Fleiri
Drengurinn sem lögreglan leitaði að fundinn Uppfært: Drengurinn fannst heill á húfi. 13.1.2021 21:20 Hitta alla sem koma smitaðir til landsins og fengu loks bólusetningu Fjögur hundruð manns voru bólusettir með bóluefni lyfjaframleiðandans Moderna hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins á Suðurlandsbraut í dag. Bólusetningin gekk vel og var kærkomin framlínustarfsfólki úr röðum lögreglu og sjúkraflutningamanna, sem oft kemst í tæri við kórónuveiruna. 13.1.2021 20:01 Sjá næstu 50 fréttir
Telur tillögu sóttvarnalæknis um aðgerðir á landamærum gríðarlega íþyngjandi Forstjóri Airport Associates telur það mjög brýnt að frumvarp um breytingar á sóttvarnalögum, sem nú liggur fyrir Alþingi, verði samþykkt. Hann segir tillögu sóttvarnalæknis um að farþegar framvísi neikvæðu prófi á landamærum hafa gríðarlega íþyngjandi afleiðingar fyrir flugið. 14.1.2021 21:11
Leggur ein fram frumvarp um stjórnarskrárbreytingar Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, mun leggja fram frumvarp um stjórnarskrárbreytingar á Alþingi þegar nýtt þing hefst. Hún ein mun leggja fram frumvarp en ekki tókst að komast að samkomulagi um sameiginlegt frumvarp meðal formanna flokkanna á þingi. 14.1.2021 20:21
Samfylkingin leggur til bráðabirgðaákvæði um tvöfalda skimun og sóttvarnahús Þingflokkur Samfylkingarinnar leggur fram frumvarp á Alþingi á morgun með bráðabirgðaákvæðum við sóttvarnarlög sem myndu heimila að skylda fólk í tvöfalda skimun við landamærin eða tveggja vikna sóttkví í sóttvarnahúsi. Þá hefur formaður flokksins óskað eftir því að Alþingi verði kallað saman til fundar um málið strax á morgun. 14.1.2021 20:15
Ekki gefið að fyrirtæki geti skikkað alla í vímuefnapróf Forstjóri Persónuverndar segir ekki sjálfgefið að fyrirtæki geti skikkað allt sitt starfsfólk í skimun fyrir áfengi og fíkniefnum. Icelandair ætlar að taka slíka skimun upp fyrir allt sitt starfsfólk en forstjóri félagsins segir það verða gert í samningum við starfsfólk og stéttarfélög. 14.1.2021 20:01
Ekki talið að hreyfingar hafi orðið á jarðlögum á Seyðisfirði Ekki er talið að sprunga í skriðusári skriðunnar, sem féll þann 18. desember á Seyðisfirði, hafi stækkað en tilkynning þess efnis barst í dag. Hreinsunarvinna hafði verið í gangi á áhrifasvæði skriðunnar en henni var hætt af öryggisástæðum vegna mögulegrar hreyfingar í skriðunni. 14.1.2021 19:57
Píratar kalla eftir nýjum frambjóðendum Stefnt er að því að framboðslistar Pírata í öllum kjördæmum fyrir alþingiskosninarnar í september liggi fyrir um miðjan mars. Auglýst hefur verið eftir frambjóðendum sem hafa nú rúman mánuð til að gefa kost á sér. 14.1.2021 19:37
Ekki hægt að skikka fólk í sóttvarnahús án lagastoðar Yfirlögregluþjónn í Leifsstöð segir marga hafa greinst með kórónuveiruna eftir að hafa hafnað sýnatöku á landamærum. Sterkur grunur leikur á að margir sem velja að fara í sóttkví ætli sér ekki að halda hana. Lögspekingur segir ekki hægt að skikka fólk til dvalar í sóttvarnahúsi án sérstakrar lagaheimildar. 14.1.2021 19:20
Segir að ráðist hafi verið á son sinn og honum svo vikið úr skólanum Móðir drengs sem ráðist var á í Borgarholtsskóla í gær segir að sonur sinn hafi sætt hótunum um mánaða skeið. Þær hafi byrjað eftir að hann stöðvaði árás annars drengs á unga stúlku. Hann hafi svo heyrt af því að til stæði að ráðast á sig með hnífi og kallað bróðir sinn til aðstoðar. 14.1.2021 19:11
Gagnrýnir nikótínpúðaauglýsingu Dr. Football: „Svona vitleysingar eru að eitra huga komandi kynslóða“ Hjörvar Hafliðason, fjölmiðlamaður og hlaðvarpsstjórnandi, hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir auglýsingu á nikótínpúðum í hlaðvarpsþættinum Dr. Football í vikunni. Doktor í íþróttafræðum segir það ljóst að auglýsingin hafi verið sett fram sem grín til þess að draga úr alvarleika notkun ungs fólks á nikótínpúðum. 14.1.2021 18:20
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Yfirlögregluþjónn í Leifsstöð segir marga hafa greinst með kórónuveiruna eftir að hafa hafnað sýnatöku á landamærum. Sterkur grunur leikur á að margir sem velja að fara í sóttkví ætli sér ekki að halda hana. 14.1.2021 18:02
Gjafmildi landsmanna bjargaði starfi björgunarsveitarinnar á Flateyri Einu ári eftir að snjóflóð féllu á Flateyri er björgunarsveitin þar á bæ komin í nýtt húsnæði sem sveitin gat keypt með fé sem almenningur og fyrirtæki í landinu gáfu eftir hamfararnir. Í nýja húsnæðinu verður starfrækt heilsugæsla sem var ekki í boði fyrir ári. 14.1.2021 18:01
Hvorki starfsmenn né sjúklingar smitaðir af veirunni Enginn sjúklingur á blóð- og krabbameinslækningadeild Landspítalans, utan þess sjúklings sem greindist í gærkvöldi, reyndist smitaður af Covid-19. Starfsmenn og sjúklingar á deildinni voru skimaðir fyrir veirunni í morgun og kom fram fyrr í dag að enginn starfsmaður hafi reynst smitaður af veirunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landspítalanum. 14.1.2021 17:22
Hættustigi aflýst á Ísafirði Allir sem fóru í sýnatöku við Covid-19 í morgun á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða reyndust neikvæðir. Viðbragðsstjórn Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða hefur því tekið sjúkrahúsið af hættustigi. 14.1.2021 16:54
Skimunarráð útskýrir tillögu sína sem olli fjaðrafoki Skimunarráð segist verða að byggja ráð sín á bestu vísindalegu þekkingu um árangur skimana og halda áfram að minna á að gæta að því að jafnvægi sé á milli ávinnings og hugsanlegs skaða skimunar. Það sé hlutverk skimunarráðs að láta þau sjónarmið ráða. 14.1.2021 16:46
Einn í gæsluvarðhald vegna árásarinnar í Borgarholtsskóla en tveir látnir lausir Einn piltur var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald, eða til 21. janúar, vegna árásarinnar í Borgarholtsskóla í gær. Dómari féllst ekki á kröfu um gæsluvarðhald yfir tveimur öðrum piltum vegna árásarinnar og þeir látnir lausir. 14.1.2021 15:57
Enginn starfsmannanna reyndist smitaður Enginn af starfsmönnum blóð- og krabbameinslækningadeildar, sem fóru í skimun fyrir kórónuveirunni í morgun vegna smitaðs sjúklings, reyndist smitaður. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landspítalanum. 14.1.2021 15:44
Tilkynningar um andlát eftir bólusetningu orðnar sjö Lyfjastofnun hefur nú fengið sjö tilkynningar um andlát eftir fyrstu bólusetningu gegn kórónuveirunni fyrir áramót. Allir látnu eru aldraðir með undirliggjandi sjúkdóma á hjúkrunar- eða dvalarheimili. 14.1.2021 15:26
Yfir 300 þúsund króna munur á leikskólagjöldum Yfir 300 þúsund króna munur er á leikskólagjöldum á ári fyrir fjölskyldur með fleiri en eitt barn á leikskóla. Þetta kemur fram í úttekt verðlagseftirlits ASÍ á breytingum á leikskólagjöldum hjá fimmtán stærstu sveitarfélögum landsins. Niðurstöður úttektarinnar má lesa um hér að neðan. 14.1.2021 15:20
Fimmtán sóttu um starf orkumálastjóra Alls bárust fimmtán umsóknir um starf orkumálastjóra sem nýverið var auglýst laust til umsóknar. 14.1.2021 15:01
Skipstjóri Júlíusar Geirmundssonar sviptur réttindum í fjóra mánuði Sveinn Geir Arnarsson, skipstjóri á Júlíusi Geirmundssyni, játaði sök þegar mál lögreglustjórans á Vestfjörðum gegn honum var þingfest fyrir Héraðsdómi Vestfjarða í dag. 14.1.2021 14:08
„Fólk er bara að skipuleggja næstu daga á ferð og flugi“ Sigurgeir Sigmundsson yfirlögregluþjónn á Keflavíkurflugvelli segir að lögreglumenn á vellinum sjái oft merki þess að fólk ætli ekki að virða sóttkví. Það ætli sér beint í vinnu eða að ferðast um landið. Þeir sem hafni skimun við landamærin beri sumir fyrir sig „stjórnarskrárbundnum rétti“ eða hugnist ekki að láta úr sér lífsýni. Almennt gangi allt þó vel á landamærunum og nær allir velja að fara í tvöfalda skimun. 14.1.2021 14:01
Rýmdu frystihús og sigldu með fólk í bæinn í öryggisskyni Lögreglan á Austfjörðum ákvað að láta rýma hús á vinnusvæði nærri þeim stað þar sem stór skriða féll á Seyðisfirði í desember. Í tilkynningu frá lögreglu segir að ábendingar hafi borist klukkan hálf tólf í morgun um að sprunga sem myndaðist í fyrrnefndri skriðu 18. desember hefði hugsanlega gliðnað. Vinnusvæði þar fyrir neðan hefði í kjölfarið verið rýmt og því lokað. 14.1.2021 12:56
Pfizer segist ekki kannast við frásögn Kára Lyfjaframleiðandinn Pfizer segist ekki kannast við frásögn Kára Stefánssonar forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar af fundi um mögulega bóluefnisrannsókn á Íslandi. Þetta kemur fram í skriflegu svari Pfizer við fyrirspurn fréttastofu. 14.1.2021 12:54
Gaf sig fram við lögreglu eftir árásina í Borgarholtsskóla Þrír hafa verið handteknir í tengslum við árásina í Borgarholtsskóla í gær. Piltarnir eru á aldrinum sextán til nítján ára. Eins þeirra var leitað í allan gærdag en hann gaf sig sjálfur fram við lögreglu seint í gærkvöld, samkvæmt heimildum fréttastofu. Sá er vistaður í fangaklefa og verður yfirheyrður í dag en þeir sem eru undir lögaldri hafa verið vistaðir á viðeigandi stofnun og mál þeirra unnið í samstarfi við barnaverndaryfirvöld, að sögn lögreglu. 14.1.2021 11:52
Fyrirhuguð sala á Íslandsbanka ætlar að reynast umdeild Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra stefnir að því að hefja söluferli á einum fjórða hlutar Íslandsbanka fyrir lok mánaðar. Hann stefnir ótrauður á að útboð verði í sumar. 14.1.2021 11:48
Á annan tug smita í hópi sem ætlaði alls ekki í sýnatöku á flugvellinum Sigurgeir Sigmundsson, yfirlögregluþjónn flugstöðvardeildar Lögreglustjórans á Suðurnesjum, segir óviðunandi að tillögur sóttvarnalæknis um aðgerðir á landamærum nái endurtekið ekki fram að ganga. Þörf sé á skjótri lagasetningu sem gefi sóttvarnalækni heimild til að grípa til þeirra aðgerða sem þurfi. Dæmi er um fjörutíu manna hóp sem hafnaði sýnatöku en svo reyndust á annan tug smitaðir af Covid-19. 14.1.2021 11:35
Smithlutfall í sumum flugvélum allt að tíu prósent Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, hefur lagt það til við Svandísi Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra, að allir þeir sem hingað ferðast þurfi að framvísa neikvæðu prófi vegna kórónuveirunnar áður en þeir leggja af stað hingað til lands. 14.1.2021 11:35
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum okkar fjöllum við um kórónuveirusmit sem uppgötvaðist á Landspítalanum í gær sem hefur einnig sett starfsemi sjúkrahússins á Ísafirði í nokkuð uppnám. 14.1.2021 11:35
„Við álítum þetta mögulega hættu og gætum fyllstu varúðar“ Sjúklingurinn sem greindist með kórónuveiruna á Landspítalanum í gær naut áður þjónustu á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Af þeim sökum hefur sjúkrahúsið á Ísafirði verið fært á hættustig sem þýðir að þjónustan á sjúkrahúsinu verður í lágmarki þar til frekara ljósi verður varpað á stöðuna fyrir vestan. 14.1.2021 11:11
SÍF fundar með stjórnendum Borgarholtsskóla vegna árásarinnar Samband íslenskra framhaldsskólanema, SÍF, harmar vopnaða árás sem gerð var í Borgarholtsskóla í gær. 14.1.2021 10:59
Fjórir greindust innanlands Fjórir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Tveir þeirra sem greindust voru í sóttkví, en tveir ekki. Fjórir greindust sömuleiðis á landamærum. 14.1.2021 10:54
Segir smitin ekki dæmi um vanrækslu heldur árvekni starfsfólks Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdómadeildar Landspítalans og formaður farsóttarnefndar, segir að það taki um sólarhring að átta sig nákvæmlega á stöðunni eftir að smit greindist á blóð- og krabbameinsdeild í gærkvöldi. Hann segir stöðuna býsna góða. 14.1.2021 10:39
Sjúkrahúsið á Ísafirði komið á hættustig vegna Covid-19 smits Sjúkrahúsið á Ísafirði er komið á hættustig eftir að sjúklingur sem nú liggur á Landspítala greindist með Covid-19 í gær. Sá hefur á síðustu dögum notið þjónustu á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Þrír starfsmenn á sjúkrahúsinu á Ísafirði eru í sóttkví og þrír til viðbótar í úrvinnslusóttkví. 14.1.2021 10:16
Svona var 153. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til reglulegs upplýsingafundar klukkan 11 í dag. 14.1.2021 10:02
Enginn grunur um smit í sjúklingum eða starfsfólki Enginn grunur leikur á smiti í sjúklingum eða starfsfólki blóð- og krabbameinsdeildar Landspítalans þótt sjúklingur á deildinni hafi greinst með kórónuveiruna í gærkvöldi. 14.1.2021 08:32
Formaður BHM fær mótframboð Maríanna Hugrún Helgadóttir, formaður Félags íslenskra náttúrufræðinga, greindi formönnum aðildarfélaga BHM frá því í gær að hún gæfi kost á sér sem næsti formaður stéttarfélagsins. 14.1.2021 07:39
Ágúst Ólafur ekki einn af fimm efstu í könnun Samfylkingarinnar Aðeins einn karlmaður, Jóhann Páll Jóhannsson, fyrrverandi blaðamaður á Stundinni, er á meðal fimm efstu í skoðanakönnun sem haldin var meðal félaga í Samfylkingunni í Reykjavík í desember. 14.1.2021 07:16
Fljúgandi hálka á götum borgarinnar Fljúgandi hálka er á höfuðborgarsvæðinu og ættu ökumenn og aðrir vegfarendur því að fara mjög varlega nú í morgunsárið. 14.1.2021 06:48
„Umhleypingar næstu daga og lítið um vetrarstillur“ Það verða umhleypingar í veðrinu næstu daga og lítið um vetrarstillur að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. 14.1.2021 06:38
Fimm manns í haldi lögreglu vegna líkamsárása Rétt fyrir klukkan hálfsex í gær handtók lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mann og konu í íbúð í miðbæ Reykjavíkur. Þau eru grunuð um sölu fíkniefna, líkamsárás og brot á lyfja- og vopnalögum. Fólkið var vistað í fangageymslu lögreglu. 14.1.2021 06:19
Enginn handtekinn eftir hópslagsmál við Hólagarð Til átaka kom milli ungra karlmanna við verslunarkjarnann Hólagarð í Breiðholti á fimmta tímanum í dag. Stór rúða á útibúi flatbökukeðjunnar Pizzunnar brotnaði í átökunum. Þá mátti heyra ung börn öskra og gráta í bakgrunni þar sem þau fylgdust með átökunum. 14.1.2021 00:31
Greindist smitaður á blóð- og krabbameinslækningadeild Sjúklingur á blóð- og krabbameinslækningadeild Landspítala (11EG) greindist í kvöld smitaður af Covid-19. Innlagnir á deildina hafa því verið stöðvaðar og fara um þrjátíu sjúklingar og þrjátíu starfsmenn í skimun í fyrramálið. 13.1.2021 23:38
Þverun Þorskafjarðar boðin út en ósamið um Teigsskóg Vegagerðin auglýsti í dag eitt stærsta útboðsverk ársins, þverun Þorskafjarðar. Óvissa ríkir þó um næstu áfanga þar sem ekki hafa náðst samningar við landeigendur í Teigsskógi. Í Reykhólahreppi sjá menn fram á ný atvinnutækifæri með framkvæmdunum. 13.1.2021 21:51
Hitta alla sem koma smitaðir til landsins og fengu loks bólusetningu Fjögur hundruð manns voru bólusettir með bóluefni lyfjaframleiðandans Moderna hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins á Suðurlandsbraut í dag. Bólusetningin gekk vel og var kærkomin framlínustarfsfólki úr röðum lögreglu og sjúkraflutningamanna, sem oft kemst í tæri við kórónuveiruna. 13.1.2021 20:01