landi hafi einnig verið seldar í mansal. 12.1.2021 19:17
Sjúklingur á hjartadeild Landspítala greindur með Covid-19 Lokað hefur verið fyrir innlagnir á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut eftir að sjúklingur þar greindist með Covid-19. Ekki er vitað hvernig sjúklingurinn smitaðist en vitað að hann smitaðist á meðan hann lá inni. 12.1.2021 19:02
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Kona frá Nígeríu óttast mjög að þurfa að snúa aftur til Ítalíu þar sem hún segist hafa verið þolandi mansals í tvö ár. 31 kona frá Nígeríu hefur sótt um alþjóðþjóðlega vernd á Íslandi á síðustu tveimur árum og óttast verkefnastjóri í Bjarkarhlíð að stór hluti þeirra hafi verið fórnarlömb mansals. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 12.1.2021 18:01
Börn í sóttkví með forráðamanni við komu til landsins Frá og með morgundeginum verður börnum fæddum 2005 eða síðar skylt að sæta sóttkví með foreldri eða forráðamanni við komu til landsins. Frá þessu er greint á vef stjórnarráðsins en ákvörðunin er í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. 12.1.2021 17:52
Hver er munurinn á bóluefnum Pfizer og Moderna? Bóluefni lyfjaframleiðendanna Pfizer og Moderna, fyrstu bóluefnanna gegn kórónuveirunni sem komast í notkun á Íslandi, byggja á sömu tækni og eru um margt lík. Sérfræðingur í ónæmisfræði segir efnin jafnörugg en meginmunurinn liggi í geymsluþolinu og vikum milli skammta. Ekkert liggi fyrir um hvort annað efnið sé betra fyrir ákveðna hópa en hitt. 12.1.2021 17:03
Krefjast rannsóknar á rýmingu: „Þetta flækjustig hefði getað kostað mörg mannslíf“ Heimastjórn Seyðisfjarðar gerir kröfu um að strax verði hafin rannsókn á því hvað varð þess valdandi að rýmingar á Seyðisfirði fóru ekki fram fyrr en skriður voru farnar að falla á bæinn. 12.1.2021 15:57
Svona eru reglurnar á skíðasvæðunum sem opna á morgun eftir tíu mánaða hlé Skíðasvæði á Íslandi opna á morgun þegar nýjar samkomutakmarkanir taka gildi. Ekki má þó taka við nema helming af hámarksfjölda gesta á hverju svæði, auk þess sem skíðaskálar og skíðaleigur verða lokaðar og gestir þurfa að bera grímu. 12.1.2021 15:36
Bindur vonir við að bólusetning komist á almennilegt skrið í lok mars Jákvæðar fréttir bárust frá lyfjaframleiðandanum AstraZeneca í morgun en búið er að sækja um skilyrt markaðsleyfi fyrir bóluefni gegn kórónuveirunni hjá Lyfjastofnun Evrópu. Umsóknin mun hljóta flýtimeðferð hjá stofnuninni. 12.1.2021 15:13
Kaþólska kirkjan byrjar messuhald á ný Kaþólska kirkjan á Íslandi hyggst hefja messuhald á ný þegar breyttar samkomutakmarkanir taka gildi á morgun. Messum á vegum kirkjunnar var aflýst í byrjun mánaðar eftir að of margir komu þar saman í að minnsta kosti tvígang. 12.1.2021 15:12
Umferð í Vaðlaheiðargöngum dróst saman um 20 prósent milli ára Heildarumferð í Vaðlaheiðargöngum á árinu 2020 var 414 þúsund ferðir, um 100 þúsund færri ferðir en árið 2019. Hljómar samdrátturinn því upp á 19,5 prósent milli ára. 12.1.2021 14:30
„Ég hefði átt að vera varkárari í orðum mínum“ Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segist sjá eftir því að hafa ekki verið varkárari í orðum sínum í viðtali sem birtist á forsíðu Fréttablaðsins í morgun. Hann kveðst ekki myndu lýsa því þannig að Danir væru að „eyðileggja“ samningaviðræður Íslands og Pfizer, líkt og haft var eftir honum í blaðinu. Hann segir viðtalið þó ekki hafa valdið neinu fjaðrafoki innan Pfizer. 12.1.2021 13:48